Fylkir


Fylkir - 23.12.1997, Page 25

Fylkir - 23.12.1997, Page 25
FYLKIR jólin 1997 25 Ferðalúnir Danmerkurfarar fyrir utan eina af félagsmiðstöðvum KFUM&K í Kaupmannahöfn. milli landa, en segja má að stærsta keppnin hafi verið fótboltamótið. Þetta mót var mjög sterkt og var spilað á hverjum degi en að lokum, eftir vítapymukeppni og bráðabana þá vann íslenski hópurinn. Eins og ég sagði áðan þá var skipt í hópa á mótinu sem unnu einhver verkefni. Skipt var niður í blaðahóp sem gaf út mótsblöð, íþróttahóp sem iðkaði hinar ýmsustu íþróttir, tónlistar- hópur sem spilaði m.a. á kvöld- vökum og svo matreiðsluhópur sem bakaði og eldaði af mikilli list, svo einhverjir séu nefndir. Á mótstað var sjoppa, sem er í sjálfu sér ekki í frásögur færandi nema hvað að það var íslenski hópurinn sem hélt sjoppunni gangandi á mótinu. En þann 28. júlí héldum við ferð okkar aftur til Kaupmannahafnar með hringferð um Danmörku í leiðinni. Komið var við í Lego- landi þar sem sumir léku sér við það að fá bílpróf áður en við komum við í Nakskov en þar gistum við eina nótt áður en við hófum lokasprettinn til Kaup- mannahafnar. Næsta dag lögðum við af stað í vatnagarð sem var stútfullur af alls kyns tækjum og tólum til þess að skemmta sér, en svo um kvöldið þá fórum við aftur til Nakskov þar sem við tókum þátt í kvöldvöku með unglingum þaðan. En þess má geta að fararstjóri ferðarinnar, Hreiðar Öm Stefánsson vann um tíma sem slátrari í Nakskov. 31. júlí - 5. ágúst skemmtum við okkur í kóngsins Kaupmannahöfn og versluðum m.a. á „Strikinu“, fórum á söfn, í dýragarð að hitta vini okkar og ekki má gleyma Tívolíferðinni sem má eiginlega segja að hafi verið toppurinn á ferðinni hjá flestum. En þann 5. ágúst þá lögðum við af stað heim til íslands sæl og glöð eftir frábærlega vel heppnaða ferð til Danmerkur. Og er þetta ein stærsta hópferð sem farin hefur verið erlendis á vegum KFUM & K á Islandi. Öflugt æskulýðsstarf skiptir miklu máli fyrir unglingana í bænum í dag eru í æskulýðsstarfinu tveir æskulýðsfulltrúar, þau Hulda Líney og Gylfi, þrír leiðtogar, þau Lilja Sigurðardóttir, Ólafur Jóhann Borgþórsson og greinarhöfundur. Einnig eru tveir aðstoðarleiðtogar, sem vinna með okkur í starlinu. Er þetta öflugur hópur sem vinnur mikið saman. Reynt er með reglulegu millibili að leiðtogar og æskulýðsfulltrúar hittist og geri sér dagamun, fara út að borða eða þá hittast heima hjá einhverjum og hafa það kósý. Helgina 17. -19. október var farið á landsmót í Vatnaskógi. Héðan fór rúmlega 20 manna fríður hópur á mótið. Þetta var stærsta Landsmót sem haldið hefur verið á íslandi, rúmlega 300 manns. Hefðbundin dagskrá var á mótinu nema hvað að efnt var til dansleikja á laugardagskvöldinu fyrir unglingana. Og var það hljómsveitin Reggi On Ice sem spilaði. Og var almenn ánægja með dansleikinn. En hápunkturinn að margra mati var þegar söngkonan EmilianaTorrini mætti öllum að óvörum á kvöldvöku á föstudagskvöldinu og söng þar ein 12 - 15 lög við undirleik Jóns Ólafssonar á píanó, og ætlaði þá allt að tryllast. KFUM & K í Vestmannaeyjum hefur undanfarin 7 ár gefið út blað til styrktar starfinu. Blaðið hefur tvisvar verið gefið út í samstarfi við skátafélagið Faxa og hefur það gengið mjög vel. Og var síðasta blað að koma út úr prentvélunum núna fyrir nokkrum dögum. Meðal efnis