Lesbók Morgunblaðsins - 24.02.2001, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 24.02.2001, Blaðsíða 13
furt og í því sem ég kalla þriðja fasann, hef ég áttað mig á því að ég þurfti að taka mér hlé til að endurskoða sköpunarvinnu mína. Það var mín eigin ákvörðun að draga mig í hlé og ég var svo lánsamur að hafa efni á slíkum „lúxus“. Ég nefni mína eigin reynslu vegna þess að hún er ofurlítið dæmi um hina fullkomnu þroskaleið fyrir skapandi listamann. Að fá tækifæri til að gera mistök í fyrsta fasanum, njóta síðar stuðnings áreiðanlegs, skapandi umhverfis og geta að síðustu dregið sig í skapandi hlé til að safna nýjum kröftum. Við verðum að finna leiðir til að gera dansskáld- um kleift að þroskast jafnt og þétt. Viljum við að eitthvað dafni verðum við að gefa því breiðan grundvöll, gefa því tíma og búa til skipulag sem styður uppvöxtinn. Ella gefum við röng skilaboð um að „draumur" hvers hæfileikaríks, ungs dans- skálds sé að ganga til 'liðs við stofnanirnar eins fljótt og kostur er og reyna að verða sér úti um fasta atvinnu. Áfram veginn Flest okkar dansskáldanna, meira að segja þau sem eru af minni kynslóð, bjuggum við ákaflega kúgandi og afturhaldssama dans- kennara sem hafa tekið við kynslóð eftir kyn- slóð. Árum saman hefur dans verið kenndur á mjög kerfisbundinn og stereótýpiskan hátt sem stóð í vegi fyrir samskiptum. Við tjáðum okkur með líkömunum og var þess vegna sagt að halda kjafti og dansa. Kerfið allt var hvetjandi fyrir samkeppni en letjandi fyrir samskipti og samvinnu. Þessu kerfi verðum við að breyta. En kerfið er íhaldssamt og það endurnýjar sig stöðugt. Það kúgar þig og þess vegna verður næsta kynslóð einnig kúguð. Einhver verður að stöðva þetta og ég treysti því að ný kynslóð sem þegar hefur öðlast reynslu af annars konar þjálfun verði til þess. Þó að okkur kunni að greina á um ýmislegt ættum við að reyna að yfirstíga ágreiningsefnin og snúa okkur að gagnlegum hlutum. Það felur í sér að taka þátt í jákvæðri samræðu, sætta sig við það sem greinir okkur að og læra að hlusta hvert á annað. Við þurfum að leysa ágreiningsefni okkar svo við getum staðið sem órofa heild þegar vanda ber að höndum. Þá getum við barist íyrir hagsmunum dans- listarinnar. Á krepputímum þegar sífellt minna fé er varið til menningarmála einbeitum við okkur að fjáröflun og kraftar okkar fara að mestu í það að komast af. Sjónarmið listarinnar fara oftast forgörðum í umræðunni á svona tímum. Ég sé marga sem voru að tjá sig um listina fyrir fáeinum árum en eru nú orðnir að örmagna stjóm- endum sem eru að reyna að láta stofnanir sín- ar komast af. Peningapælingar eru orðnar að ofboðslegri þráhyggju. Maður fer með hugmynd á fund einhvers og það fyrsta sem viðmælandinn segir er: „Hvað kostar þetta?“ Ef nú aðeins hann/hún hefði byrjað á að segja: „Sestu hjá mér, látum okkur dreyma fyrst. Látum okkur síðan sjá hvort við getum framkvæmt þetta, en tölum fyrst saman um fagurfræðileg efni.“ Ég ætla að Ijúka máli mínu á að nefna nokkuð sem við gleymum oft en snertir þó kjarnann í starfi okkar. Það eru áhorfendur. Dansinn er oft talinn seinasta listgreinin. I mínum huga kemur hann fyrst. Getum við fengið áhorf- endur til að trúa því líka? Við ættum að reyna að stækka áhorfendahópinn án þess að glata eiginleikum rannsókna okkar. Við ættum að leita uppi nýja áhorfendur; í skólum, á vinnu- stöðum, og við ættum að halda okkar eigin vinnustöðum gagnsæjum og aðgengilegum. Ég held að þegar við lítum um öxl yfir menningarsögu aldarinnar munum við furða okkur á „sigri“ módernismans og viðurkenn- ingu hins óhlutbundna í öllum listgreinum o.s.frv. En það er líka hafið yfir allan efa að hin eiginlega fjöldamenning, sú sem fangaði æskusálir okkar var popp- og rokkmenningin. Ef við nú