Lesbók Morgunblaðsins - 24.02.2001, Page 19

Lesbók Morgunblaðsins - 24.02.2001, Page 19
Ljósmyndin miðlar minningu frá barnæsku Ljósmynd/Pekka Turunen Stoitur bjarnaveiðimaður í stofu sinni. Ljósmynd/Eva Merx Úr portrettmyndaröð Evu Merz. % Á IjósmyndasýningUy sem stendur yfir í Norræna húsinUy setjg sex norrænir Ijósmyndarar fram ólíka túlkun ó norrænum veru- leika. HEIDAJQHANNS- DÓTTIR skoðaði verkin með sýningarstjóranum Finn Thrane. SÝNINGIN ber yfírskriftina Þrá eftir þrá og var fyrst sett upp í Berlín við opnun samnorræna sendiráðsins þar í október 1999, en Finn Thrane, for- stöðumanni og sýningarstjóra Museet for Fotokunst í Óðins- véum, var falið að móta gnmn- hugmynd sýningarinnar og velja ljósmyndir á hana. Finn lagði til að leitast yrði við að draga upp einhvers konar mynd af norrænum sam- tíma, sem miðlað yrði með einstaklingsbund- inni sýn hvers ljósmyndara fyrir sig á eigin þjóð. „Sú mynd sem hvað oftast er dregin upp af norrænu þjóðunum gagnvart öðrum, er stöðluð ímynd hins mislynda Norðurlandabúa, sem er þunglyndur og skammdegishrjáður á veturna en upptendraður á sumrin. Eg vildi taka þessa klisju til endurskoðunar og komast að því hvað norrænir ljósmyndarar séu í raun að fást við í list sinni.“ Sex Ijósmyndarar urðu fyrir valinu, þau Lars Tunbjörk frá Svíþjóð, Eva Merz frá Dan- mörku, Pekka Turunen frá Finnlandi, Pia Arke frá Grænlandi, Kristján Maack frá ís- landi og Fin Serck-Hanssen frá Noregi. Finn Thrane segir verk þessara ljósmyndara hafa heillað sig á ólíkan hátt, en í þeim megi sjá per- sónubundna túlkun hvers og eins á menningu síns heimalands, auk þess sem þrá mannsins eftir betra lífi hefur orðið að eins konar leið- arstefi á sýningunni. Fólkið í umhverfi sinu Myndaröð Svíans Lars Tunbjörk, sýnir á írónískan hátt norrænan veraleika sem ein- kennist af firringu, peninga- og neysluhyggju. „Fólkið á myndunum er uppfullt af þrá eftir efnislegum gæðum, gei-viþörfum sem aldrei verða uppfylltar. Þannig bendir Tunbjörk á að Norðurlöndin eru í engu undanþegin hnatt- væðingu og neysluhyggju hins vestræna heims, þrátt fyrir orðspor þeirra sem ímynd hins frumstæða, óspillta og náttúrulega," segir Thrane og bætir því við að Tunbjörk fjalli einnig um þrá eftir fegurð og fullkomnum heimi í ljósmyndunum. Þannig vegi verkin salt milli kaldhæðni og trega og það gæði þau mik- illi dýpt. Thrane bendir því næst á verk Evu Merz frá Danmörku, en þar er um að ræða röð svart- hvítra portrettmynda af Grænlendingum með hafflötinn í bakgninni. „Áhorfandinn ímyndar sér ósjálfrátt að hér séu myndir af Grænlend- ingum á heimaslóð, en reyndin er sú að mynd- irnar voru allar teknar í Kaupmannahöfn, rétt- ar sagt í Kristjaníu. Þar búa margir Grænlendingar sem flust hafa til Danmerkur í von um betra líf, en dagað uppi í Kristjaníu við fremur sorglegar aðstæður. „Hafið“ í bak- Kristján Maack og Finn Thrane hengja upp eina af víkingamyndum Kristjáns. Morgunbla3iS/Jim Smari NORRÆNN VERULEIKI í ■ AUGUM UÓSMYNDARA grunninum er í raun síkið sem gengur í gegn- um hverfið. Thrane segir að þótt Eva Merz snerti hér á pólitísku máli í dönsku samfélagi á beittan hátt megi einnig greina ákveðna ástúð og virðingu í garð fyrirmyndanna. „í ljós- myndunum, sem eru mjög fallegar, má sjá við- leitni ljósmyndarans til þess að færa þessu fólki aftur sjálfsvirðingu sína.