Lesbók Morgunblaðsins - 24.02.2001, Side 11

Lesbók Morgunblaðsins - 24.02.2001, Side 11
Ljósmynd/Pétur H. Ármannsson Karlagata 14-16, eina húsið sem reis samkvæmt upphaflegum tillögum Einars Sveinssonar og Valgeirs Björnssonar. Öll húsin í Norðurmýri eru steinsteypt. _____________________________________________________________________________________________________ Ljósmynd/Péhjr H. Ármannsson Mánagata 9-15, dæmigerð Norðurmýrarhús eftir skipulagshöfund hverfisins, Einar Sveinsson. Horngluggar og áhersla á lárétta línu er eínkennandi. Karlagata 2-4 eftir Hafliða Jóhannsson. Sýnir frávik frá upphaflegum skilmálum. /óí xyrijrj é~. Ljósmynd/Pétur H. Ármannsson Gunnarsbraut, götumynd í Norðurmýri. Steyptir veggir umhverfis lóðir einkenna Noröurmýri. íbúða hús í öðrum hlutum þess. Þau áttu að vera hæð og ris. Það voru húsameistari Reykjavíkurbæjar Einar Sveinsson og bæj- arverkfræðingurinn Valgeir Björnsson sem gerðu þessar tillögur. Skipulag hverfisins er á margan hátt líkt hugmyndum Guðmundar Hannessonar um skipulag íbúðabyggðar. Staðsetning húsa á lóð er í anda tillagna hans. Stóri munurinn er að í skipulagi Einars og Valgeirs er ekki að fínna bogadregnar götur og það sem kalla má myndræn eða „pitt- oresk“ göturými heldur er um að ræða einfalt hnitakerfi. Flestar göturnar liggja frá vestri til austurs og eru stuttar miðað við það sem tíðkaðist í skipulaginu frá 1927. Það gefur hverfínu samþjappað útlit og auðvelt er að fá yfirsýn yfír það. Að mínu mati er skipulagið í góðu jafnvægi, ef svo má að orði komast. Það er einfalt og í mannlegum hlutföllum og því svipar á margan hátt til þess sem tíðkaðist erlendis á sama tíma. Eitt af sérkennum Norðurmýrarinnar, og fleiri hverfa frá þessum tíma eru steyptir veggir umhverfis lóðirnar, sérstaklega þær sem liggja norðan götu. Þessir veggir af- marka á skýran hátt yfirráðasvæði íbúanna og göturýmið. En eins og nafn hverfisins gef- ur í skyn þá reis það í mýri og hefur jarðveg- urinn sigið allnokkuð frá því að hverfið var byggt fyrir rúmum 60 árum. Veggirnir hanga því sumir í lausu lofti. Þeir sem eitt sinn gáfu hverfinu virðulegan blæ eru í dag margir illa farnir og mosavaxnir. Meðal þess sem gerir svæðið áhugavert er að þar finnast hús eftir flesta þá arkitekta sem voru starfandi í landinu á þessum tíma. Til dæmis Guðjón Samúelsson, Gunnlaug Halldórsson og Einar Sveinsson sem teiknaði fjölda húsa í hverfinu. Á þessum tíma voru þó arkitektar í minnihluta þeirra sem teiknuðu íbúðarhús á íslandi. Algengara var að slíkt væri í höndum húsasmíðameistara og múrara sem sumir hverjir höfðu sérmenntun á sviði húsateikninga. Húsin í Norðurmýrinni eru ekki hvítur, heroiskur módernismi eins og sá sem þeir Bauhausmenn og Le Corbusier stóðu fyrir. Heldur er hér um að ræða einföld hús, eins konar „prét a porter“ íbúðarhús- næði fyrir almenning. Skilmálum breytt I upphafi áttu húsin að vera ein hæð og ris, einungis eitt hús í hverfinu var byggt sam- kvæmt þeirri teikningu, Karlagata 14-16. Það voru þeir Einar Sveinsson og Valgeir Björns- son sem teiknuðu húsið. Þegar litið er í gjörðabók byggingarnefndar Reykjavíkur frá þessum tíma kemur í ljós að sótt var um leyfi fyrir mun fleiri slíkum húsum. Skipulagsskil- málarnir buðu upp á að húsin mættu vera hærri og ákváðu húsbyggjendur að notfæra sér það. Þeirra á meðal voru eigendur hússins við Karlagötu 2-4. Það var húsasmíðameist- arinn Hafliði Jóhannsson sem gerði breyt- inguna, sem á blaði er einföld en skipti sköp- um fyrir útlit hússins og þegar fleiri fylgdu í kjölfarið breyttist ásýnd hverfisins í heild frá því sem upphaflega var ætlunin. Ástæður þess að menn vildu hærri hús hefur líklega verið þörf þeirra fyrir meira pláss. Með þess- ari breytingu mátti fá eina íbúð til viðbótar án mikils tilkostnaðar sem var mikilvægt í þeirri kreppu sem ríkti í landinu. Þessa gerð af hús- um má finna víðar um bæinn, til dæmis í hverfi verkamannabústaða sem reis á Rauð- arárholti. Við