ýttum uppskafningshætti okkar og yfirlæti til hliðar, gætum við þá ekki náð til þessa fólks, gætum við þá ekki reynt að kveikja undrun þess með okkar listgrein? Orðlaust eðli sjálfs dansins stendur mjög ná- lægt orðlausri nálgun tónlistarinnar, sem tengir þessar listgreinar og gerir þær að- gengilegar fyrir stóran áhorfendahóp með mismunandi menningarlegan bakgrunn. Við höfum líka reynslu af þessu sem dansskáld þar sem okkar menningannarkaður er ákaf- lega stór og gefur færi á spennandi leik- ferðum og afar auðugum samskiptum þvert á öll pólitísk landamæri. Atvinna okkar er ákaf- lega falleg. Við skulum því gæta hennar vandlega. Þýðing: Arni Ibsen Höfundur er portúgalskur danshöfundur sem mun frumsýna verk sitt með íslenska dansflokknum 3. mars nk. ÞÝÐANDI: GAUTI KRISTMANNSSON HANS AAAGNUS ENZENSBERGER (f. 1929) VALD VENJUNNAR Venjan gerir villuna fagra. Christian Fiirchtegott Gellert I Venjulegt fólk hefur venjulega engan áhuga á venjulegu fólki. Og öfugt. Venjulegu fólki finnst það óvenjulegt að manni finnist það óvenjulegt. Þar með er það ekki venjulegt fólk lengur. Ogöfugt. II Að maður venjist öllu, því venst maður. Maður nefnir það venjulega námsferli. III Það er sársaukafullt þegar venjubundinn sársauka vantar. Hve lúin er uppvakin lund uppvakningar hans! Einfalda manninum þarna fínnst t.d. erfíitt að vera einfaldur maður, meðan sá margslungni lætur erfíðleika sína renna líkt og kirkjukerling perlur á talnabandi. Alls staðar þessir eilífu byrjendur sem eru löngu búnir. Hatrið er einnig venja ljúf. IV Því sem aldrei verið hefur erum við vön. Það sem aldrei verið hefur er venjuréttur. Vanaskepna hittir á vanastaðnum vanabrjót. Fáheyrður atburður. Þessi venjulega þvæla. Klassíkerarnir voru vanir að nota hana í nóvellur. V Blítt hvílir venjan valdsins á valdi venjunnar. FÚRÍAN Hún fylgist með hvernig það eykst, forgengilega eykst, einfaldlega allt, við líka; hvernig það vex, yfír höfuð, vinnan líka; hvernig virðisaukinn eykst, hungrið líka; fylgist bara með, með andliti sínu sem ekkert sér, ekkert segir, engin andlátsorð; hugsai’ sitt; von, hugsarhún, óendanleg von, bara ekki fyrirykkur; henni, sem ekkert á okkur hlustar, tilheyrir allt; oghún vh’ðist ekki hryllileg; hún virðist ekki; sviplaus; hún er komin, hefur alltaf verið; á undan okkur hugsarhún; bíður; án þess að rétta fram höndina eftirhinu eða þessu fellur henni, það sem um hríð í kyrrþey, síðan ótt, ótt og títt fellur, ískaut; hún ein bíður, róleg, fúría forgengileikans. Höfundar eru þýsk Ijóðskóld. GOTTFRIED BENN (1 886-1956) VONT ER Að kunna ekki ensku þegar maður fréttir af góðri, enskri saka- málasögu sem óþýdd er á þýsku. Að sjá bjórí svækju þegar maður á ekki fyrir honum. Að fá nýja hugmynd sem maðurgetur ekki fíéttað inn í hend- ingu eftir Hölderlin eins og prófessorarnir gera það. Að heyra öldurnar gjálfra þegar maður ferðast um nætur ogsegja við sjálfan sigað þærgeri það alltaf. Mjög vont: að vera boðiðíheimsókn efrórra erí herbergjum heima á kaffíhúsinu betra og engin þörf að spjalla. Verst af öllu: að deyja ekki að sumarlagi þegar allt er bjart og skóflustungur léttar. EITT ORÐ Eitt orð, ein setning-: táknin segja oggefa líf, merking manns, en sól er kyrr, sporbaugar þegja er saman skreppur vera hans. Eitt orð - sem glansar, fíýgur, brennur, sem myndar blossa, stjörnustig - svo dimmir aftur, tíminn rennur í tómarúmi kringum mig. GUNTER GRASS (f. 1927) SJÓORRUSTA Amerískt fíugmóðurskip oggotnesk dómkirkja sökktu ímiðju Kyrrahafí hvort öðru. Prestlingurinn ungi lék á orgelið til endaloka. - Nú hanga fíugvélar og englar í lausu lofti oggeta hvergi lent. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 24. FEBRÚAR 2001 1 3*

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.