Freyr - 15.04.1986, Page 27
Loðdýrarækt er áhættubúskapur
Bændur sem eru að hugsa um að fara út í loðdýrarækt eiga að athuga
hvort þeir geti ekki brúkað gömlu húsin til þeirra nota. - Rætt við
Reyni Barðdal, á Sauðárkróki, formann Sambands fóðurstöðva.
Loðdýrabú Reynis Barðdal og Fóðurstöðin Melrakki standa vegg í vegg uppi á
Nöfunum á Sauðárkróki. Það eru hœg heimatökin með fóðuraðdrætti, þvístutt er niður
að höfn.
Loðdýrabúið hét áður Loðfeldur hf eða til ársins 1983, en þá keypti Reynir búið og
hefur rekið það síðan.
Loðdýrabúið Loðfeldur var stofn-
að 15. janúar árið 1969, en fyrstu
dýrin, 1000 minkalæður, komu
þangað frá Noregi 15. janúar
1971.
Til allrar óhamingju reyndist sá
stofn sýktur af blóðsjúkdómi og
það með fleiru leiddi til þess að
loðdýrabúum fækkaði úr ellefu
árið 1972 þegar þau voru flest í
þrjú árið 1977. Eitt þessara
þriggja búa var Loðfeldur. Sýkti
minkastofninn var skorinn niður
árið 1983 og ósýkt dýr keypt.
Sama ár var Loðfeldur auglýstur
til sölu. Tók þá Reynir fyrst fyrir-
tækið á leigu, en keypti það stuttu
síðar. Heitir búið nú loðdýrabú
Reynis Barðdal. Reynir byrjaði
með nýýan stofn og hann telur að
hér á íslandi sé nú eini ósýkti
minkastofninn í heiminum.
Reynir sagði í viðtali við Frey
að það skipti sköpum að vera með
heilbrigðan stofn, frjósemin væri
meiri og hann hefði að meðaltali
einum hvolpi meira undan hverri
læðu en áður. Skinnin væru líka
betri.
Reynir hefur verið með refi í
fjögur ár og ég spurði hann að því
hver væri helsti munurinn á að
selja refa- eða minkaskinn.
- „Minkaskinnin eru öruggari
markaðsvara og eftirsótt nauð-
synjavara hjá vissri stétt fólks en
refaskinn eru meiri tískuvara. Það
seljast um þrjátíu og fimm
milljónir minkaskinna árlega í
Reynir Barðdal (Myndir: J. J. D.)
heiminum en ekki nema fjórar
milljónir refabelgja.“
Einföld gerð af refa-
skála
Refaskáli búsins var reistur vorið
1985. Hann er nánast refaskýli,
veggjalaus skáli.
- Reynir, hvaðan hefur þú hug-
myndina að þessari skálagerð?
„Þessi gerð af húsunum er sú sem
er algengust á Norðurlöndum og
hún er að því leyti frábrugðin
þeim loðdýrabyggingum sem eru
hér, að hliðar eru opnar.
Við byggjum þessa tegund af
húsum fyrir hvolpana og gerum
ráð fyrir að þau séu tæmd fyrir
veturinn. En samt sem áður lok-
um við þeim fyrir veturinn með
sterkum plastdúk, ódýru efni til
þess að snjór sligi ekki niður
búrin.
Hveijir eru kostir þessara húsa?
„Kosturinn er sá að það er mjög
gott að hreinsa frá þeim, þau eru
mjög loftgóð. Það er ekkert síður
nauðsynlegt fyrir dýrin að hafa
gott loft en að hafa gott fóður.
Það er mikilvægt fyrir feldgæðin.
Við losnum við ammoníak og eitt
og annað í svona húsum.“
Þú gast þess áðan að það gæti
hver bóndi smíðað svona skýli?
„Já þetta er mjög einfalt. Þetta
eru trérammar sem má sníða yfir
veturinn og svo má raða þessu upp
á vorin. Það þarf einhverjar
grunnfestingar fyrir þá, en það
þarf fyrir öll hús. En þetta er
afskaplega einfalt og eiginlega
varla hægt að tala um hús, því
þetta er eins og trönur með þaki á.
Gangur í miðju og einföld búraröð
til beggja handa. Unnt er að koma
að traktor og vagni til þess að
hreinsa skít úr húsunum. Verk-
pláss er mjög aðgengilegt og gott
að vinna í því. Einnig er það
heilsusamlegt fyrir dýrin.
Freyr 307