Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.1997, Blaðsíða 31

Freyr - 01.10.1997, Blaðsíða 31
Lömbin eru ólík þeim íslensku, m.a. hafa þau langan hala. Á fyrstu 5 búskaparárum sínum fjölgaði Kevin sauðfénu upp í 3000 ær, en veittur var styrkur á hverja á er fjölgað var um. Kevin og Bess hefur tekist að komast í gegnum mestu fjárhags- vandræðin sem fylgdu breytingum níunda áratugarins. En eins og gefur að skilja hafa allar þessar breytingar bitnað illa á þeim fjárhagslega, enda þau til þess að gera nýfarin að búa er ósköpin dundu á. Það hefur þó ekki tekist án fóma að lifa breytingamar af. Árið 1988 voru þau tilneydd til að selja 200 ha lands til að minnka skuldir og útvega lausafé og til að drýgja tekjumar frekar stundar Bess vinnu í næsta þorpi. Þar sem búskaparhættir á Nýja Sjálandi em all frábrugðnir því er hérlendis tíðkast mun ég hér gera stuttlega grein fyrir búskap Kevins og Bess. Kevin notar fjórltjól mikið við að snúast íkringum sauðféð. von bændanna er að þetta tryggi þeim ömgga afsetningu á afurðum sínum í framtíðinni og jafnvel eitt- hvað hærra afurðaverð. Eins og nærri má geta urðu þessar hræringar á afurðastöðvamarkaðn- um til að auka enn á fjárhagsvand- ræði sauðfjárbænda sem margir hverjir börðust enn í bökkum eftir áhrif aðgerðanna 1984. Er nú svo komið fyrir verst setta hóp þeirra að þeir geta einungis greitt vexti og verðbætur af lánum sínum og virðist þeirra staða því hálf vonlaus. Bú Kevin og Bess Kevin og kona hans, Bess, keyptu jörðina árið 1978 af foreldrum Kev- ins. Stærð jarðarinnar var við upphaf búskapar þeirra um 720 ha og bú- stofninn 1720 Romney ær og 100 uxar. Þessi bústofn dugði á þeim tíma vel til að framfleyta fjölskyldu og borga af lánum. Vor Rúningur I september má segja að vorverkin hefjist er ánum er gefið inn torleyst ormalyf sem leysist upp á u.þ.b. 100 dögum. Æmar em rúnar fyrir burð til að minnka hættu á afveltu yfir sum- armánuðina og auðvelda sauðburð. Sérstakir rúningsverktakar sjá um rúninginn og kostar hann um 100 kr. á kind. Innifalið í þeirri upphæð er rúningur, grófhreinsun og pokun ullarinnar. Verðið sem Kevin fær fyrir ull er á bilinu 150-200 kr. á kg. Sauðburður Allt sauðféð gengur í ræktuðum beitarhólfum þar sem uppistaða gróðursins er rýgresi og hvítsmári. Eldri ærnar eru sónarskoðaðar fyrir burð til að kanna hvort þær séu ein- lembdar eða tvílembdar. Kostnaður við sónarskoðun er 25 kr. á grip. Ærnar eru flokkaðar á beitilandið eftir niðurstöðum sónarskoðunar- innar. Tvflembumar eru settar á betra landið og færri á hvem hekt- ara, eða u.þ.b. sjö ær á ha. Einlemb- unum er gefið það sem eftir er af 70.-72. '97 - FREYR - 407

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.