Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.10.1997, Qupperneq 9

Freyr - 01.10.1997, Qupperneq 9
Astand laxastofna í Norður-Atlantshafi - Afkoma og helstu áhrifaþættir Stangaveiði á laxi he'r á landi er með því besta sem þekkist við norðanvert Atlantshaf og talið að verðmœti laxveiðihlunninda séu allt að einum milljarði króna. Ástand laxastofna hefur verið stöðugt þótt laxgengd sveiflist verulega milli ára. (Ljósm. Rafii Hafnfjörð) Árni ísaksson veiðimála- stjóri éMM Sveiflur í laxveiði Samkvæmt bráðabirgðayfirliti var laxveiði á stöng hér á landi í ár um 29.000 laxar, sem er sambærilegt við veiði ársins 1996. Þetta er um 18% undir meðalveiði undanfarinna 20 ára (sbr. Veiðimálastofnun) en þó mun betri veiði en var á rýrustu veiðiárunum upp úr 1980. Oft er spurt að því hvort laxgengd hér á landi hafi dalað á undanförnum áratug. Skoðun á þessu leiðir í ljós að meðalstangaveiði áranna 1974- 84, samanborið við meðalstanga- veiði áranna 1985-96, er sú sama eða rétt rúmlega 35 þúsund laxar. Hins vegar virðast sveiflur á milli ára vera mun meiri hin síðari ár og færri góð veiðiár í röð, eins og al- geng voru á tímabilinu rétt fyrir 1980. Veiðimeti ársins 1978 verður því seint hnekkt. Laxveiðin á árinu 1996 kom mönnum yfirleitt ekki í opna skjöldu, þar sem ástand sjávar og til landsins hafði verið fremur óhagstætt vorið 1995, einkum fyrir Norðurlandi. Hins vegar bundu menn verulegar vonir við að úr rættist sumarið 1997, þar sem ástand sjávar hér við land 70.-72. '97 - FREYR - 385

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.