Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.2004, Blaðsíða 39

Freyr - 01.06.2004, Blaðsíða 39
Mynd 6. Meðalþéttni selens (Se) (mikrógrömmx)/kg þurrefni ± staóalfrávik) í heyi frá 18 riðulausum bæjum (flokkur 2) („scrapie free”), fjárskiptabæjum (flokkur 3) („scrapie prone”) og riðusýktum bæjum (flokkur 4) („scrapie affl- icted). Einstök há gildi voru i heysýnum frá bæjum í öllum flokkum, einkum í sýnum frá riðusýktum bæjum, en marktækur munur var ekki á meðalgild- um (P > 0,05) (mynd einnig ætluð til birtingar í grein i íslenskum landbúnað- arrannsóknum). x) mikrógrömm er á ensku oftast ritað pg. marktækt á síðari hluta með- göngu. Því má samkvæmt fram- ansögðu einkum búast við selen- skorti síðla vetrar í lembdum ám eða kelfdum kvígum. Við slíkar aðstæður minnkar samhengið (korrelation) milli selenþéttni í blóði og GPO virkni í blóðinu. GPO virknin er þá oft hlutfalls- lega meiri en nemur þéttni selens og er fremur mælikvarði á þéttni selens, er var í blóðinu 4-6 vikum áður. Við bendum því á, að vara- samt getur verið að nota GPO virkni í blóði gagnrýnilaust sem mælikvarða á selenskort í búfé. Þakkarord Rannsóknir þessar eru hluti af evrópsku samstarfsverkefni undir yfirstjórn prófessors Kristínar Völu Ragnarsdóttur, Háskólanum í Bristol, Englandi. Rannsóknim- ar voru unnar í nánu samstarfí við embætti yfirdýralæknis. Við vilj- um einnig þakka dýralæknum fyr- ir greið svör við spumingum okk- ar. Við stöndum í mikilli þakkar- skuld við bændur og búandlið á þeim tugum býla, þar sem við höf- um tekið sýni, fyrir góðar móttök- ur, aðstoð við töku sýna og svör við fyrirspumum. Frú Jóhönnu Edwald em færðar þakkir fyrir vinnu við frágang handrits, Ottari Kjartanssyni fyrir töku mynda og tölvuvinnslu þeirra og Ólafí Vals- syni fyrir gerð korts. Molar Skortur á rúnings- MÖNNUM í ÁSTRALÍU Sauðfjárbændur í Ástralíu, sem einkum leggja áherslu á ull- arframleiðslu, standa nú and- spænis miklum skorti á rúnings- mönnum. Sums staðar í landinu verða bændur að bíða eftir rún- ingsmönnum mánuðum saman, en starf þeirra þykir bæði erfitt og illa launað. Áður fyrr var litið á starf þeirra rómantískum augum og hreysti þeirra lofuð. Nú yfirgefa rúnings- menn það í stórum stíl. Léleg laun, erfið vinnuskilyrði og nei- kvæð sýn á framtíðina ráða þar mestu. Á áratugnum 1980-1990 störfuðu 30 þúsund manns við rúning í Ástralíu, en nú eru þeir innan við 7000. Rúningur er ein erfiðasta vinna sem fyrirfinnst í Ástralíu. Það tekur á kraftana langan vinnudag að fást við fé sem streitist á móti. Æfður rúningsmaður rýir 200 fjár á dag og uppsker viðvarandi verki í axlir, hnakka og bak. í Ástralíu eru 45 þúsund fjár- bændur og í landinu eru 130 milljón fjár. Meðalaldur rúningsmanna er kominn upp í 40 ár og brýnt er að yngja upp hópinn en flestir hinna eldri segjast ekki lengur ráða við starfið. Þetta veldur því að erfitt er fyrir skóla, sem mennta rúnings- menn, að fá nýja nemendur. Formaður félags sauðfjár- bænda í Ástralíu, Dale Park, bendir á að rúningsmaður þurfi að vera í toppþjálfun eins og af- reksíþróttamaður. Kindin vegi um 65 kg og að fást við 200 slíkar á dag er eins og að hlaupa mara- þonhlaup. Áður var unnt að ráða rúnings- menn frá Nýja-Sjálandi, þar sem rúningsvertíðin er styttri, en nú hefur hið sama gerst þar að skortur er á rúningsmönnum. Að baki þessa alls liggur síðan það að afkoman í sauðfjárrækt er léleg og greiðslugeta búgrein- arinnar leyfir ekki hærri laun rún- ingsmanna. (Landsbygdens Folk, nr. 21/2004). Freyr 5/2004 - 391

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.