Freyr - 01.10.1997, Page 27
Gróður fyrir fólk í Landnámi Ingólfs
Nýtt afl í landrækt
Sjálfsmynd íslendinga byggist
meðal annars á hreinleika lands
og ómenguðum náttúruauðlindum.
Við erum stolt af fegurð og ósnort-
inni náttúru landsins. Fjölgun er-
lendra ferðamanna hingað ber vitni
um að hreinleiki og víðátta fslands
verður æ eftirsóttari.
Samtímis því að íbúar landsins
byggja sjálfsmynd sína á hreinleika
umhverfisins á þjóðin við alvarlegan
umhverfisvanda að stríða. Jarðvegs-
rof er hið mesta sem gerist á jörð-
Jóna Fanney
Friðriksdóttir
frkvstj. Gróðurs
fyrir fólk í m 9
Landnámi Ingólfs
inni, utan þurrkasvæða. Stór hluti
landsins er örfoka eyðimörk.
Ahugamannasamtökin Gróður
fyrir fólk í Landnámi Ingólfs voru
stofnuð sl. vor með það að markmiði
að sporna gegn því geigvænlega um-
hverfisvandamáli sem jarðvegs- og
gróðureyðing er í Landnáminu.
Landnám Ingólfs
Landnám Ingólfs nær meðfram
strandlengju Reykjanesskagans, inn
í botn Hvalfjarðar og í austri með-
fram Þingvallavatni, Sogi og Ölfusá.
Allt frá landnámi hefur svæðið
verið þéttbýlt enda ber núverandi
Andstœðurnar í landi sunnan Hafiiarfjarðar; Hvaleyrarholt, nakin holt, og uppgrœðsla með lúpínu og trjám.
10.-12. '97 - FREYR - 403