Freyr

Árgangur

Freyr - 15.02.1992, Síða 37

Freyr - 15.02.1992, Síða 37
HEfMSRÁÐSTEFNA UM BÚFJÁRKYNBÆTUR { EDINBORG ÁRIÐ 1990 Nautgriparœkt I Jón Viðar Jónmundsson Á ráðstefnunni í Edinborg var lang umfangsmesti efnisflokkur sá sem sneri að rœktun mjóikurkúa. Voru þar fundir í mörgum deildum. Ég átti þess kost að fylgjast með mörgum þessara funda en þar kom margt ákaflega fróðlegt fram og verður umfjöllun um þessi mál skipt í nokkra hluta. Þau mál sem þarna settu samt mestan svip á umrœðuna voru endurbœtur á aðferðum í kynbótamati nautgripa og umrœða um rœktunarkjarna í nautgriparœkt. Erling Strandberg frá Svíþjóð var með eitt aðalerindanna þar sem hann velti fyrir sér atriðum í sam- bandi við afkvæmarannsóknir á nautum. Hefð er fyrir því að af- kvæmarannsóknir á mjólkurkúm fari fram á grunni upplýsinga um fyrsta mjólkurskeið hjá dætrum nautanna. Jafnframt er ljóst að ræktunarmarkmiðið hlýtur að vera að fá sem hagkvæmasta gripi í framleiðslunni fyrir allt æviskeið þeirra. Vankantar á núverandi að- ferð hafa því lengi verið augljósir. Rannsóknir hafa sýnt að fram- leiðslugeta á fyrsta mjólkurskeiði, annars vegar, og síðari mjólkur- skeiðum, hins vegar, er í raun ekki alveg sami eiginleiki. Notkun upp- lýsinga um fyrsta mjólkurskeið er aðeins óbeint mat á afkastagetu á síðari mjólkurskeiðum. Þetta kem- ur m.a. fram í því að arfgengi mjólkurmagns á mismunandi mjólkurskeiðum er ekki það sama. Yfirleitt finnst öllu lægra arfgengi fyrir afurðir á öðru en fyrsta mjólk- urskeiði. Það hefur líka lengi verið þekkt að það hversu mikið kýrnar sækja sig í afurðum með aldri er að hluta arfgengur þáttur. Aukinn áhugi á að nýta upplýs- ingar um síðari mjólkurskeið á síð- ustu árum tengist þó vafalítið fyrst og fremst meiri áherslu á fleiri Jón Viðar Jónmundsson. eiginleika en afkastagetu kúnna í ræktunarstarfnu. Gott mat á suma af þessum eiginleikum fæst varla fyrr en kýrnar fullorðnast. Hér er nærtækast að benda á fjölmarga þætti sem tengjast hreysti, heil- brigði og endingu kúnna. Sumir sjúkdómar gera ekki vart við sig fyrr en kýrnar verða fullorðnar, t.d. bráðadoði, og aðrir, eins og júgurbólga, fara einnig verulega í vöxt með aldri. Einnig hafa rann- sóknir á að nýta upplýsingar um förgun gripa sem eiginleika í rækt- unarstarfnu eflst mikið á allra síð- ustu árum. Hér er samt um mjög flókið mál að ræða vegna þess hve- ástæður fyrir förgun gripa er óljóst skilgreindur þáttur. Þær vísbend- ingar sem þar fást eru samt vafalít- ið mjög mikilsverðar í ræktunar- starfinu. Nautsmœður „búnartil". Notkun á upplýsingum um síðari mjaltaskeið lengir óhóflega þann tíma sem bíða þarf afkvæmadóms á nautunum og dregur þannig úr kynbótaframförum. Einnig eru vandamál við notkun á síkum upp- lýsingum vegna þess að þeir gripir sem Ijúka síðari mjólkurskeiðum er valinn hópur vegna förgunar annarra gripa. Bættar aðferðir í kynbótamti á síðustu árum ná samt að glíma við þennan vanda að hluta. Annar þáttur sem mikið kemur í umræðu nautgriparæktar- manna erlendis þegar notkun upp- lýsinga um síðari mjólkurskeið er rædd er ótti við skekkjur í kynbóta- mati vegna sérmeðferðar gripa. Þetta vandamál er vel þekkt í nautsmæðravali í mörgum lönd- um. Það felst í því að nautsmæður eru „búnar til“ með sérmeðferð. Þessi hætta er vafalítið raunhæf þar sem afkvæmarannsóknir fara að hluta fram á fáum búum eins og

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.