Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.1997, Blaðsíða 16

Freyr - 01.10.1997, Blaðsíða 16
Ullhœrt (þétt, mjúkt, fíngert hár). Þarf ekki að „ raka af“, hárin slitna sjálf í broddinn. (Ljósm. Sig. Sigmundsson) íslenski hesturinn er prúðari en mörg erlend hestakyn Það hefur löngum vakið eftirtekt mína hve hin ræktuðu stóru hrossa- kyn heimsins skarta af litlum prúð- leika. Þau eru sneggri í hárafari en ís- lensku hrossin sem víða stafar auð- vitað af hlýrra loftslagi heldur en hér er. Og þau eru óprúðari á fax og tagl, sem trúlega stafar af því sama, ekki eftirsóknarvert að hafa mikið fax og tagl til að skýla skrokknum þar sem skjóls er síst þörf. Þetta eru húshross. En þetta er aldeilis ekki einhlítt. Fegursta og glæsilegasta hrossakyn af þeim stóru, sem ég þekki, er Friesian-hesturinn. Hann er mótaður sem kyn í Hollandi og er kominn af evrópska Skógarhestinum, er allvel stór hestur, um 150-160 cm á hæð. Prúðleiki þessa hests er alveg ein- stakur á allt óbreytt, fax, tagl og fætur með hófskegg niður á jörð og stundum loðinn upp á legginn. Slík- ur prúðleiki er að mínu skapi. Aftur finnst mér nóg um þegar fætumir eru svo loðnir að hylur næsum hóf- ana! (Skírir, enskur hestur). Öðra máli gegnir um t.d. Shet- landshrossin á skosku eyjunum, þau era útihross enda loftslagið mun hlýrra en hér. Það er gaman að skoða Shetlands-smáhrossin, ponyana, þau era svo lík okkar hestum. Byggingar- lagið það sama, eins og smærri mynd af okkar hesti, og litafjölbreytnin áþekk. Þau fara undir 100 cm á stöng. Og prúðleikinn er ekki síðri en hjá íslenska hestinum, nema þau era fín- hærð og hárin skiptast síður að ég held í gróft og fíngert strý. Ég er einn af mörgum hesta- mönnum, sem hef gaman af að líta í skrif Theódórs Ambjömssonar í bókinni „Hestar", flest er þar afar ítarlegt. En um prúðleika hrossa finn ég lítið sem ekkert. Aðeins er bent á að nauðsynlegt sé að raka af hross- um til að halda niðri lús, samfara böðun. Einnig að taglstýfa húshross, svo að þau stígi ekki taglið til rýrðar hvert af öðru í skítsöfnun í kofum, þar sem þau ganga laus. Þá er ráð- legt að stýfa tagl á vinnuhestum, einkum við jarðvinnslu. Theódór segir frá sið sem var við lýði fram um síðustu aldamót, að hafa tögl reiðhrossa vel síð og lyfta þeim svo upp með því að hnýta þau í hnút, meðan á útreiðum stendur. Þá haldist þau hrein og líti vel út þegar leyst era niður. Sem unglingur man ég vel eftir því að flestir búhyggnir bændur rök- uðu hressilega af hrossum sínum. Þeir skáru faxið niður í makka, stýfðu ennistoppinn og taglskelltu á móts við hækil ofanverðan, allt til að fá sem mest og lengst hár, sem var nýtt til margra hluta, t.d. í gjarðir, hnappheldur og bandbeisli, svo að eitthvað sé nefnt viðkomandi sjálf- um hrossunum. Nú er öldin önnur, þetta þykja langsótt hyggindi á tíma hinnar miklu iðnvæðingar, en nýtnin var nú ólíkt betri þá. í seinni tíð þykir fínt og sjálfsagt að raka aldrei af hrossum, ekki síst á það við um stóðhesta. Að skilgreina hlutina Þegar rætt er um prúðleika hrossa er átt við hárvöxtinn á faxi og tagli. Hrossunun er lýst sem prúðum eða óprúðum eftir því hve miklir og þekkilegir þessir eiginleikar eru. Við lýsingar undinitaðs á byggingarlagi hrossa í áranna rás er stundum getið Prúður og litfagur. (Ljósm. úr safiii Þ.B.) um fallega og prúða fætur. Það er þá þriðja atriðið, sem á við hárvöxt á hrossinu. Lýsingarorðið prúður get- ur einnig haft aðra merkingu. Sagt er að menn séu prúðir í framgöngu ef þeir eru stilltir og kurteisir. Þessa lýsingu má vel nota um hross, eink- um er þá átt við skapgerðina. Þegar hestur er sagður „prúður á velli“ gæti það spannað hvort tveggja hárafarið og framgönguna. En væri sagt að hestur væri „prúður vel“ væri átt við prúðleikann (mikið fax og tagl.) Á hrossum er háralagið í faxi og tagli nokkuð misjafnt gerðar. Bæði er rótin misþétt og gerð háranna misjafnlega gild, fín eða gróf og svo allt þar á milli. Þau hross sem eru fínhærð era vanalega þéttari að byggingu og fín- byggðari og er þá einkum átt við beina-, og jafnvel vefjagerð. Hárafar hrossa, sem svo er ætíð kallað, á almennt við um skrokkhár þeirra. Á því sviði era hrossin líka misjafnlega vel hærð. Sum era gróf- hærð og langhærð þegar önnur eru fínhærð og stutthærð. Og eftir því era hárfellingar líka oft ólíkar. Þegar þau gróf- og langhærðu ganga úr, þá flettast af þeim heilu flákamir eða myndast flókaþrymlar. Tryppi kallast þá flókatryppi. Og fullorðin hross skila af sér hára- 392 - FREYR - 70.-7Z ‘97

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.