Lesbók Morgunblaðsins - 24.02.2001, Page 5

Lesbók Morgunblaðsins - 24.02.2001, Page 5
TAKTU - LESTU Orrustan við Hastings, hluti af Bayeux-veggteppinu frá 11. öld. Ráðhúsið í Bayeux. Boðun Maríu (hluti) eftir Angelico, 1434, Musée diocésain, Cortone. "u«»nnanu u- M | ■ ftmflaéuoii nwfiun Enfttf bwtlfii e % / v"\tcfirirpa-!rn>^óTgkíftíginiijMprt A)Y\)uct :síjgj[01ril nrtaul«8«r V»u lunmiftfíutðitv h /"arv l'm K’ðaá línsluu' Ijulu np' iwvuilijji -Vj | »4 fctn cclugu <u4,u jjiuböc- ömjrf líT I !•* nwú ttlápélte lo|i öu*te ftrduílUii c I befníf ftiHitu tf^fllTör <tr 1^1 pd ul í33Í,*wArVd!pu nuvtÍM cirpuö feauf $ d»; fltui :sti ptt’? 'i.U; bclln Fall Ólafs konungs, úr Flateyjarbók, handrit frá 15. öld. „TOLLE - LEGE“, Opinberun heilags Ágúst- ínusar, málmrista eftir Philipe de Champaigne. „Hlutverk orbanna var einfalt, pau veittu upplýsingar; útskýrðu, en drógust ekki inn í málverkin að öðru leyti. “ dæmis í myndum af boðun Maríu, sem var afar vinsælt myndefni, en þær myndir sýna heim- sókn engilsins til Maríu, þegar henni er boðað að hún muni eignast son Guðs. Simone Martini, ítalskur málari, málaði eina slíka árið 1333. Um er að ræða stóra mynd sem er máluð á tréplötu með temperalitum. Þar má sjá hvernig orð eng- ilsins berast úr munni hans til Maríu sem hallar höfði eins og hún ljái honum eyra. Enginn borði aðgreinir orðin frá myndfletinum, þau eru hluti af myndinni og segja má að þau hafi bein áhrif á myndbygginguna. Þetta er ekki ósvipað teikni- myndasögum í dag, þar sem orð söguhetja eru oft virkur hluti af myndinni. Nákvæmlega einni öld síðar má sjá svipað gerast í mynd Fra Ang- elico, annars ítalsks málara, sem einnig málar boðun Maríu. En hér á samtal sér stað, „sacra conversazione" þar sem orðin berast frá engl- inum til Maríu og hún svarar. Orð engilsins, sem er vinstra megin á myndinni, eru lesin frá vinstri til hægri. Það er svo greinilega ætlast til að svar Maríu lesist frá henni til engilsins, þau eru á hvolfi, svo hægt sé að lesa þau frá hægri til vinstri. Engillinn svarar svo aftur, þetta er heilt, eða öllu heldur heilagt samtal þama á milli þeirra. Taktu og lesfu Á fimmtándu öld kom prentlistin til sögunnar í Evrópu og læsi jókst stórlega. Hlutverk hand- ritalýsara og skrifara varð minna. Allt í einu var kominn nýr vettvangur fyrir ritmálið og sam- tímis voru prentaðar myndir. Það er hægt að ímynda sér að með tilkomu þessa nýja miðils hafi málverkið þróast enn frekar sem hreinn myndmiðill, án leturs. Nú voru sögur Biblíunn- ar öllum aðgengilegar og því minni þörf fyrir út- skýringar á myndfletinum sjálfum. Á þessum tíma var notkun olíulita einnig að verða almenn og fjarvíddin að þróast frekar. Málverkið fékk á sig raunsæislegri blæ, aukna dýpt. Texti eins og á mynd Simone Martinis frá 1333 þegar mynd- flöturinn var enn tvívíður, var ekki lengur við hæfi. Prentaðar voru myndskreyttar bækm’, og tréristur og koparstungur með trúarlegum boð- skap mátti kaupa ódýrt, enda hægt að prenta stórt upplag eftir hverri plötu. Á einni slíkri má sjá orðin leika stórt hlutverk. Það er á málm- ristu frá 1640, eftir Philippe de Champaigne, „Opinberun heilags Ágústínusar“. Heilagur Ágústínus situr, ekki laus við áhyggjusvip, und- ir þrumandi orðum Guðs almáttugs sem berast frá himnum á áhrifaríkan hátt. „TOLLE, LEGE“ - „Taktu og lestu“. Hér sýnir letrið áhrifamátt orða Guðs, það er augljóst að þau hafa verið sögð með þrumuraust. í baðinu Málaralistin virtist einsetja sér að útrýma öllu letri og orðum af striganum á næstu öldum. Trúarleg myndefni voru enn vinsæl á sautjándu og átjándu öld, en einnig voru hversdagslegri myndefni komin til sögunnar, m.a. hjá málurum í Norður-Evrópu sem létu til sín taka, eins og Breughel, Frans Hals, Vermeer og fleiri á sautjándu öld. Ekki bjuggu alltaf orð að baki myndunum lengur, fram komu landslagsmynd- ir, kyrralífsmyndir, myndir úr hversdagslífinu. Málverkið hóf að segja sína eigin sögu, á sinn hátt, án orða, - huldra eða sýnilegra. Eina letrið sem er að finna eru áritanir málaranna, nafn eða skammstöfun úti í homi. Á átjándu og nítjándu öld var myndefni í meira mæli sótt í mannkyns- söguna og atburði í þjóðlífinu, og frægustu dæmi slíks líklega málverk Delacrobc og Goya. Franska byltingin varð mörgum dijúgt mynd- efni í lok átjándu og í upphafi nítjándu aldar. Einn þeirra var franski málarinn Jaques Louis- David, sem málaði meðal annars fómarlömb byltingarinnar. Eitt þeima var Marat, en mál- verkið af dauða hans sem málað var 1793 er afar þekkt. Marat, einn af leiðtogum frönsku bylt- ingarinnar, var myrtur. Vegna þráláts húðsjúk- dóms neyddist hann til að dvelja löngum stund- um í baði og notaði meðal annars tíma sinn þar til að sjá um bréfaskriftir og fleira. Dag einn mddist ung kona inn til hans, Charlotte Corday að nafni, með bónarbréf. Hún stakk hnífi í brjóst hans. Á mynd David deyr Marat með bréf henn- ar í hendi sér, annað bréf liggur á kassa sem gegnir hlutverki borðs, við hliðina á baðinu. Þar er mælst til þess að einstæðri fimm barna móð- ur verði greiddir fimm frankar, maður hennar hafi látist í baráttunni fyrir byltinguna. Orð bæta hér við söguna sem málverkið segir. Þau sýna Marat sem sannan baráttumann og mart- ýr, en málverkið ber sterkan svip trúarlegra verka fyrri alda. Það er svo tileinkun David sem vekur athygli, hann tileinkar Marat málverkið og skrifar svo undir áritun sina; ,ÁR TVÖ“, - eins og mannkynssagan sé að hefjast að nýju. Letur leikur því stórt hlutverk í þessu málverki, en það er algjör undantekning á þessum tíma. Það er ekki fyrr undir lok nítjándu aldar að letur í einhverri mynd fer að láta á sér kræla í málverkinu sjálfu en í byrjun þeirrar tuttugustu verður það órjúfanlegur hluti af list fjölda lista- manna. Höfundur er myndlistarmaður og rithöfundur. LESBÓK MORGUNBIAÐSINS - MENNING/USTIR 24. FEBRÚAR 2001 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.