Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.2004, Blaðsíða 18

Freyr - 01.06.2004, Blaðsíða 18
til beta- og kappa-kaseíngerða í mjólk. Eins og fram kemur í töflunni hér að ofan bera íslensku kýrnar af, að því er varðar hagstæða sam- setningu mjólkur. Erfðavísar, sem framleiða ákveðin eftirsótt prótín í mjólk, eru miklu algengari í ís- lenskum kúm en í erlendum. Þetta heíúr áhrif á hvort tveggja, betri mjólk vegna heilbrigðis og betri mjólk vegna ostagerðar.5 Séu teknar arfgerðimar betaka- seín A1A2 og A2A2 og kappaka- seín AB og BB þar sem þær koma tyrir saman (feitletrað í töflu) þá em 84% af íslenskum kúm með þessar arfgerðir. Til samanburðar eru fmnskar Ayrshire kýr, rauðar sænskar og amerískar Holstein kýr með minna en 20% af þessum arf- gerðum að meðaltali. Kúalitir Litir á íslenskum kúm era ijöl- breyttari en í flestum öðram kúa- kynjum. Veldur þar mestu að Is- lendingar hafa aldrei aðhyllst þá stefnu í bútjárrækt að rækta kúa- kyn sín öll með einum eða fáum litum. Hér hafa menn haft auga fyrir fjölbreyttum litum og kálfar af sérstæðum litum hafa oft feng- ið að lifa litarins vegna. I íslenskum nautgripum era til sex aðallitir. Þeir era svart, kolótt, rautt, bröndótt, sægrátt og grátt. í þessum gripum era tvö grannlitar- efni, annað svart en hitt rautt. Allir litir eru afleiðing þessara litarefna, ýmist sem hreinir litir, samsetning lita eða myndbreyting þeirra. Svartur litur í nautgripum getur verið ýmist ríkjandi eða víkjandi. Sé hann ríkjandi, ríkir hann yfir bæði kolóttu og bröndóttu. Þegar hann er víkjandi leyfir hann kol- óttum lit að koma fram og brön- dótti erfðavísirinn fær þá að sýna sig, ef hann er fyrir hendi, og breytir kolóttu í bröndótt.6 I nautgripum era til tvær gerðir af litamynstrum, annað kolótt en hitt svart (ekkert mynstur). Þessi litamynstur koma eingöngu fyrir í víkjandi svörtum kúm. I íslenskum kúm era auk þess til tvær gerðir af tvílit. Önnur gerðin er blanda af lit og hvítum skellum á skrokk. LFndir þessa gerð fellur skjöldótt, sem er víkjandi fyrir einlitu. I hinum tvílitnum eru þrjár gerðir, allar ríkjandi yfir einlitu. Fyrsta gerðin er með hvítan lit á haus (húfótt, hjálmótt), önnur gerðin með hvítt eftir hrygg og niður á síður (hryggjótt), og sú þriðja með hvítan skrokk en dökk eyru og granir (grönótt).7 Nautgripir, sem hvorki eru með víkjandi eða ríkjandi tvílit, era með erfðavísi fyrir einlitu sem ríkir yfir skjöldóttu en víkur fyrir húfóttu/hjálmóttu, hryggjóttu og grönóttu. Islenskar kýr era fremur smá- vaxnar miðað við helstu mjólkur- kúakyn heimsins. Þær mjólka þó vel miðað við stærð og mjólk þeirra hefur góða samsetningu, bæði að því er varðar vinnslueig- inleika og hollustu eins og að framan er getið. Hestar Uppruni Hesturinn kom hingað frá Noregi með landnámsmönnum um 870. Hann er rnikið skyldur Hjaltlands- hestinum og Nordland/Lyngen hestinum í Norður-Noregi. Auk þess er hann allmikið skyldur mongólska hestinum. I þeinr hesti finnst skeið, sem á mongólsku er kallað dshoroo (frb. dsjoró) og ákveðin gerð af tölti (saivar á mongólsku).8 Islenski hesturinn er síðan einnig nokkuð skyldur norsk- um Fjarðahesti, norskum brokkara og Dalahesti. Hann er hins vegar lítið skyldur bresku kynjunum Thoroughbred (enska veðhlaupa- hestinum) og Standardbred.9 Það er þekkt að Norðmenn lögðu Hjaltlandseyjar undir sig ná- lægt árinu 800 og fluttu þangað með sér bæði hross og sauðfé. Þeir Hestalitir 118 - Freyr 5/2004

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.