Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.1991, Blaðsíða 17

Freyr - 01.06.1991, Blaðsíða 17
11.'91 FREYR 461 Léttbeitt Miðlungsbeitt Þungbeitt Snarrótarpuntur TúnSfill Mýrelfting Vallarsveifgras Hálíngresi Mýrastór Blávingull Túnvingull Belgjastör Vetrarkvíðastör Klófífa Tjamastör Hálmgresi Mýraaúnurt Hvítmaðra Mýrasef Lvfjagras Mosajafni Hrafnastör FjaUdalafífill Vegarfi Brjostagras Mjaðiurt Skriðlíngresi SkarifífiTl Engjarós Týtulíngresi Kopmsura Vaílhæra Hrafnaklukka Mýrfjóla Tíðni algengustu plöntutegunda í beitarhólfunum í Sölvholti og tíðni beitar á þeim fyrri hluta sumars. Á myndinni má lesa hve algeng tegund er í beitilandinu (tíðni) og hve oft hún ber ummerki beitarþegar húnfinnst (beitartíðni). Pvíhœrri sem beitartíðnin er þeim mun eftirsóttari er tegundin. Tegundunum er raðað eftir beitartíðni í léttbeitta hólfinu. friðunina sé landið í þungbeitta hólfinu óðum að jafna sig eftir óhóflega beit undanfarin ár. Plöntuval hrossa Niðurstöður athugana á plöntuvali hrossanna í Sölvholti sumarið 1987 þóttu mjög athyglisverðar, en þær voru aðeins frá fyrri hluta sumars- ins er beit hafði staðið stutt yfir. Því varð að ráði að endurtaka mæl- ingar árið eftir í lok beitartímans og fékkst þannig betri mynd af plöntuvalinu og hvernig það breyt- ist er líður á sumarið. Hrossin völdu greinilega ákveðnar plöntutegundir umfram aðrar til beitar. Úr valinu dró með auknum beitarþunga og eftir því sem leið á sumarið, þ.e. meðan beitin er góð velja þau meira úr gróðrinum en þegar hún verður lakari. í léttbeitta hólfinu var gróð- urframboðið mest og var því plöntuval hrossanna þar fyrri hluta sumars notað til að ákvarða eftir hvaða tegundum þau sóttust helst. Eftirsóttustu tegundirnar reyndust aðallega vera grös og starir. Mest sóttu hrossin í snarrótarpunt, túnfífil, mýrelftingu, vallarsveif- gras og hálíngresi. Síst bitu þau mosajafna, lyfjagras, hrafna- klukku, vegarfa og mýrfjólu. Plöntuval hrossanna var svipað í léttbeitta og miðlungsbeitta hólf- inu, en nokkuð annað í þungbeitta hólfinu. Þar hafði sneiðst um eftir- sóttustu tegundirnar og bættu hrossin sér það að nokkru upp með aukinni beit á mýrastör, klófífu, belgjastör og fleiri tegundum (5. mynd). í léttbeitta og miðlungsbeitta hólfinu voru hrossin meira á beit á þurrum grasgefnum rimum, þar sem snarrót og hálíngresi ríktu í gróðrinum, heldur en á lægri og rakari svæðum með gisnari mýra- gróðri. í þessum hólfum var einnig meira bitið ofan á þúfum en í lægð- um. í þungbeitta hólfinu var gróð- ur bitinn um allt landið og jafnt uppi á þúfum sem í lægðum. Plöntuvalsathuganirnar sýndu aðeins hve oft einstakar plöntuteg- undir voru bitnar er þær fundust í gróðurlendinu. Með þeim var ekki hægt að ákvarða hlutfallslegt magn þeirra í fæðu hrossanna. Gróður- samsetningin í Sölvholti gefur þó ákveðnar vísbendingar þar um og ætla má að hrossin hafi helst fengið kviðfylli af snarrót, hálíngresi og mýrastör í léttbeitta og miðlungs- beitta hólfinu, en af mýrastör, klófífu og belgjastör í þungbeitta hólfinu. Þessar tegundir eiga það sammerkt að vera fremur blað- miklar. Pað er eftirtektarvert að snarrót var sú tegund er hrossin völdu um- fram aðrar til beitar. Snarrót hefur oft verið litin hornauga í túnum og talin fremur léleg beitarplanta.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.