Lesbók Morgunblaðsins - 24.02.2001, Síða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 24.02.2001, Síða 8
TÍÐARANDI í ALDARBYRJUN í þá daga varðaði svo mikiu að heimsmyndin værl „rétt“. EKKI FÆDD IGÆR EFTIR PÉTUR GUNNARSSON / EG veit ekki hver fæddi mig í heiminn, né hvað þessi heimur er, né sjálfur ég; ég er í skelfí- legri vanþekkingu um alla skap- aða hluti; ég þekki hvorki líkama minn, skilningarvit, sál mína né þennan hluta af sjálfum mér sem hugsar það sem ég mæli, sem brýtur heilann um allt sem er og sjálfan sig og er ísömu vanþekkingu um það og allt annað. Eglít ógnvekjandi víðáttur alheimsins sem um- lykja mig og er bundinn við einn afkima þessa ómælis, án þess ég viti af hverju ég er staddur hér frekar en annars staðar, né af hverju þessi stutta stund sem mér ergefíð að lifa fellur mér í skaut á þessum tímapunkti fremur en einhverj- um öðrum í gervallri eilífðinni sem kom á undan mér og þeirri sem á eftirfer. Hvert sem églít er ekkert nema óendanleiki sem umlykur þettaat- óm, þennan skugga sem staldrar við andartak oger síðan ekki meir...“ Þannig kemst heimspekingurinn Blaise Pascal að orði í Þönkum, orðabelg sem fannst að honum látnum árið 1662. Tímalaus texti sem við tileinkum okkur án fyrirhafnar. Og samt er- um við ónæm á lífsháskann sem býr á bak við sjálf orðin, á sínum tíma hefðu Þankamir verið brenndir og gott ef ekki hitnað undir höfundi þeirra líka. Aldamótaárið 1600 hafði Giordano Bruno verið brenndur á báli fyrir að halda því fram að alheimurinn væri endalaus og 1630 slapp Galileo með skrekkinn eftir að hafa étið ofan í sig snúning jarðar. Heimsmyndin var borin uppi af voldugum stofnunum ríkis og kirkju sem hundeltu heim- spekinga og heimsmyndasmiði. Með jafn sjálf- sögðum hætti og nútímaháskóli setur úrgangs- pappír í tætarann voru virðulegir háskólar Evrópu önnum kafnir við að brenna ritum sem nú teljast til burðarstoða mannsandans, Og þannig áfram upp næstu öld, þá átjándu: Diderot, Voltaire, Rousseau... flest af því sem nú er gefið út í skrautbandi er risið úr ösku. Og nítjánda öldin hafði engin vettlingatök heldur. Það voru ekki einasta byltingarmenn á borð við Marx og Engels sem voru hundeltir með sitt Kommúnistaávarp - Gustave Flaubert var dreginn fyrir dómstóla þegar hann gaf út Frú Bovary árið 1856 - Ríkissaksóknari ákærði höfundinn fyrir að draga dár að borgaralegu siðferði, hjónabandinu og trúnni. Þó keyrði um þverbak á öldinni tuttugustu í bóka- og búkabrennum fasismans. Og það sem eldurinn annaðist í fasismanum sá frostið um í stalínismanum; hinn grunni faðmur Síberíu- frerans luktist um þá sem voru á einhvem hátt málhaltir eða lesblindir á hina kórréttu heims- mynd. *** í þá daga varðaði svo miklu að heimsmyndin væri „rétt“. Við sjáum þetta reyndar enn í dag og undrumst þegar stjómvöld fjölmennustu þjóðar heims hundelta og fangelsa hugleiðslu- hópa og öndunarhreyfingar. Og rithöfundar ku enn njóta talsverðrar at- hygli í löndum múslima. Þeim mun óvæntara og undarlegra er það umburðarlyndistómlæti sem við Vestur- landabúar búum við síðastliðna hálfa öld. Hvað hefur gerst? Má lífið bara líta út eins og því sýn- ist? Er loksins komið þjóðskipulag sem getur komist af án hugmyndafræði? Ekki er það nú alveg víst. Að vísu geta menn skrifað það sem þeim sýnist, hins vegar kynni að verða annað upp á teningnum ef þeir settust í sjónvarpsstólinn. Um auga sjónvarpsvélarinn- ar fer fátt sem tmflar, ekki frekar en augu okk- ar mannanna sem em útbúin með útsmognum sjálfhreinsibúnaði. Tíðarandinn er holskeflu- miðlun sem virðist álíka tilviljanakennd og hundslappadrífa og sýnist einna helst snúast um gríðarlegt framboð á vömm sem neytand- inn þurfi að meðtaka. Ofhlæðið og síbyljan em ígildi ritskoðunar fyrri tíða. „Þorðu að vita“ var kjörorð Upplýsingarinnar. „Kærðu þig kollótt- an“ gæti verið inntak okkar tíma. *** Ætli Emil eða uppeldið eftir Jean-Jacques Rousseau sé ekki áhrifamesta uppeldisrit allra tíma, samið um miðja átjándu öld (og sam- stundis brennt). Það hefst á þessari fullyrðingu: „Allt er gott frá hendi Höfúndar alls sem er, allt fer til spillis í höndum mannanna." í þessu riti setur Rousseau sér fyrir hendur að ala upp óspilltan einstakling, kennarinn hefur algerlega í hendi sér hvað um huga lærisveinsins fer og hverju er bægt á braut. Réttum 200 ámm síðar er annar meistari á ferðinni með sinn lærisvein, Þórbergur Þórð- arson