Meðalholt í Reykjavík má sjá hús eftir húsameistara ríkisins frá árinu 1939. Það leynir sér ekki að þar er um sterk áhrif frá Norðurmýrarhúsum að ræða. Einkenni í stíl Það sem helst einkennir húsin í Norð- urmýrinni er að þau eru öll úr steinsteypu, steinsteypan hafði á þriðja áratugnum náð fótfestu sem byggingarefni hérlendis. Steyp- an var þægilegt efni í landi þar sem timbur var af skornum skammti. Einungis þurfti að flytja sementið inn það var síðan blandað með íslenskri möl og vatni. Efnið hentaði veð- urskilyrðum hér og varð fljótt vinsælasta byggingarefnið. Menn náðu góðum tökum á efninu og gátu notað það í margt eins og sjá má á mörgum handriðum, garðveggjum og dyraskyggnum í Norðurmýrinni. A næstum 70 árum hefur hún þó látið nokkuð á sjá. Fyrst eftir að menn fóru að nota stein- steypu til húsbygginga hérlendis lentu þeir í nokkrum vandræðum með húðun hennar, múrhúð loddi illa við og vildi springa. Sömu- leiðis þótti litur hennar ljótur og var stundum talað um að húsin líktust helst drukknuðum rottum. Hægt var að bæta úr því með máln- ingu á nokkurra ára fresti. Áðrar aðferðir voru notaðar, svo sem hraunun og perluákast. Það var húsameistari ríkisins Guðjón Samúelsson sem þróaði, í tengslum við bygg- ingu Þjóðleikhússins árið 1933, nýja aðferð við að húða húsin, svokallaða steiningu. Þar var blöndu af fínt muldum steintegundum, til dæmis kvartsi, hrafntinnu eða silfurbergi, kastað í múrhúðina og gaf það húsunum dökkan lit. Þar sem erfitt var að nálgast þess- ar steintegundir var farið að nota skeljasand í sama tilgangi. Helsti kostur steiningarinnar er að liturinn breytist lítt þótt það rigni og hún er endingargóð og svo til viðhaldsfrí sam- anborið við málningu. Nánast öll húsin í Norðurmýri fengu þessa meðferð í einhverri útgáfu og gerir það þau hvert öðru lík. Ef þau hefðu til dæmis verið máluð hvert í sínum lit hefðu sérkenni hvers húss orðið sterkari. Þakkantar húsanna setja sterkan svip á Norðurmýrina, þakkanturinn var steyptur og náði um 40 cm út fyrir veggi hvers húss. Þak- rennan var grópuð beint í steypuna án þess að hún væri klædd með járni. Til að byrja með reyndist þetta vel en svo fóru þakkant- arnir að láta á sjá undan regnvatninu og hafa þeir nú margir verið fjarlægðir. Það breytir mikið útliti húsanna þar sem steypti kant- urinn var eitt helsta einkenni þeirra. Valma- þakið var algengasta þakgerðin í hverfinu, þökin voru lág og þakkanturinn skyggði að verulegu leyti á þau. Ásamt gluggasetning- unni eykur þetta vægi láréttu línunnar í hús- unum. I dag hafa mörg húsanna misst þetta einkenni því þökum þeirra hefur verið um- turnað. Birtingarform funksjónalismans í Norður- mýrinni eru margvísleg, horngluggar, áhersla á lárétta línu með til dæmis gluggasetningu. Engin áhersla er á sökkul húsanna. Einfald- leikinn er allsráðandi, sérstaklega í elstu hús- unum. Segja má að húsin í hverfinu hafi enga sérstöðu ef litið er á íslenskan funksjónalisma í heild, þau eru dæmigerð. Þau eru undir áhrifum frá því sem þegar hafði verið byggt í bænum og áhrifa frá þeim gætir í því sem síð- ar var byggt. Leiða má að því rök að þróun funksjón- alismans í íbúðarhúsum fyrir almenning sé með svipuðum hætti hér og á Norðurlönd- unum. Utbreiðslan var hröð og það voru ekki einungis menntaðir arkitektar sem teiknuðu funkishús. Trésmíðameistarar, múrarar og jafnvel óbreyttir verkstjórar settust niður og teiknuðu hús sem bera einkenni funksjón- alismans, og setti þessi byggingarstíll mark sitt á stóra hluta borgarinnar langt fram á sjötta áratuginn. Greinin er unnin upp úr fyrirlestri um mag- istersritgerð í listfræði sem höfundur er að skrifa við Háskólann í Lundi í Svíþjóð. Höfundur er listfraeðingur og starfar við byggingarlistardeild Listasafns Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum. I- I LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 24. FEBRÚAR 2001 1 1

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.