Fylkir - 23.12.1997, Qupperneq 11
11
FYLKIR jólin 1997
Ulfar Steindórsson og Jóna Osk Pétursdóttir í Barcelona
JÓLAHALD í KATALÓNÍU
Frásögnin um fæðingu frelsarans og vitringana frá austurlöndum setur mikinn svip
á allt jólahald á Spáni. Á flestum heimilum eru sett upp listaverk svipuð þessu.
Þegar þessi orð eru rituð er
aðeins vika í að aðventan hefjist.
Við hjónakomin sitjum og horfum
út um gluggann þar sem sólin skín
á fagurgrænt grasið og tré og
pálmatrén eru langt frá því að vera
jólaleg. Með þetta fyrir augum er
erfitt að gera sér í hugarlund að
jólin séu á næsta leiti. En það
hjálpar aðeins að borgaryftrvöld og
verslunareigendur eru mjög
duglegir að skreyta götur og
verslanir og nú þessa síðustu daga
fyrir aðventu er búið að kveikja á
þessum ljósum um alla borg.
Verslanir eru fullar af Spánverjum
í jólagjafaleit svo það auðveldar
aðeins að komast í jólaskap að
bregða sér í bæinn og líta
ljósadýrðina augum. En þó að
mikið sé um skreytingar í
verslunum og við götur, eru
Katalónar sjálfir ekki mikið fyrir
að skreyta híbýli sín utanhúss fyrir
jólin. Hér er ekki sama Ijósadýrðin
og á flestum húsutn í
Vestmannaeyjum þegar nær
dregur jólum.
Jólaundirbúningur fer
snemma af stað
Þó að ljósadýrðin sé ekki mikil
utandyra skreyta þeir þó inni hjá
sér. En samt eru ekki allir með
jólatré, þó þeim hati fjölgað mikið
undanfarin ár. Aður fyrr voru allir
með stór líkön af fjárhúsinu í
Betlehem þar sem Jesús fæddist.
Þar voru María, Jesúbamið, Jósef,
dýrin og vitringamir. Stundum
vom þessi líkön svo stór að taka
þurfti heil herbergi undir þau og
fór mikill tími hjá fjölskyldunni í
uppsetningu og lagfæringar. I dag
eru þessi líkön orðin miklu minni,
en í staðinn em komin í þau ljós og
tónlist. Enn þann dag í dag em
allflestir með þessi líkön heima hjá
sér um jólin. Góður staður til þess
að verða sér úti um faliegt líkan er
jólamarkaður sem haldinn er á
torginu fyrir framan Dómkirkjuna
í Barcelona. Þessi markaður
stendur yftr allan desembermánuð
og þar er einnig hægt að kaupa
jólatré og jólaskraut svo fátt eitt sé
nefnt.
Jólaundirbúningur Katalóna
hefst að öllu jöfnu frekar sneinma
og fer jólaverslun fljótt af stað.
Fólk fer yfirleitt ekki að kaupa
jólagjafir á síðustu stundu heldur er
jólaverslun nokkuð jöfn allan
desember. Þessa dagana er mjög
algengt að sjá fólk burðast með
stórar leikfangagjafir, en börnum
em gefnar mjög veglegar
jólagjafir, enda er verðlag sérlega
hagstætt.
Kalkúnn og Turrones á
jóladag
Hin hefðbundnu jól hér í
Katalóníu hefjast á aðfangadags-
kvöld, en svo er þó ekki annars
staðar á Spáni. A aðfanga-
dagskvöld er hátíðarmatur á
borðum, en þó er ekki nein sérstök
hefð í matseldinni, líkt og rjúpur og
hamborgarhryggur á Islandi. Það
getur því verið fiskur, kjúklingur
eða rautt kjöt í matinn. Hinsvegar
er aðalhátíðin á jóladag og
dagurinn hefst með messuferð hjá
mörgum. Síðan borðar öll fjöl-
skyldan saman hádegisverð, en að
spænskum sið er það klukkan
14.00. Hefðbundinn jólamatur er
súpa í forrétt, kalkúnn í aðalrétt og
svokallað „Turrones“ í eftirrétt, en
það er nokkurs konar kaka. Öll
Ijölskyldan er saman á jóladag, þó
með þeirri undantekningu að giftar
dætur fylgja eiginmönnum sínum
til foreldra hans. A annan í jólum
taka flestir því rólega, en þá er
frídagur í Katalóníu, en ekki
annars staðar á Spáni. Þann dag
snæða flestir „Cannelones“, en það
er ofnbakaður réttur, sem
samanstendur af kjötfylltum
pastarúllum. Það vín seni fólk
drekkur um jólin heitir Cava, en
það er freyðivín sem framleitt er
hér í Katalóníu. Óhætt er að
fullyrða að Cava er á borðum hjá
flestum fjölskyldum um jólin, en
það er einnig vinsæl jólagjöf frá
fyrirtækjum til starfsmanna.
