Freyr - 15.04.1986, Side 32
Fáeinir minnispunktar
fyrir þá sem stefna á loðdýrarækt
Samkvæmt lögum nr. 53/1981 um
loðdýrarækt og reglugerð um
sama efni nr. 444/1982 skulu þeir
sem óska að stofna loðdýrabú
senda landbúnaðarráðuneytinu
umsókn um það. Umsókninni
skulu fylgja ítarlegar upplýsingar
um fyrirhugaða starfsemi s. s.
hvar búið skal rísa, hvaðan skal fá
fóður, hvaða loðdýrategund skal
rækta, hvernig byggingar verða
notaðar og hvernig uppbygging
verði fjármögnuð. Reynsla og
menntun umsækjanda á loðdýra-
rækt skal tilgreind og að lokum
skulu fylgja umsókn umsagnir
sveitarstjórnar, skipulagsnefndar
og heilbrigðisnefndar eða heil-
brigðisfulltrúa svæðisins.
Allar umsóknir sem berast
ráðuneytinu fara fyrir úthlutunar-
nefnd loðdýraleyfa sem skipuð er
þremur fulltrúum, einum frá land-
búnaðarráðuneytinu, öðrum frá
Búnaðarfélagi íslands og þeim
þriðja frá Stéttarsambandi bænda.
Nefndin fer yfir umsóknirnar og
gerir tillögur til landbúnaðarráð-
herra hverjum skuli veitt leyfi.
í byrjun miðast leyfin við frekar
fá dýr, 50 refalæður eða 200
minkalæður. Óski viðkomandi að
stækka bú sitt þarf hann að sækja
um það sérstaklega til ráðuneyt-
isins.
Leyfi til loðdýraræktar eru ein-
ungis veitt ábúendum lögbýla og
heimiluð bústærð miðuð við að um
fjölskyldubú sé að ræða. Fram að
þessu hafa kröfur um menntun,
þekkingu eða reynslu verið litlar
og þá mest vegna þess að mögu-
leikar til að afla hennar hafa verið
mjög takmarkaðir. Þeir mögu-
leikar eru nú meiri en áður og því
má reikna með að þessar kröfur
verði auknar.
Sveinbjörn Eyjólfsson.
Framgangur við stofnun loðdýrabús