Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.1991, Blaðsíða 15

Freyr - 01.06.1991, Blaðsíða 15
11.’91 FREYR 459 Hross á beit í þungbeitta hólfinu í Sölvholti í ágúst 1988. Handan við girðinguna sér yfir í miðlungsbeitta hólfið. (Ljósmynd: Borgþór Magnússon) höfðu fært út kvíarnar í hólfinu. Dæmi um þær auk belgjastarar og klófífu, voru mýrasef, lyfjagras (3. mynd) og mosajafni. Athuganir á jarðvegi leiddu m.a. í ljós að mest var af kalí og köfnunarefni í jarð- vegi í þungbeitta hólfinu, sem var rakið til áburðaráhrifa frá hlandi og taði. Kann þar að vera komin skýring á aukinni útbreiðslu nær- ingarkærra tegunda í hólfinu. Traðk virtist eiga talsverðan þátt í að rýra gróðurþekjuna í þung- beitta hólfinu. Þar bar nokkuð á ógrónum hófförum, einkum í þúfnabrúnum sem látið höfðu und- an þunga hrossanna. Einnig voru áberandi ógrónir blettir í lægðum milli þúfna þar sem land var rakast og hættast við að troðast í svað. Meginástæða rýrnunar gróður- þekjunnar í hólfinu virðist þó hafa verið beitin sjálf. Sá gróður sem mest lét undan síga í þungbeitta hólfinu samanstóð af grösum og störum en eftir þeim sóttust hross- in mest til beitar. Miklu minni breyting varð á heildarþekju breið- blaða jurta og mosa milli þung- beitta hólfsins og hinna hólfanna (2. tafla). Það er nokkuð eftirtektarvert að plöntutegundum í landinu í Sölv- holti fjölgaði með vaxandi beitará- lagi. Ér það í samræmi við ýmsar aðrar rannsóknir sem hafa sýnt að tegundafjölbreytni er oft meiri í bitnu landi en óbitnu. Stafar það af því að beitin opnar gróðurþekjuna og torveldar blaðmiklum og há- vöxnum tegundum að nýta sér eig- inleika sína til að drottna í gróður- lendinu. Við grisjun gróðursins, umferð, traðk og teðslu búpen- ingsins skapast breytileiki í yfir- borðsgerð og leiðir það til þess að fleiri tegundir finna skilyrði við sitt hæfi. í Sölvholti fjölgaði mosum mest með vaxandi beitarálagi (1. mynd). Beitarþoi, veðurfar og þrif búfjár Gróðurfarsrannsóknirnar í Sölv- holti leiddu í Ijós að eftir þrettán ára beitartilraunir voru komnar fram skýrar breytingar á gróður- fari milli þungbeitta hólfsins og hinna hólfanna. Með því að huga að beitarsögunni og niðurstöðum mælinga á uppskeru og vexti búfjárins í tilraununum má leita orsaka þessara breytinga og merkja um, hvenær þær komu fram. Eins og fram kemur í 1. töflu var beitarþungi í Sölvholti tiltölulega lítill fyrri hluta tilraunatímabilsins, er þar var beitt nautgripum og sauðfé. Niðurstöður uppskeru- mælinga sýna að á þessu tímabili var aldrei gengið nærri gróðri í þungbeitta hólfinu að hausti er beit lauk, þótt minni uppskera væri þar eftir en í hinum hólfunum. Er hrossabeitartilraunirnar hófust jókst beitarþungi til muna í öllum hólfum. Á öðru sumri hrossabeit- ar, árið 1983, versnaði ástandið mjög í þungbeitta hólfinu. Gróður í því var nær upp urinn að hausti og 2. tafla. Meðalþekja (%) plöntuhópa, ríkjandi háplantna sinu og ógróins yflrborðs í Sölvholti sumarið 1987. Beitarhólf Létt- beitt Miðlungs- beitt Þung- beitt Grösogstarir 64 52 27 Hálíngresi 20 14 + Snarrótarpuntur 10 8 Túnvingull 3 2 + Blávingull 7 7 10 Vallarsveifgras 7 + + Mýrastör 12 12 5 Belgjastör + 1 4 Klófífa 2 3 4 Breiðblaðajurtir 11 6 9 Kornsúra 1 3 5 Mýrfjóla 4 1 + Heildarþekjahápiantna . . . . 76 60 38 Mosar 47 58 56 Sina 56 39 2 Ógróið yfirborð + + 7

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.