Jólagjaftr eru gefnar á
aðfangadagskvöld eða jóladags-
morgun mismunandi eftir
fjölskylduhefðum. Einnig er stór
gjafadagur þann 6. janúar og er
ástæðan sú að hér er það ekki
jólasveinninn sem kemur með
gjafimar heldur vitringamir þrír. í
stað þess að bömin skrifi
jólasveininum óskalista er hann
stílaður til vitringanna. Eldsnemma
að morgni 6. janúar (Þrettánd-
anum) er gjöfunum komið fyrir
við jólatré, arininn eða hjá rúmum
barnanna. Þennan dag er sú hefð
að fjölskyldan hittist og borði
meðal annars köku vitringanna, en
í henni er gjöf líkt og möndlugjöfin
á Islandi.
Tína upp í sig vínber
síðustu sekúndur ársins
Ekki er mikið um hátíðahöld
um áramót og er gamlárskvöld
ósköp rólegt. En þó er sá siður hjá
Spánverjum að borða 12 vínber,
sem þeir tína upp í sig um leið og
þeir telja niður síðustu 12 sekúndur
sem eftir lifa af árinu. Þetta tiltæki
á að boða gæfuríkt komandi ár og
er eitt vínber fyrir hvern mánuð
ársins sem er að líða.
Þar sem vorum nýflutt um
síðustu jól, ákváðum við að halda
okkar jól hér í Barcelona. Að
sjálfsögðu voru þau jól íslensk.
Við byijuðum okkar jólahátíð með
aðventunni eins og venjulega og
var aðventukransinn frá árinu áður
aðeins lagfærður. Sá siður hefur
verið viðhafður í okkar fjölskyldu
að alla sunnudaga í aðventu höfum
við heitt súkkulaði með smá-
kökum og tilheyrandi og var í engu
breytt í þeim efnum. Tveimur
vikum fyrir jól voru bakaðar
piparkökur, sem yngstu fjölskyldu-
meðlimirnir sáu um að skreyta.
Tæpri viku fyrir fyrir jól tókum við
á móti nánum ættingjum sem
dvöldu hjá okkur yftr hátíðirnar
öllum til mikillar ánægju. 1
farteskinu voru þeir með allt það
helsta til að halda íslensk jól. Það
voru rjúpumar sem borðaðar voru
á aðfangadagskvöld, hangikjötið
og grænu baunirnar fyrir
jóladaginn, maltölið og íslenska
konfektið. Ekki má gleyma
laufabrauðinu sem var skorið út og
steikt helgina fyrir jól. Sem sagt
allt til að jólin gætu verið eins og
heima á Fróni. En það verður nú að
segjast eins og er að það var
skrýtin sjón að sjá uppljómaða
sundlaugina út um stofugluggann
hjá okkur á sjálft aðfangadags-
kvöld í staðinn fyrir snjóinn eða
freðna jörð sem oftast tilheyrir
jólum heima á Islandi. Jafnvel enn
skrýtnara var að fara á jóladag
með drengina okar út að hjóla á
strandgötunni í stað venjubundinna
fjölskylduboða.
Róleg flugeldasala fyrir
gamlárskvöld
Þegar gamlárskvöld nálgaðist
var farið að huga að flug-
eldakaupum. A þessum árstíma,
ólíkt þvf sem við eigum að venjast
er lítil sem engin flugeldasala og
keyptum við því okkar flugelda í
næstu flugeldaverksmiðju. Afturá
móti var auðvelt að nálgast matinn
fyrir gamlárskvöld, þar sem við
vorum vön að hafa kalkún og fæst
hann hér í hverri verslun. Rétt fyrir
miðnætti var arkað niður á strönd
með tlugelda, blys og stjörnuljós.
Gamla árið var síðan kvatt og nýju
fagnað með llugeldum að
íslenskum sið og vöktum við
óskipta athygli. Þetta voru einu
flugeldarnir sem sáust svo langt
sem augað eygði. En Katalónar
fagna ekki nýju ári með flugeldum,
en skjóta þess meira upp þann 23.
júní er þeir fagna sumarkomu.
Þetta voru ósköp róleg, afslöppuð
og heit jól og áramót. Það teygðist
aðeins úr þeim hjá okkur þar sem
jólakort voru að berast fram í
febrúar. En þrátt fyrir að öllum hafi
liðið vel hér á erlendri grund
síðustu jól, er stefnan tekin á Island
um þessi jól. Þetta er einmitt sá
tími ársins sem allir vilja vera á
sínum heimaslóðum með sínum
nánustu.
Að þessum orðum rituðum
sendum við öllum Vestmanna-
eyingum okkar bestu óskir um
gleðileg jól og farsælt nýtt ár.
Ulfar og Jóna í Barcelona.
Greinarhöfundar voru búsett í
Eyjum 1992-1995.
Ulfar gegnir stöðu
framkvæmdastjóra
Union Islandia, sem er
dótturfyriitæki SIF á Spáni.
Kunnuglegt umhverfi á aðfangadag jóla. Elí og Róbert
synir greinarhöfunda bíða þess spenntir að stóra
stundin renni upp.