Freyr - 15.04.1986, Page 36
Það er mun auðveldara að
stofna ný loðdýrabú nú en áður,
einkum vegna þess að felld hafa
verið niður aðflutningsgjöld á
búraefni, vélum og tækjum, sölu-
skattur af loðdýrabyggingum er
endurgreiddur, auk styrkja til loð-
dýraræktar samkvæmt nýlegum
lögum.
Frá starfsemi Hudson
Bay
Þú ert umboðsmaður Hudson
Bay á íslandi. Geturðu sagt
okkur frá því fyrirtæki?
Hudson Bay er uppboðshús,
stofnað árið 1670 með konunglegu
leyfisbréfi Karls II Englandskon-
ungs. Nú hefur félagið þrjú upp-
boðshús: í Toronto, (í Kanada),
New York og London. Fyrirtækið
starfar í mörgum deildum og hver
deild fæst við sína skinnategund.
Aðalflokkar loðskinna eru þrír:
Lambskinnaflokkur, almenn
skinnavara (Wild Fur) og svo loð-
skinn af eldisdýrum, langmest
refum og minkum. í uppboðshús-
unum er tekið á móti skinnum frá
mörgum löndum. Skinnin eru
flokkuð eftir stærðum, lit og
hreinleika. Kaupandinn getur því
keypt sams konar skinn í tugþús-
unda tali sem þá er unnt að rað-
sauma loðfatnað úr.
Skinn eru búntuð saman, oftast í
100 — 200 skinn í búnti. Þau eru
svo skráð í skinnasöluskrár, 10 —
20 þúsund búnt í hverri skrá, þar
sem hvert búnt hefur númer. Þeg-
ar skráningu í söluskrár lýkur, eru
skinnin tilbúin til sýningar. Þá er
það sem kaupendur hvaðanæva að
úr heiminum koma til að skoða
þau. Venjulega stendur skinna-
sýningin sjö daga fyrir uppboð.
Oftast taka nokkur hundruð
kaupendur þátt í sjálfu uppboðinu
og bjóða þá í hvert búntið á fætur
öðru. Þegar skinn eru komin í
hendur kaupmanna fara þau í sút-
unarverksmiðju og þaðan til fram-
leiðenda loðfatnaðar og loks til
kaupenda þess fatnaðar.
Á undanförnum árum höfum
við tekið menn til þjálfunar er-
lendis í skinnaflokkun og yfirleitt
er hægt að fá leyst hjá Hudson
Bay úr tæknilegum vandamálum
er varða loðdýrarækt. Fyrirtækið
veitir bændum einnig fyrirgreiðslu
þegar skinn eru send til uppboðs.
Markaðssveiflur eru eins alls-
staðar og kaupendur hafa náið
samstarf sín á milli. Hraðskeyti
ganga manna á meðal um verð á
þessum eða hinum gæðaflokkn-
um.
Hvað ræður verðinu á
loðskinnum?
Tískan, veðurfar, efnahagsástand
þjóða og styrkleiki eða veikleiki
gjaldmiðla. Og af því þetta er
dollaramarkaður gengur okkur
verr að selja skinn nú af því að
dollarinn er veikur, en Evrópu-
gjaldmiðill er sterkur.
Hvað álýtur þú um horfur í
loðdýrarækt?
Ég er bjartsýnn, og ég vona að
menn láti ekki bugast þó að á móti
blási nú um sinn, því að verðið
hækkar alltaf aftur. Það getur
gerst snöggt, og á einum degi.
J.J.D.
Altalað á kaffistofunni
Listin að yrkja
Jón Helgason prófessor í Kaup-
mannahöfn lést fyrr á þessu ári, 86
ára að aldri. Eftir hann er ljóðið
„Áfangar“ sem sumir telja besta
ljóð sem ort hefur verið á íslenska
tungu á þessari öld.
í 1. tölublaði tímaritsins
„Heima er best“ 1985 er viðtal
sem Ólafur H. Torfason átti við
Jón Helgason. Þar spyr Ólafur um
tildrög þess að kvæðið „Áfangar"
varð til. Jón svaraði:
— Ég bjó fyrst til grind með stuðlum og rímorðum
og hafði eyður á milli. Síðan fór ég í nokkrar ferða-
bækur eftir Þorvald Thoroddsen og fleiri og landabréf
og smellti inn nöfnum sem gátu átt samleið með rim-
orðunum. Ég var einna fyrstur til að nota þessa aðferð.
Enda eru hlálegar vitleysur í landafræðinni og
náttúrufræðinni í þessu kvæði, það stenst ekki. Áfang-
ar eru víst eitt vitlausasta ljóð sem hefur birst á ís-
lensku. Ég held það sé notað í skólum á íslandi til að
sýna hvað það er hægt að fara með miklar vitleysur.
Það er enginn melgrasskúfur í Vonarskarði. Ég hafði
aldrei komið í Vonarskarð og vissi ekki einu sinni
hvernig melgrasskúfur leit út. Kennarar nota þetta
kvæði vonandi til að sýna nemendum sínum rang-
færslurnar. Ég myndi nota það á sama hátt, væri ég
kennari.
316 Freyr