í svona blöðum hefur verið greinar frá mótum sem farið hefur verið á, sagt frá starfi líðandi stundar, brandarar og smásögur sem unglingamir hafa gert og að sjálfsögðu er reynt að hafa mikið af myndum í blaðinu. Blaðið hefur frá upphafi heitið Á móti stormi og hefur það verið fjármagnað með auglýsingum frá fyrirtækjum og einstaklingum hér í Eyjum. Ágóði af blaðinu hefur mnnið í ferðasjóð félagsins. Annan mars síðastliðinn var Æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar haldinn hátíðlegur og var ekki undantekning á hér í Eyjum. Æskulýðsmessa var haldin, og var hún í höndum KFUM & K með dyggri aðstoð frá fermingar- bömum og kórum kirkjunnar. Sú nýbreyttni var að messan var tekin upp og sýnd svo síðar sama dag á sjónvarpsstöðinni Fjölsýn. Ýmis fyrirtæki hér í bæ styrktu KFUM & K með skjáauglýsingum fyrir og eftir messu. Söngtríó KFUM & K, léttsveit sem sett var saman fyrir messuna ásamt kómnum sá um tónlist í messunni og unglingar úr KfTJM & K sáu um prédikun og bænir í messunni. Troðfullt var í mess- unni, og eftir hana hélt KFUM & K kafftsölu auk kökuhlaðborðs og var safnaðarheimili Landakirkju vel fullt. Allur ágóði af sölunni rann til æskulýðsstarfsins. 1 vetur var ákveðið að fara af stað með svokallaða eldri deild í félaginu. Og er hún ætluð þeim sem vaxnir eru upp úr yngra starfinu, á aldrinum 16-20 ára. Hefur það gengið vonum framar, og myndast kjami sem hittist einu sinni í viku, á fímmtudagskvöldum kl. 8:30 og gerir eitthvað skemmtilegt saman. Höfum við farið í bíó og verið með leiklistarnámskeið svo eitthvað sé tínt til. Svo er á stefnuskránni að fara í helgarreisu upp á land og fara á skíði og líta í höfuðborgina. Starfíð framundan Framundan í æskulýðsstarfínu er mót í febrúar og svo jólafundur sem haldinn verður 14. desember næstkomandi. En á jólafundum höfum við haft það þannig að unglingamir koma með eitthvað að heiman, kökur og annað slíkt og við höfum undirbúið skemmti- atriði, leynigestur hefur komið og minni stráka, stelpna og leiðtoga flutt. Ávallt er mikið fjör og gaman á jólafundum og er þetta góður endir á skemmtilegu ári. Að lokum vil ég þakka tækifærið á að fá að kynna KFUM & K starfið í blaðinu. Með jólakveðju Skapti Örn Óafsson Besta ávöxtun hlutabréfasjóða síðastliðin sjö ár Tryggðu þér Auðlindarbréf fyrir áramót og fáðu skattafslátt Auðlindarbréf keypt 18/11 '96 Kaupverð (hámark sem nýtist til skattafrádráttar) 260.000 Gengishagnaður (umfram arð og þóknun) 14.786 10% arður (greiddur út í júlí '97) 12.322 Skattafsláttur (endurgreiddur ( ágúst '97) 85.030 Eign um mánaðamót nóv./des. 1997 372.138 Síðastliðin sjö ár hefur Hlutabréfasjóðurinn Auðlind hf. skilað bestu ávöxtun sambærilegra sjóða á fslandi. Sjóðurinn einkennist af virkri stýringu á innlendu hlutabréfasafni og umtalsverðri eign i erlendum verðbréfum. Ávallt er leitast við að draga úr sveiflum á gengi og minnka áhættuna. Árið 1997 héldu eigendur Auðlindabréfa áfram að njóta betri ávöxtunar en þeir sem bundu fé í öðrum hlutabréfasjóðum. Tryggðu þér skattafslátt með því að kaupa Auðlindarbréf fyrir áramót og sjáðu góðærið í hendi þér! Boðgreiðslur VISA/EURO — afgreiðsla með einu símtali. Boðgreiðslur VISA/EURO - afgreiðsla með einu símtali SPARISJÓÐIRNIR KAUPÞING HF

x

Fylkir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.