“ Thrane segir Finnan Pekka Turunen ekki vera á ósvipuðum slóðum og Eva Merz í sínum myndum. Viðfangsefnið er vinir, fjölskylda og nágrannar Turunen í smábæ í norðausturhluta Finnlands. „Hér er um að ræða íbúa svæðis í Finnlandi sem á undir högg að sækja gagnvart breyttum framleiðslu- og lífsháttum nútímans. Þetta er stétt bænda sem mun hverfa innan fárra áratuga." Myndaröð Turunen heitir Upp við vegginn, og sýnir fólkið í umhverfi sínu. „Myndirnar einkennast af alúð og virðingu fyiir viðfangsefninu þó svo að þær kunni að vera kómískar á einhvern hátt,“ segir Finn og bendir á hinar skrautlegu myndir, af bjarna- veiðimanni í stofu sinni, stoltum Finna við lyft- ingar í hlöðunni sinni og stúlkum á leið á ball. Fortiðarþró og heimilislíf Grænlendingurinn Pia Arke og íslending- urinn Kj-istján Maack vinna bæði með tímann í sínum myndum, þó á gjörólíkan hátt. Ai'ke tók sínar myndir í firði á Grænlandi, þar sem hún bjó sem barn, en byggðin sem þar var er með öllu horfin. „í myndinni af staðnum endur- skapai- Arke þá minningu sem hún hefur af því að horfa til hafs út um eldhúsgluggann, og má með sanni segja að sú mynd sem blasir við áhorfandanum sé draumsýn barns,“ segir Thrane. „Arke tekur myndina með aðferð, sem er í líkingu við upphaflegu ljósmyndatæknina, en þar er viðfangsefninu varpað á stóran flöt í gegnum örmjótt gat, og getur það ferli tekið nokkurn tima. Því má sjá hreyfingu skýjanna í annars kyrrstæðu viðfangsefninu og það gefur myndinni dulúðlegan fortíðarblæ." Onnur mynd á sýningu Arke heitir Undraland og var tekin af föður hennar árið 1960 af herstöðinni í Thule. I augum barnsins var þessi herstöð eins konar upptendruð ævintýi-averöld, og birtir myndin þá sýn. Myndir Kristjáns Maack taka á óvenjulegan hátt á menningararfi okkar íslendinga og þeii-ri ímynd sem við kjósum oft að setja fram af okkur gagnvart erlendum þjóðum. Mynda- röð Kinstjáns ber titilinn Víkingar, en þar er um að ræða svarthvítar portrettmyndii- af þátttakendum hinnar árlegu Víkingahátíðar í Hafnarfirði, og eru fæstir þeirra íslendingar. Um er að ræða menn sem eru að leika víkinga, og lifa sig inn í hlutverkið af einlægni. „Ljós- myndirnar sýna okkur íróníska nálgun á ímyndasköpun Islendinga, en um leið sjáum við fullorðið fólk sem er á ákveðinn hátt að leika sér og gera draum sinn um óvenjulegt líf að veruleika," segir Thrane. Myndir Norðmannsins Fin Serck-Hanssen eru talsvert frábrugðnar öðrum myndum sýn- ingarinnar. Um er að ræða nútímalegar og lit- ríkar myndir af heimilislífi samkynhneigðra karlmanna í Ósló. „Það sem gerir þessa myndaröð svo áhugaverða er hversu laus hún er við ögrun. Þetta eru einfaldlega myndir af fólki sem er fúllkomlega sátt við sjálft sig og sitt líf. En kannski felst ögrunin einmitt í því að sýna hina samkynhneigðu sem eðlilegt fólk, án nokkurra formerkja. Myndirnar lýsa ást og hamingju en einnig þjáningu og einmanaleika, líkt og sjá má á mynd frá heimili þar sem bar- áttan við eyðni er hluti af hversdagslífinu,“ segir Thrane og bætir við að þessi myndaröð sýni kannski fólk sem tekist hefur að uppfylla j þrár sínar. „Þannig tengjast myndirnar heild- arþemanu, en á óvæntan hátt.“ Ljósmyndasýningin Þrá eftir þrá er haldin í sýningarsölum Norræna hússins og stendur hún til 25. mars næstkomandi. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 24. FEBRÚAR 2001 1 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.