Freyr - 15.02.1992, Blaðsíða 12
140 FREYR
4.’92
Ibúðarhús Viðars Þorsteinssonar og fjölskyldu hans. Auðbrekkufjall í baksýn.
Áttu vélbúnað til
rúlluheyskapar?
Já, en ég keypti hann í upphafi
með öðrum bónda, en hann hætti
búskap og þá yfirtók ég hans hlut.
Þetta er auðvitað dýrt en kosturinn
við þetta er að það er hægt að nota
hentugasta tímann til að hirða og
taka jafnvel lítið fyrir í einu. Ef
útlit er fyrir þurrk, þá slæ ég að
morgni og hirði svo í rúllur síðari
hluta sama dags.
Og þú hefur nógan mannskap í
þetta?
Já, krakkarnir eru orðnir það
stórir og þau eru feikidugleg við
búskapinn, líka fjósverkin. Þau
gætu þess vegna séð um fjósið ein
dag og dag, enda alist upp með
þessu.
Rúllar þú hey fyrir aðra?
Já, ég geri nokkuð af því, þó að ég
sé ekki beinlínis að stefna að því. I
sumar hef ég rúllað um 800 rúllur,
en þar af um 200 fyrir sjálfan mig.
Hvernlg stjórnar þú
fóðurbœtisgjöflnnl?
Eg gef að hámarki 6 kg á kú á dag
og haga því þannig að á morgnana
gef ég fyrst þurrhey, síðan fóður-
bæti og loks rúlluhey. Á kvöldin
gef ég fyrst fóðurbæti og síðan
þyrrhey. Alltaf vilja kýrnar frekar
þurrhey en rúlluhey, virðist mér.
Lœtur þú efnagreina heyið?
Já, alltaf, og nota niðurstöðurnar
ásamt eigin mati og mati kúnna.
Heyið hér hefur oft verið á bilinu
1,5-1,7 kg hey í fóðureiningu, en
líka lægri og einu sinni slampaðist
það niður í 1,2 kg/FE.
Grœnfóður?
Eg hef verið með um 0,7 ha á ári í
nærfellt 10 ár, hafra annars vegar
og hins vegar fóðurrepju og rýgresi
saman. Á þetta hefur verið beitt
jöfnun höndum og það endist um
mánuð. Hins vegar er það ekki
nema hluti kúnna, sem er beitt á
þetta því að það bera margar í
september og þær fara ekkert út
eftir það.
Stefnlr þú að haustburðl?
Já, ég geri það, ég er með minnsta
mjólk í ágúst-september en hvað
mesta í desember-janúar.
Tekst þér að lóta kýrnar bera í
sama mónuði ór eftir ór?
Já, sumar, en aðrar seinka á sér, en
þó ekki verulega. Mikill hluti
kúnna ber á haustin og fram að
áramótum, eða þetta 15-20 kýr. Ég
vil helst ekki láta kú bera síðar en í
apríl.
Hvernig velur þú nautin?
Ég læt frjótækna mest sjá um það.
Maður biður þá um eitthvað gott
og þá koma þeir með sæði úr
reyndu nauti. Þó kemur það fyrir
að maður biðju um eitthvað
sérstakt.
Hafa kólfar héðan verið teknir
inn ó Nautauppeldisstöð?
Já, nokkrir, en enginn orðið nauts-
faðir á Nautastöðinni á Hvanneyri.
Að vísu er einn sem nú er verið að
prófa.
Ég hef sjálfur ekki fastar reglur
um að velja kýr til ásetnings. Mér
finnst stundum koma góð kýr und-
an miðlungskú og ég læt lifa undan
fyrstakálfskvígum og reynist það
vel.