Fylkir - 23.12.1997, Side 17
FYLKIR jólin 1997
17
TanUttrr \
GblítioltfT'
mUt\ f»n|
fatrchalt m:d
lnftnuatnn otk
l'cy.u Tápjf Bar
Ukrum
i draumur?
N6 til Eyja
á Landeyjasandi.
svifskips til siglinga milli lands og
Eyja. Arið 1988 var því stofnaður
áhugamannahópur um loftpúða-
skip sem hafði það að markmiði að
leigja skip til siglinga milli lands
og Eyja. Töldu menn að það mikil
framþróun hefði orðið á sviði
svifskipa frá því tilraun var gerð
með SRN6 skipið árið 1967 að
réttlætanlegt væri að reyna slfkt
skip á ný. Nefnd sem kosin var til
að kanna þessi mál fór utan og
skoðaði skip en aldrei varð úr því
að svifskip yrði fengið til Eyja á
ný.
Hugleiðingar um tveggja
skrokka skip
I Þegar undirbúningur að
byggingu núverandi Heijólfs hófst
skrifaði Guðlaugur Gíslason.
íýrrverandi alþingismaður, nokkrar
greinar þar sem hann velti upp
hvort ekki væri rétt að athuga þann
möguleika að smíða tveggja
skrokka skip, svokallað Katamaran
skip, í stað gamla Herjólfs.
Hugmyndir Guðlaugs hlutu ekki
undirtektir. Voru mjög skiptar
skoðanir um þessar hugleiðingar
Þessi tveggja skrokka ferja (Catamaran) gengur milli Gautaborgar í Svíþjóð og Fredrikshavn í Danmörku. Hún er 88m löng
30 m breið og hefur 3,7 m djúpristu. Hún er 8630 brúttótonn, tekur 900 farþega og 210 fólksbíla eða 170 fólksbíla og 10 rútur.
Ganghraðinn er 40 mílur og vélaraflið 44000 hestöfl.
hans og töldu margir tveggja
skrokka skip ekki raunhæfan kost.
Mikil þróun hefur orðið í gerð
„High speed“ skipa, háhraðaskipa,
á undanfömum ámm og nú em
slík skip mjög víða í siglingum
milli staða erlendis. Skip þessi eru
orðin mjög stór, mörg hver, og
myndi núverandi Herjólfur teljast
lítill í samanburði við sum þeirra.
Aðalkostur þessarra skipa er mikill
siglingahraði en þau hraðskreið-
ustu ná allt að 50 sjómílna hraða á
klukkustund. Þessi háhraðaskip em
bæði tveggja skrokka og eins er
farið að smíða eins skrokks skip
sem ná svipuðum siglingahraða og
tveggja skrokka skipin.
Hvað tekur við af
núverandi Herjólfi?
Þegar kemur að endumýjum
Hetjólfs eftir einhver ár verður því
eflaust skoðaður möguleiki á skipi
af slíkri gerð enda á án efa eftir að
verða enn meiri þróun í smíði
hraðskreiðra skipa á næstu árum.
Það er því ekki úr vegi að menn
fari að velta því fyrir sér hvað tekur
Boðsgestir ganga um borð í svifskipið SR N6 inni í botni sumarið 1967.
við þegar núverandi Herjólfur
verður orðinn of gamall til að
þjóna hlutverki sínu. Þó flestir tali
í dag um nýja Herjólf þá verður
skipið sex ára næsta vor sem er
ríflega þriðjungur af aldri gamla
Herjólfs þegar hann hætti
siglingum milli Eyja og
Þorlákshafnar en hann sigldi í 16
ár milli lands og Eyja.
Það er því spuming hvort ekki
er rétt að skoða þann möguleika að
reyna að fá leigt hraðskreitt skip,
t.d. tveggja skrokka skip, til
siglinga milli lands og Eyja til að
fá reynslu af hvemig slíkt skip
reynist við þær aðstæður sem hér
em. Það gæti t.d. verið upplagt að
reyna slíkt einhvem tímann þegar
Heijólfur þarf að fara í slipp.
Með því móti væri tekið upp
merki þeirra hugsjónamanna sem
horfðu til framtíðar varðandi
samgöngur milli lands og Eyja er
þeir fengu loftpúðaskipið leigt til
landsins fyrir 30 ámm.
Grímur Gíslason.
Heimildir.
Við Ægisdyr,
Saga Vestmannaeyja, eftir Harald
Guðnason, og munnlegar
heimildir.
ftUlftrtrt
KomMánJu-
bryjst
vaw
JJuhntií
ioun^e
$lin$en fiwr
me,t gAitutbla
Einsskrokks skip (Monohull). 128 metra löng og 18,4 m breið ferja sem gengur milli Brindisi á Ítalíu og Igounenitsa á Grikklandi. Hún ristir 4m og gengur 37,5
mílur. Vélaraflið er 41250 kW. Hún ber 778 farþega og 234 bíla eða 166 bíla og 6 flutningavagna.