í Sálminum um blómið. Hjá Þórbergi eins og Rousseau em barnið og Guð eitt. En nú er heimurinn heldur betur kominn til skjalanna og tekur að káma út hina óskrifuðu örk. Og bamið er langt því frá að vera einber þolandi í þeim leik, það er sólgið í heiminn og eitt af meg- instefjum Sálmsins er: „Svona var nú lítið eftir af Guði í litlu manneskjunni." Hvað má uppalandinn þá segja í dag? Hann á ekki möguleika á að hemja það sem fer um bamshugann. Nútíminn er holræsi sem stend- ur í gegnum hvem einstakling. Aðstandandinn getur í hæstalagi virkað sem dælustöð sem íreistar að veita ófögnuðinum út í hafstraum- ana, þótt sjálf ströndin verði aldrei með öllu frí við ófögnuð. „Þekktu sjálfan þig“ var kjörorð véfrétta- rinnar í Delfí. „Flekaðu sjálfan þig“ gætu verið einkunnarorð vefsins. *** Mannfræðingurinn franski Claude Levi- Strauss fór um regnskóga Brasilíu á fjórða tug síðustu aldar og skrifaði um það rómaða bók, Tristes tropiques (Regnskógabeltið rauna- mædda) og fjallar um nokkra ættbálka á stein- aldarstigi sem hann leitaði uppi og bjó með í rannsóknarskyni. Þeir höfðu dvalið á bak við heiminn allar götur frá því í árdaga og uppgötv- uðust ekki fyrr en á öndverðri 20. öld þegar brotist var í að leggja símalínu þvert í gegnum regnskóginn. í kjölfar símamanna fylgdu svo trúboðar með sín fagnaðarerindi. Og sjá, hér var komið mannkyn í allri sinni nekt, bókstaflega, kviknakið fólk, í hæsta lagi hulstur sem karlpeningurinn huldi með liminn. Fólk án ritmáls, fólk án sögu, en bjó samt við mynd af heiminum, sem þegar hún var fram- kölluð reyndist í senn fjölbreytileg, fáguð og flókin. Sumar myndirnar koma jafnvel kunn- uglega fyrir sjónir, t.a.m. heimsmynd Mbaya ættbálksins sem gengur út á að þeir séu kjörnir til að ráða yfir mannkyninu. Umvafðir þrælum Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson dýfa þeir ekki hendi í kalt vatn og styðjast við upprunagoðsögu sem hermir frá því að þegar guð skapaði manninn hafi hann útdeilt hverjum og einum ættbálki sínum starfa: einn skyldi stunda akuryrkju, annar veiðar... Þegar öllum störfum hafði verið ráðstafað kom Mbaya fólkið í Ijós þar sem það hafði orðið eftir á botninum í holu tré. Þá var engin iðja eftir nema kúga og arðræna hina. Og það gerðu þeir. Þetta samfélag sýndi ógeð á tilfinningum sem vant er að meta mikils, til dæmis fullkominn við- bjóð á getnaði. Fóstureyðingar voru eðlilegasti hlutur í heimi og viðhald hópsins fór fram með ættleiðingum og ránsferðum í því skyni að verða sér úti um böm. Og Mbaya fólkið var eins og þrautræktaðir kaffihúsaspekingar í nútímanum: það hafði andstyggð á náttúrunni. Bororo-fólkið hinsvegar var gersamlega heillað af gleraugum, mannfræðingurinn tók birgðir af gleraugnaumgjörðum með sér og hafði í vöruskiptum fyrir greiða. Og áður en við var litið gekk heill ættbálkur í Amason alsæll um með gleraugnaumgjarðir sem hann taldi vemda sig gegn illum öndum. Hjá Nambikwara fólkinu prófaði gesturinn ítrekað að láta þeim í té blöð og skriffæri í von um að þeir myndu teikna, en þeir sýndu enga viðleitni í þá átt, í hæsta lagi að þeir hermdu eft- ir hinum siðvædda manni sem var sískrifandi og nótandi hjá sér í vasakompur og tóku að búa til endalausar öldur á bréfsefnið. Uns höfðinginn ofmetnaðist og fór að svara spumingum mann- fræðingsins með því að pára öldur sem hann var jafn ákafur og mannfræðingurinn að reyna að fá botn í. A endanum var hann farinn að þykjast lesa upp af blaði allskonar fyrirmæli sem nöldr- andi undirsátar hans áttu að fara eftir og loks telja upp vaming sem mannfræðingurinn átti að tína upp úr farangri sínum honum til handa. Þama hafði hann náð í eitt frumglæði rit- málsins: drottnunina. Að síðustu var hann orðinn svo óþolandi að fólkið hans yfirgaf hann og hann þurfti að búa til goðsögu um að hann hefði fokið út í skóg og fallið í dá, en þegar hann kom til sjálfs sín á ný var hann búinn að gleyma ritmálinu. *** Börn náttúrunnar sem Claude Levi-Strauss heimsótti á fjórða áratugnum vom á síðasta snúningi. Siðmenningin og hjálpræðið sem símamenn og trúboðar vildu færa þeim flutti þeim í raun sóttkveikjur sem þeir áttu ekki varnir gegn og gerðu á endanum út um þá. En við, eigum við bóluefni gegn innantóm- leikanum? Höfundur er rithöfundur. 8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/USTIR 24. FEBRÚAR 2001

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.