Freyr - 01.06.1991, Blaðsíða 19
•TTE>T - frettapunktar
A __J '91 • UÞL ■ UÞL • UÞL • UÞL • UÞL • UÞL ■ UÞL • UÞL • UÞL • UÞL •
Óí )ÝRAR ÓR1 fGGISHLÍFAR
JL sumar gefst mönnum kostur á öryggishlífum fyrir
allar gerðir drifskafta á allt að því helmingi lægra verði
miðað við núverandi markaðsverð. Jötunn hf. hefur gert
tímabundinn samning um hagstætt innkaupsverð við
hollenska fyrirtækið Agritrans en það hefur sérhæft sig
í framleiðslu á öryggishlífum. Samningurinn er
tímabundinn þannig að verðlækkunin verður aðeins í
sumar. Þessar ódýru öryggishlífar em Uður í átaki í
slysavömum til sveita sem Jötunn hf. stendur að með
stuðningi bændasamtakanna, Vinnueftirliti ríkisins,
Slysavamafélagi íslands og Vátryggingafélagi íslands.
Ágóði rennur til SVFÍ sem mun að sögn Örlygs
Hálfdánarsonar, forseta SVFI, verja honum til átaks í
slysavömum bama sem stendur fyrir dymm í haust. Nú
er lag að bæta öryggisútbúnað drifskafta, sem er því
miður oftar en ekki í ólagi. Ef marka má upplýsingar frá
Vinnueftirliti ríkisins er í átta af tíu tilvikum gerðar
athugasemdir við öryggisútbúnað drifskaftanna, sem
verður að teljast ansi hátt hlutfall!
NÝR BtJVÖRUSAMNINGDR í
BRENNIDEPLI Á AÐALFUNDI L.S,
L/andssamtök sláturleyfishafa héldu aðalfund sinn í
Bændahöllinni 23. maí sl. Þar var m.a. rætt um nýtt
rekstrarumhverfi afurðastöðvanna með nýgerðum
búvörusamningi, lengingu sláturtíðar og mikilvægi þess
að framleiðendur og afurðastöðvar taki í ríkari mæli mið
af óskum neytenda. Sérstakur gestur fundarins var
Halldór Blöndal, landbúnaðarráðherra. í máli hans kom
m.a. fram að staðið yrði við nýgerðan búvörusamning
og að ákveðið væri að Sjömannanefndin svokallað héldi
starfi sínu áfram. Þá sagðist ráðherra almennt vilja beita
sér fyrir að draga úr boðum af ofan um málefni
afurðastöðvanna. Formaður L.S., Hreiðar Karlsson,
sagði m.a. að sláturleyfishafar stæðu frammi fyrir
miklum breytingum með nýjum búvörusamningi og að
sláturleyfishafar þyrftu í náinni framtíð að taka virkan
þátt í og hafa frumkvæði að áframhaldandi hagræðingu
í greininni sem og sölu- og markaðsstarfi. Á fundinum
hélt Hákon Sigurgrímsson stutt erindi um höfuðþætti
búvörusamningsins. Hákon lýsti því hvemig allt
rekstrammhverfi í landbúnaði mun breytast með
samningnum. M.a. fellur verðábyrgð ríkissjóðs á
kindakjöti niður 1. september 1992, viðskipti með
framleiðslurétt verða heimiluð og öllum verður heimilt
að framleiða, selja og flytja lambakjöt úr landi. Hákon
sagði þetta nýja rekstrarumhverfi óhjákvæmilega kalla á
nýjan hugsunarhátt og aukna markaðstilfinningu, ekki
aðeins hjá framleiðendum heldur einnig hjá
afurðasölufélögum. Framtíð landbúnaðarins byggðist á
því hvemig til tækist að nýta markaðinn sem menn
sætu ekki Iengur einir að.
MÖGULEIKAR Á NÝTINGU
AUKAAFURÐA SLÁTRUNAR
I fyrra voru tveir Ný-Sjálendingar hér á ferð á
vegum Markaðsnefndar landbúnaðarins og
Lífefnastofnunar Háskólans. Ný-Sjálendingunum, þeim
Lance Smith og Diane Fowler, var fengið það verkefni
að athuga möguleika á nýtingu aukaafurða slátmnar á
íslandi en eins og áður hefur komið fram í
fréttapunktunum er margt annaðnýtilegtafsláturgripum
en kjöt í mat og ull í fat. Sláturúrgang má nota í lífefna-
og snyrtivöruiðnað og mjölvinnslu, botnalanga í
smokkaframleiðslu og mör í sápugerð svo að fátt eitt sé
nefnt. Nú liggur skýrsla Ný-Sjálendinganna fyrir og svo
virðist sem við getum aukið verðmæti framleiðslunnar
með því að nýta að einhverj u leyti sláturúrgang. Álitlegasti
kosturinn virðist vera frostþurrkun á kirtlum fyrir ýmiss
konar næringarefhaiðnað og lyfjaiðnað. Hængurinn á
nýtingu aukaafurða hér á landi er þó sá að slátrun er í
heldur smáum stíl miðað við það sem gerist og gengur
erlendis og því er eftir að sjá hvort það borgi sig að leggja
út í fjárfestingar miðað við það magn af sláturúrgangi
sem fellur til.
HÆKKUN HJÁ DÝRALÆKNUM
Cjjaldskrá dýralækna hækkaði um 5,71 % hinn 1. mars
sl. Að því er næst verður komist er þama um uppsafnaða
launahækkun að ræða hjá dýralæknum, sem hafa að
sögn ekki fengið samningsbundndar hækkanir að
undanfömu.
Upplýsingaþjónusta landbúnaðarins • Bændahöllinni við Hagatorg »107 RVK • sími 20025/620025 • Fax 628290