Freyr

Årgang

Freyr - 15.02.1992, Side 28

Freyr - 15.02.1992, Side 28
156 FREYR 4.’92 launin voru greidd, á árinu 1991. Fæðisfrá- dráttur er 374 kr. á dag. Tryggingargjald mætti gjarnan færa undir sér lið á framtalið. Aðkeypt þjónusta. Flestir liðir skýra sig sjálfir. Sláturkostnaður er yfirleitt ekki á kostnað framleiðenda heldur sláturleyfishafa. í einstaka tilfellum er slátrun á kostnað framleiðenda og þá helst í kjúklinga- og hænsnarækt. Sjóðagjöld eru yfirleitt til- greind á afurðamiðum. Ekki er hægt að gefa upp reglu fyrir skiptingu á rafmagni milli bús og heimilis, ef marktaxti er notaður. Súg- þurrkun tekur mikið rafmagn og sömuleiðis vélar í fjósi, t.d. hitakútur. Á kúabúum er notað mikið meira rafmagn við búreksturinn heldur en á sauðfjárbúum. Heykaup, land-, tækja- og búfjárleigu skal gefa upp á greiðslu- miða. Heykaup má þó gefa upp á launamiða í reit 29. Tryggingar. Allar tryggingar við búreksturinn skal færa undir einn lið, nema búvéla- og bifreiðatrygg- ingar. Nefna má brunatryggingar útihúsa, tryggingu bústofns og fóðurbirgða, slysatrygg- ingu bónda og maka auk annarra sem vinna við búreksturinn, ábyrgðartryggingar auk trygg- ingargjalda sem koma fram á álagningarseðli. Eins og áður hefur komið fram mætti gjarnan færa tryggingargjald í sér lið. Vextir og verðbœtur. Hér er komið að þeim lið framtalsins, sem mörgum mun reynast erfitt að fylla út, ef um verðtryggð lán er að ræða. Best er að færa vexti og verðbætur um leið og skuldir eru færðar á bls 4. Á kvittun frá Stofnlánadeild eru sýndar „eftirstöðvar samtals“, sem er skuld í árslok. Einnig eru sýndir „vextir samtals“, og „vísi- töluálag samtals“. Það er því aðeins rétt að greitt sé á réttum tíma. Kvittunin sýnir breyt- inguna sem orðið hefur frá því að síðast var greitt. Bókfærður vísitölumunur færist eins og vextir. Bókfærður vísitölumunur er sú upp- hæð, sem lánið hefur hækkað um á árinu og er frádráttarbær, (en tekjur eru reiknaðar af skuldum og eru þær tekjur nefndar „tekju- færsla“.) Lán, sem er stjörnumerkt á kvittun frá Stofnlánadeild, tilheyrir í sumum tilfellum ekki búrekstrinum, heldur skattframtali og færist þá þar, en ekki á landbúnaðarframtal. Vextir af þeim lánum, sem hafa verið tekin út á íbúðarhús, færast á skattframtal. Vísitölu- hækkun þessara lána má ekki færa eftir sömu reglu og hér er lýst, heldur má einungis færa greiddar vísitöluhækkanir. Vaxtaaukalán. Best er að fara eftir kvittunum þó að gjaldagi sé ekki urn áramót. Á kvittunum eru sýndir vextir og verðbótaþáttur vaxta undir einum lið, „vextir“, og sú upphæð færist til gjalda. Vísitölulán. Á kvittunum frá bankanum koma fram vext- ir og verðbætur. Leggja þarf saman vexti og verðbætur og hvort tveggja færist til gjalda. Áður en lengra er haldið er rétt að geta þess, að færsla skulda og vaxta á landbúnaðarfram- tal annars vegar og persónuframtal hins vegar, getur haft töluverða þýðingu skattalega séð og meðhöndlun er ekki alveg eins. Lán sem tekin eru til íbúðarhúsabygginga færast öll á skatt- framtal en lán sem tekin eru vegna búrekstrar, færast á landbúnaðarframtal og vextir og lán- tökukostnaður sömuleiðis. Lán vegna bíla- kaupa, húsgagnakaupa eða annarra persónu- legra nota, færast á skattframtal. Vísitölu- hækkun lána, þ.e. sú upphæð, sem lánin hafa hækkað um á árinu, færast til gjalda á landbún- aðarframtali, en sé vísitölulán á skattframtali færast þar til gjalda aðeins vextir og greidd vísitölulækkun. Á þessu er mikill munur. Ef skuldir eru miklar getur það orkað tvímælis hvort lánið er tekið vegna búrekstrar eða einkaneyslu, en það verða menn að meta. Þegar búið er að færa inn skuldir og um leið vexti og verðbætur á bls. 4 á landbúnaðarfram- tali, er vaxtadálkurinn lagður saman og upp-

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.