Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.1991, Síða 20

Freyr - 01.06.1991, Síða 20
464 FREYR 11.'91 Lífrœnarvarnirgegn meindýrum f garðyrkju II. Spunamaur - Fyrri hluti eftir Garðar R. Árnason 1. Lífsferill og útlit spunamaurs. Spunamaur (Tetranychus urticae) er eitt algengasta meindýrið hér í gróðurhúsum og veldur oft miklu tjóni. Hann skapar þar stöðuga hættu. þar sem hann getur lagst á og skemmt flestar þær tegundir sem ræktaðar eru. Eyðing spuna- maurs með plöntulyfjum krefst sí- endurtekinna meðhöndlana allan ræktunartímann og mikil hætta er á að hann myndi mótstöðu gegn lyfjunum við einhliða notkun þeirra. Spunamaur telst því meðal alvarlegustu meindýranna í gróð- urhúsum. Fullvaxin kvendýr spunamaurs eru um 0.4 - 0.5 mm löng, en karldýrin eru svolítið minni. Full- vaxinn spunamaur er með 8 fætur og venjulega gulgrænn á litinn. með tvo dökka flekki á bakinu. einn á hvorri hlið. Liturinn er stundum svolítið dekkri, einkum síðla sumars. Eggin eru undir 0.5 mm að stærð, hnöttótt og í fyrstu nær glær á litinn, en síðar ljósbrún. Úr flestum eggjanna klekjast kvendýr og þó svo að eggin hafi ekki frjóvgast, klekjast þau eigi að síður, en þá myndast eingöngu karldýr. Að loknu eggstigi taka við 3 lirfustig og eiga sér stað húðskipti á milli hvers lirfustigs. Fyrsta lirfu- stig er ljósgrænt á litinn. án bak- flekkja og er með 6 fætur. Næstu tvö lirfustig eru með 8 fætur, rétt eins og fullvaxin dýr. Af kvendýrum eru til tvær gerð- ir, annars vegar virk dýr og hins vegar dvaladýr og eru það ríkjandi skilyrði meðan á síðasta lirfustigi stendur, sem ákvarða hvor gerðin myndast. Það eru einkum þrír þættir sem ráða mestu: Daglengd, hiti og fæðuframboð. Þegar hausta tekur og daglengdin komin undir 15 klst., fara sum kvendýranna í dvala þegar hitinn er undir 24 °C. Þau eru rauð á litinn, oftast með dökka rák á bakinu. Erfið lífsskil- yrði. t.d. lítið fæðuframboð (þ.e. plöntusafi), hvetur einnig til myndunar dvaladýra. A meðan til staðar eru safarík og heilbrigð blöð, myndast fá dvaladýr, þó svo að daginn sé tekið að stytta og geta virk dýr verið til staðar allan vetur-

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.