Freyr

Årgang

Freyr - 01.06.2004, Side 11

Freyr - 01.06.2004, Side 11
1. tafla. Forvarnargildi nokkurra málma í jarðvegi sam- kvæmt þýskum jarðvegsverndarlögum. Mælieining mg/kg (6). Efni Sandur Méla Leir Blý (Pb) 40 70 100 Kadmíum (Cd) 0,4 1,0 1,5 Kopar(Cu) 20 40 60 Nikkel (Ni) 15 50 70 Króm (Cr) 30 60 100 Kvikasilfur (Hg) 0,1 0,5 1 Sínk (Zn) 60 150 200 Taka skal tillit til sýrustigs á eftirfarandi hátt. Ef sýrustig (pH) er innan við 6 skal fyrir kadmíum, nikkel og sínk nota forvarnargildi sands fyrir mélu og forvarnargildi mélu fyrir leir. Ef sýrustig er innan við 5 skal fyrir blý nota forvarnargildi sands fyrir mélu og forvarnargildi mélu fyrir leir. hættu á blýmengun er trúlega ein- göngu að vænta þar sem blýi, t.d. rafhlöðum eða málningu, sem inniheldur blý, hefur verið fargað eða þar sem blý berst í jarðveg í miklu magni af öðrum ástæðum. Kadmíum (Cd) I jarðskorpunni er meðalmagn Cd 0,1 mg/kg og í basalti 0,15 mg/kg (6). I íslensku bergi eru 0,2 - 0,4 mg/kg og þar með má segja að grunngildi fyrir kadmíum sé allhátt hér á landi. í sjávarseti hafa hærri tölur, allt að 0,7 mg/kg, gre- inst (5). I nýlegri grein um magn nokkurra þungra málma á Islandi fengust enn hærri tölur í undirlagi jarðvegs, að meðaltali 0,35 mg/kg en mest 1,02 mg/kg (3). Þetta er tvisvar til þrisvar sinnum meira en vænta mátti ef miðað er við fyrri greiningar. Kadmíumtölur fyrir íslenskan jarðveg sýna að magn þess er á mjög breiðu bili og að við náttúr- legar aðstæður hafa fundist tölur sem eru yfir forvamargildum í Evrópu. Það kemur vissulega nokkuð á óvart, en þessi sýni eru tekin langt frá svæðum þar sem borið hefur verið á eða úrgangi fargað. Einnig hafa há gildi fund- ist í mosa, sem að öllum líkindum má rekja til hás Cd magns í bergi og þar með í jarðvegi. Kadmíum er mjög eitrandi og er ekki eins fast bundið í jarðvegi og aðrir þungir málmar. Það er því mjög áríðandi að halda magni þess lágu í umhverfmu og ekki þarf nema sáralítið af því til að það verði of mikið. Samkvæmt þýskum reglugerðum mega t.d. ekki berast meira en 6 grömm af Cd á hektara á ári. Kadmíum er notað í margs kon- ar iðnaðarvörum, í plasti og litar- efnum, en sennilega er það þekkt- ast í litlum rafhlöðum. Það er einnig í hjólbörðum og nálægt miklum umferðaræðum hefur kadmíum safanst upp næst vegun- um. Það er einnig örlítð kadmíum í fosfóráburði, var u.þ.b. 0,2 g Cd/kg P (10) og berst með honum þar sem tilbúinn áburður er borinn á. Þar sem 20 kg P voru borin á fylgdu þá 4 grömm af Cd en 6 grömm þar sem 30 kg af fosfór voru borin á. A síðari árum hefur kadmíumsnauður áburður verið fluttur inn. Bjama Helgasonar (1) bar sam- an tilraunareiti með og án fosfór- áburðar (3. tafla). Það er athyglis- vert að munurinn er verulega meiri í mýrartúninu en í sandtún- inu og má það væntanlega setja í samband við að mýrin er léttara í 2. tafla. Blý (Pb), Kadmíum (Cd) kopar (Cu) og Sínk (Zn) í grunnum úthagajarðvegi (0-5 cm dýpt) og samsvarandi undirlagi á ýmsum stöðum á óræktuðu landi (mg/kg). (3). Málmur Undirlag Jarðvegur 0-5 cm meðaltal meðaltal hæsta og lægsta gildi hæsta og lægsta gildi mg/kg mg/kg Blý 4,7 5,8 3,0-6,4 2,8- 11,3 Kadmíum 0,35 0,63 0,20-1,02 0,18- 1,56 Kopar 75 97 57 - 128 52 - 144 Sínk 63 83 36-85 64 - 124 Freyr 5/2004 - 11 |

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.