Freyr

Årgang

Freyr - 01.06.2004, Side 5

Freyr - 01.06.2004, Side 5
„Til þess, að vatn geti ekki staðið á sléttunum, þurfa þær að vera í ávölum teigum, með renn- um eður ræsum á milli. Teigamir skulu vera því hærri og mjórri, sem jörðin er raklendari og liggur lægra, og eptir því, sem héraðið er rigníngasamara. Fyrir endun- um á teigunum skulu og vera rennur, eins og á milli þeirra. Bæði þessar rennur og þær, sem era á milli teiganna, eru til þess að taka á móti vatninu, sem kem- ur ofan af sjálfum teigunum, og því, er að þeim kann að koma annarstaðar frá. Meðal-teigs- breidd mundi vera 4-5 faðmar, að lengd 15-20 faðmar, en hæð 'A - 1 alin, það er að segja: teigurinn skal vera þetta hærri í miðjunni en í rennunum, sem eru í kríngum hana. Rennumar skulu vera ával- ar, eins og teigarnir, en ekki snar- brattir, lítur þá öll sléttan út eins og ávalar öldur í röð. Svo sem þegar var sagt, verður stærð og hæð teiganna að fara eptir lands- lagi og veðráttufari. Sé jörðin blautlend, og vatn renni af henni, þá þarf að leggja lokræsi í renn- umar milli teiganna”... Rök Guðmundar fyrir aðferð- inni vom þau að losna við yfír- borðsvatnið af ræktunarlandinu. „Vatnið er aðal-orsökin til þess, að jörðin þýfíst eður verður ójöfn. Menn sjá, að þar sem vatnið náir að standa annaðhvort á eður í jörðinni, þar kemur laut”, skrifar hann, og ennfremur „Það þarf nefnilega að slétta svo, að ekkert vatn geti staðnæmzt á sléttunni ... Sléttur þurfa því að hafa þá lögun, að vatn geti hvorki staðið í þeim né á”. Guðmundur bendir á að þessi sléttunaraðferð sé seinvirk með þeim verkfæmm og aðferð- um sem þá tíðkuðust. Til sléttun- arinnar þurfí hver bóndi að eiga áhöld sem hann tilgreinir og lýsir: „plógur, ristuspaði, ak-reka, pöm- plógur, aurbrjótur og valti”. Til þess að móta hinar ávölu öldur, beðin, var nauðsynlegt að flytja jarðveginn nokkuð til. Að vissu marki mátti gera það með plógnum eftir að grasrótin hafði verið rist ofan af landinu með því að „plægja það síðan um í teiga”. Guðmundur mælti með tvíplæg- ingu hið minnsta og skrifaði í grein sinni: ...,,því optar, sem hver teigur er plægður þannig, því hærri og brattari verður hann, eins og gefur að skilja ... Ein plægíng nægir ekki til að gjöra teigana nógu háfa og aflenda, eða til að gefa þeim þá lögun, er þeir eiga að hafa”. Að nokkurri vinnslu lok- inni mátti síðan færa jarðveginn til með ak-rekunni, áhaldi sem síðar var þekkt undir nafninu hestareka. Breidd beðanna virðist hafa verið nokkuð mismunandi en 4 faðmar (um 7,5 m) sýnist hafa verið algeng breidd. Teigplæging sú sem Guðmund- ur á Fitjum lýsti leiðir okkur að skyldleika beðasléttnanna við aldagamlar erlendar verkhefðir við akuryrkju. Þannig hafa í Dan- mörku fundist leifar akurbeða (lang-agre) frá miðöldum sem m.a. voru ætluð til þess að tryggja afræslu yfirborðsvatns. Lang-akr- amir vom 10-20 m breiðir og allt að 500-600 m langir; þar í landi hafa einnig fúndist dæmi akur- kerfa með mun mjórri akurbeðum (u.þ.b. 1 m). Hliðstæð dæmi em frá fleiri Evrópulöndum, t.d. Sví- þjóð og Englandi. Álitið er að framanvert á miðöldum hafí það að plægja akra upp í hryggi (8-12 m breið beð) verið útbreitt verk- lag. Beðaform akranna varð til við árlega plægingu þannig að með plógnum var jarðveginum velt frá hvorri hlið inn að miðju beðsins (5) - í fljótu bragði séð með sama hætti og Guðmundur Ólafsson lýsti beðasléttugerðinni í grein sinni. Verkleg kennsla búnaðarskól- anna íslensku snerist fyrstu árin (1880-1905) ekki síst um jarð- rækt. Þar mun nemendum m.a. hafa verið kennt að búa til beða- sléttur, og á skólajörðunum, t.d. Hvanneyri, má enn sjá allglöggar minjar um þær. Síðan beittu hinir brautskráðu búfræðingar kunnátt- unni heima í sínum sveitum og verklagið breiddist út. Hver sá sem slegið hefur gamla beðasléttu með nútíma sláttuvél kannast við að það er ekki skemmtilegt verk: ýmist ristir sláttuvélin í svörð niður eða skil- ur eftir óslegna mön, að ógleymd- um veltingi dráttarvélarinnar. Skrifarann grunar að tilkoma hestasláttuvéla hafí á sínum tíma dregið úr vinsældum beðasléttn- anna - að ekki hafí þótt eftirsókn- arvert að slá beðasléttumar með þeim heldur. Fór enda svo að beðasléttugerðin lagðist að mestu af á fyrstu tveimur áratugum 20. aldarinnar. Ef þú, ágæti lesandi, ræður yfír landi þar sem enn má sjá leifar gamalla beðasléttna skaltu halda yfír þeim hlífískildi. Þær eru angi af menningarlandslagi fyrri tiðar, dæmi um nýja verkmenningu sem kynnt var til þess að efla og auðvelda fóðurframleiðslu bú- anna sem var lífsnauðsyn til þess að efla matbjörg þjóðarinnar þannig að hún gæti losað um vinnuafl til annarra starfa í verka- skiptu samfélagi - brotist fram til sjálfstæðis. Hcimildir: 1. íslensk orðabók, 2002, bls. 101. 2. Þorvaldur Thoroddsen: Lýsing ís- lands. III. 1919, bls. 106. 3. Fussell, G.E.,: The Farmers Tools. 1985, Bls. 66-67. 4. Guðmundur Ólafsson: Andvari, 1. 1874. Bls. 139-164. 5. Bjom, Cl., ofl.:, Det danske land- brags historie. I. 1988. Bls. 280- 284. Freyr 5/2004 - 5 |

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.