Fylkir - 23.12.1997, Síða 5
FYLKIR jólin 1997
5
S
- Rætt við Pál Sigurjónsson frá Ofanleiti, forstjóra Istaks.
Páll Sigurjónsson^ frá
Ofanleiti, forstjóri Istaks,
hefur víða komið við í þróun
mála og framförum á Islandi
síðustu áratugina. Þessi
Eyjapeyi sem ólst upp fyrir
ofan Hraun fer hvergi um með
hávaða eða fyrirgangi en ráðin
hans koma eins og af
færibandi sjálfrar tímaklukk-
unnar, því hann er alltaf að og
hlýtur að hafa einstakt yndi af
atorku og árangri. Margt er
skrýtið . í henni veröld og
ugglaust hefur Páll ekki látið
sér detta í hug á æskuslóðum
Ofanbyggjara að hann ætti
eftir að vera í forustusveit
þeirra sem leiddu mestar
framfarir á Islandi á tuttugustu
öldinni. En það er hátt til lofts
og vítt til veggja frá Ofanleiti
og snemma hefur strákurinn
skólast í þeim efnum. Istak á
mikinn þátt í ímynd Islands
síðustu áratugina, því stóru
stökkin í uppbyggingu
mannvirkja á landinu eru
meira og minna tengd Istaki,
virkjanir, stórhýsi, jarðgöng,
stórt og smátt og hvarvetna
hefur verið mikill metnaður í
fyrirrúmi , gæði og öryggi.
ístak hefur einnig verið
frunrherji í að nýta íslenska
verkþekkingu varðandi
flóknustu verkfræði og það er
í rauninni ótrúlegt að svo
fámenn þjóð skuli eiga eins
rnikið úrval af tækni-
menntuðum og frambæri-
legum mönnum á heims-
mælikvarða .
Það er ef til vill ekki svo
langur vegur frá ævintýra-
veröld krakkanna fyrir ofan
Hraun og til þess að útskrifast
sem byggingarverkfræðing-
ur,en þannig atvikaðist hjá
Palla prestsins, sem ólst upp í
stórum hópi systkina á
prestssetrinu Ofanleiti þar
sem þau bjuggu Þórunn
Kolbeins og séra Sigurjón
Árnason sem var lengi prestur
í Vestmannaeyjum. Páll varð
stúdent frá Menntaskólanum í
Reykjavík árið 1952, nam
síðan byggingarverkfræði í
Kaupmannahöfn og síðar hefur
hann meðal annars numið á
vettvangi lögfræði og hagfræði
í tengslum við atvinnulífið.
Snemma á starfsferlinum vann
Páll á Verkfræðistofu Sigurð-
ar Thoroddsen, einnig hjá
Bandaríkjaher á Keflavíkur-
flugvelli, hjá E.Phil og Sön í
Færeyjum við jarðgangagerð
og einnig í Danmörku. Þá
Páil Sigurjónsson ásamt eiginkonu sinni Sigríði Gísladóttur.
Mikilvægt að treysta
unga fólkinu til
ábyrgðar
Þótt Páll sé ákaflega varkár
að eðlisfari þá er hann mjög
fljótur að taka ákvarðanir enda
ekki verkkvíðinn maður. Hann
tók til að mynda ákvörðun á
einu andartaki að fara í
verkfræðinám en ekki lögfræði
þegar hann mætti á sínurn tíma
til innritunar í Háskóla
íslands. Hann hefur aldrei séð
eftir því vali. Á þeim tíma
voru reyndar fáir sem völdu
verkfræðinám, enda þótti
nárnið langt og strangt og þá
var aðeins hægt að ljúka
fyrrihluta námsins hér heima.
Fyrir 50 árum var oft talað um
það að stúdentar væru orðnir
allt of margir og allir þessir
menntamenn myndu aldrei fá
vinnu, en önnur hefur nú
raunin orðið og þótt fjárfest
hafi verið í landinu í mörgum
fjölbreyttum þáttum hefur
engin fjárfesting borgað sig
eins vel fyrir íslenskt
þjóðfélag og menntunin. „Það
er líka mikilvægt," sagði Páll
„að treysta unga fólkinu, það
verður að fá færi á ábyrgð og
mannaforráð meðan það hefur
enn fersk viðhorf, því fersk
viðhorf bæta oft upp reynslu-
leysið og ósjaldan hafa nýjar
lausnir sprottið upp af skorti á
reynslu. Ef unga fólkið býr
yfir þekkingu og djörfung þá
eigum við mikla möguleika og
einmitt þessir tveir þættir,
þekking og djörfung eru
lykillinn að framförum og
farsæld."
Páll ásamt þremur börnum sínum sem öll eru Bjarndís, viðskiptafræðingur, dóttir Páls og
verkfræðingar. Frá vinstri: Gísli, Þórunn, Páll Sigríðar, með manni sínum Ólafi Johnson og
og Sigurjón. börnunum Ólafi Páli og Sigríði.
vann hann sem yfir-
verkfræðingur hjá Fosskrafti
við Búrfellsvirkjun og hann er
einn stofnenda Istaks frá 1970
og framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins. Auk þess hefur Páll
gegnt fjölda trúnaðarstarfa í
félögum úr ólíkustu áttum,
formennsku í Vinnuveitenda-
sambandinu , Dansk- íslenska
félaginu, Verkatakasanrband-
inu, í ráðgjafanefnd Islands
vegna EFTA, alþjóða versl-
unarráðinu, ýmsum al-
þjóðanefndum, stjórnum
margra stórfyrirtækja og síðan
1993 hefur hann verið
formaður Utflutningsráðs og
til að mynda má nefna að hann
er ræðismaður Belgíu og
mikill Rotarymaður sem m.a.
beitti sér fyrir inngöngu
kvenna í Rotaryhreyfinguna.
Eiginkona Páls er Sigríður
Gísladóttir, en börn þeirra eru
fjögur, Bjarndís viðskipta-
fræðingur gift Ólafi Johnson
markaðsstjóra, Þórunn verk-
fræðingur og rekstrarhag-
fræðingur gift Ara Edwald
lögfræðingi og rekstrar-
hagfræðingi, Gísli byggingar-
verkfræðingur kvæntur Hildi
Ragnars lyfjafræðingi og
Sigurjón byggingarverkfræði-
nemi. Barnabörnin eru sjö.
Varkárni í fjárfestingu
tækja og reksturs
Síðasta stórvirkið á vegum
ístaks er gerð Hvalfjarðar-
ganganna. Eg spurði Pál hvað
væri grundvallaratriðið í svona
rekstri. „Að fara varlega í að
fjárfesta í tækjum og rekstri“,
svaraði hann að bragði, „en
freista þess þó alltaf að feta
sig áfrarn. Mikil velta getur
verið fljót að fara úrskeiðis
ogmenn eru ekki endilega ríkir
þótt veltan sé rnikil. Jafnvægið
er gullna reglan ."
Tengsl Phil og Sön við
ísland?
„Sören Langvad er einn
aðaleigandi fyrirtækisins Phil
og Sön, en hann er hálf
íslenskur. Móðir hans, Selma
Guðjohnsen, er frá Húsavík,
en flutti í æsku til Danmerkur
og giftist síðan þar. Sören kom
„Þekking og djörfung eru
lykillinn að framfomm og
*
farsæld á Islandi. ’'