Freyr

Árgangur

Freyr - 15.02.1992, Blaðsíða 10

Freyr - 15.02.1992, Blaðsíða 10
138 FREYR 4.’92 Maður röltir um túnið og ákveður svo allt í einu að fara að slá Viðtal við Viðar Þorsteinsson bónda á Brakanda f Hörgárdal. Viðar Þorsteinsson á Brakanda í Hörgárdal hefur vakið á sér athygli fyrir afburða árangur í nautgriparœkt, bœði miklar afurðir gripa en ekki síður óvenjulega litla kjarntóðurnotkun. Á sl. sumri var fréttamaður Freys á ferð um Eyjafjörð og notaði tœkifœrið til að fregna af því hvernig Viðar og fjölskylda hans fœri að því að ná þessum árangri en fyrst bað ég hann um að segja á sér deildi. Ég er fæddur hér árið 1952 og ólst hér upp. Foreldrar mínir eru Þorsteinn Jónsson, fæddur á Bæj- arstæði á Seyðisfirði en síðar bóndi hér, og Steingerður Jósavinsdóttir frá Auðnum í Öxnadal. Þau hófu búskap hér árið 1940. Ég lauk mínu skyldunámi hér heima og hjálpaði jafnframt til við búskapinn og tók svo við jörðinni í fyllingu tímans. Kona mín er Elínrós Svein- björnsdóttir frá Skáldalæk í Svarf- aðardal og við eigum fjögur börn á aldrinum 5-16 ára. Þurftir þú ekki að keppa við systkini þín um að fá að taka við jörðinni? Nei, ég á fjórar systur og þær fluttu að heiman hver af annarri þangað til ég var einn eftir. Við hjónin byrjuðum að búa hér með foreldr- um mínum vorið 1973 og vorum í félagsbúi með þeim til ársins 1980. Þá missti faðir minn heilsuna og við tókum alveg við kúabúskapn- um. Hvað er hér stórt bú? Hér er aðallega kúabú en auk þess um 100 kindur. Mjólkandi kýr eru um 25 og fjöldanum er stillt inn á fullvirðisréttinn og hefur leikið á bilinu 22-28 kýr. Hér er fjós sem Viðar Þorsteinsson. tekið var í notkun árið 1975, með hefðbundnu sniði, básum og rör- mjaltakerfi. Heyskapur? Hér var eingöngu verkað þurrhey en á síðustu árum hefur verið tek- inn upp rúlluheyskapur, en ein- göngu af seinna slætti. Er hér tryggur þurrkur framan af sumri? Já, ég held að óhætt sér að segja það, hér neðantil í sveitinni, en innar í Hörgárdalnum er meira um skúrir. Ég hirði hey í lausu og blæs því í hlöðu með heydreifikerfi og er svo með súgþurrkun. Bú þitt hefur lengi verið meðal 10 hœstu kúabúa á landinu hvað varðar meðalafurðir og einu sinni hœst, jafnframt lágmarks kjarnfóðurnotkun. Hver er galdurinn á bak við þetta? Ég tel að það sé heyið sem skipti þarna afar miklu máli. Maður hef- ur reynt að hefja heyskapinn eins snemma og mögulegt er. Til þess þarf að bera snemma á. Ég reyni að bera á strax og fært er um túnin án þess að spora þau mikið, jafnvel þó að varla sjáist á þeim að gróður sé farinn að vakna. Yfirleitt ber ég á þetta 10. til 15. maí og þá bland- aðan áburð, mest Græði 9 (24-9- 8). 6-10 poka á hektara eftir ástandi túnanna. Auk þess reyni ég að bera bú- fjáráburð á öll túnin á hverju ári, annað hvort í nóvember eða í mars-apríl. Getur þú gengið að landinu auðu í mars-apríl? Nei, en ef ekki er autt um það leyti þá frestast það fram í maí. Mér

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.