Freyr - 01.10.1997, Side 37
Heimsmarkaðsviðskipti með
nautakjöt og lambakjöt
Útdráttur úr erindi Owens Brooks, framkvæmdastjóra alþjóöa-
markaðssviðs hjá Irish Food Board, flutt á MEAT '97 ráðstefnunni
16. októbersl. í London sem haldin vará vegum Agra Europe Itd.
Nautakjöt
Saga heimsviðskipta
A fjórða áratugnum var Suður-Am-
eríka allsráðandi í heimsviðskiptum
með nautakjöt sem aðallega var flutt
út til Evrópu og á þessum árum nam
útflutningur Argentínu 70% af heims-
viðskiptum. Eftir seinni heimsstyrj-
öldina hófst mikill innflutningur til
Norður-Ameríku, aðallega Banda-
ríkjanna, frá Eyjaálfu og af því
leiddi að Astralía varð stærst útflutn-
ingsþjóða í nautakjöti. Það var svo
ekki fyrr en á áttunda og níunda ára-
tugunum, samfara örum vexti eftir-
spumar í Mið-Austurlöndum eftir
nautakjöti, að ESB-löndin hófu fyrst
útflutning. A seinni hluta níunda
áratugarins birtist Asía og þá sér-
staklega Japan á sjónarsviðinu sem
innflutningsþjóð. USA fór að láta að
sér kveða sem útflutningsþjóð og
Astralía styrkti stöðu sína enn frek-
ar. Síðasti vaxtarskjálftinn, sem fór
um nautakjötsmarkaðinn, var með
hruni Sovétríkjanna þegar Rússland
og Austur-Evrópa hófu innflutning.
Síðustu öld og þá sérstaklega eft-
ir seinni heimsstyrjöldina hefur þró-
un viðskipta stöðugt verið undir
áhrifum ýmissa markaðshindrana,
allt frá tæknilegum viðskiptahindr-
unum til hárra tolla. En síðan 1995
hefur WTO (Alþjóða viðskiptastofn-
unin) stjómað heimsviðskiptum
með nautakjöt en hún hefur það að
markmiði að draga úr markaðshindr-
unum og stuðla að auknu frelsi í
viðskiptum milli landa.
Það er umhugsunarvert að árið
1996 hefur sjúkdómur í nautgripum
þ.e. kúariða, sem aðallega er bund-
inn við eitt land, haft áhrif á neyslu
nautakjöts um allan heim. Fyrir þessa
atburði voru sjúkdómar málefni
dýralækna og notaðir sem hluti af
markaðsvernd þjóða.
Heimsviðskipti með nautakjöt
nema nú 3,7 milljónum tonna en
búist er við að þetta magn verði
komið upp í 4,5 milljón tonn árið
2001 og mun markaðurinn beinast í
auknu mæli á næstu árum að lönd-
unum kringum Miðjarðarhaf.
10.-12. '97 - FREYR -413