Fylkir - 23.12.2001, Page 23
23
FYLKIR jólin 2001
AdólJ'og ÓskarAxel leggja mikið upp úr írnynd og kynningu XI8
svolítið um það hvort að það væri
æskilegt að vera með kaffiteríu í
íþróttamiðstöðinni þar sem mikið
af krökkum var og hvort að þau
ættu að vera að borða mikið af
sælgæti í skólatímum eins og það
var kallað. En eftir að ég flutti þá
var ákveðið að leggja kaffiteríuna
niður,“ sagði Óskar Axel.
Ætlunin var að gera
XI8 að heimsfrœgum
skóni
Óskar Axel flutti síðan til
Reykjavíkur um 1980, þá tvítugur,
og stofnaði fljótlega verslunina
Axel Ó. að Laugarvegi 11. „Þegar
ég flyt síðan til Reyjakjavíkur
stofnaði ég verslunina Axel Ó. og
rak ég hana í mörg ár. Við
byrjuðum að framleiða skó í sam-
vinnu við skóverslunina Iðunni á
Akureyri og stuttu seinna vorum
við farnir að kaupa helminginn af
þeirra framleiðslu. En eins og
Sambandið var á þessum tíma þá
varð tap á rekstrinum og Iðunn á
Akureyri vildi draga okkar álagn-
ingu niður. Ég gerði þeim grein
fyrir því að ég fengi mikið meira út
úr því ef ég myndi kaupa þessa
þjónustu annarsstaðar og báðir
aðilar myndu fara illa út í því að
hætta þessari framleiðslu. Ég fór
afskaplega illa út þessu öllu saman
en verksniiðjunni á Akureyri var
lokað innan árs eftir það,“ rifjar
Óskar Axel upp og heldur áfram.
„Eins og Adolf sagði þá
framleiddum við skó úti í Portúgal
og stofnuðum fljótlega verksmiðju.
Það var síðan í febrúar 1998 sem
við fórum í samstarf við Pétur og
Magnús og stofnuðum XI8. Ári
síðar kom Nýsköpunarsjóður
atvinnulífsins inn í fyrirtækið. Við
höfum verið sérlega heppnir með
samstarfsaðila. Ætlunin var að gera
XI8 að heimsfrægum skóm sem
þeir eru nú þegar orðnir. En
markmið okkar er það að fólk sé
ekki að kaupa skó heldur X18,“
sagði Óskar Axel.
Hlutafjárútboð og
góðir samningar
Mjög dýrt er að framleiða og
selja skó um allan heim, en í í dag
er X18 að selja skó í 40 löndum í 6
heimsálfum. „Við fórum í lokað
útboð hjá Landsbankanum í fyrra
sem átti að taka hálfan mánuð, en
öll hlutabréfm seldust upp á 10
mínútum sem hefur aldrei áður
gerst þar á bæ. Þar sem þetta
verkefni er gríðarlega dýrt þá var
stefnan sett á að fara aftur í útboð á
þessu ári og taka þar með næsta
skreftð. Við höfum ákveðið að fara
af stað með það núna í desember
með svolítið skemmtilegum hætti
en við viljum að sem tlestir
íslendingar eigi hlut í fyrirtækinu.
Fyrirkomulagið verður þannig að
fólk getur eignast 15.000 króna
hlut í XI8 og fengið skó,
geisladisk, vömúttekt í Sináranum
og annað þannig að fólk er í raun
ekkert að borga fyrir bréfin,“ sagði
Óskar Axel. Markmiðið er að ná
tugþúsundum íslendinga inn í þetta
félag og að það verði íslendingar
sem standi á bak við XI8. Þeir
bræður hvetja Vestmannaeyjinga
til að taka þátt í útboðinu sem svo
sannarlega verður með óvenjulegu
sniði. Með kaupum á hlut í X18 er
innifalið gjafabréf upp á 8000
krónur fyrir X18 skóm, 1000 króna
inneign í Smáranum sem og
bíómiða í Smárabíói, hjá Ríkis-
skattstjóra er 3488 króna afsláttur
sem og fólk getur valið úr þremur
geisladiskum hjá Skífunni.
Nýlega gerði XI8 samninga við
Norimco, dótturfyrirtæki BATA,
stærsta skóframleiðanda heims,
um dreifingu og sölu á X18 skóm í
Kanada og Norður-Amerfku. Um
er að ræða gríðarlega stóra samn-
inga sem styrkir stöðu XI8 til
muna. „Þeir samningar sem náðust
við Norimco á dögunum tryggja
okkur mikla sölu í Kanada og
Norður -Ameríku. Það má segja að
Kanada sé nokkuð gefinn mark-
aður þar sem þetta fyrirtæki á og
rekur 260 verslanir og nægir að
selja X18 skó aðeins í þeirra búð-
um til að ná góðri markaðshlut-
deild í Kanada. Inn í þetta bætist að
Norimco á verslanir út um allan
heim sem eru eitthvað um 4600
talsins og er fyrirtækinu skipt upp í
26 deildir.
Þó svo að við höfum náð
samningum við eina deild þá þýðir
það ekki að við náum samningum
við aðra deild. en þó eru miklar
líkur þá því,“ sögðu þeir bræður.
Þá er X18 búið að gera samninga
við fyrirtæki í Englandi sem dreifir
Diesel skóm þar í landi. Þetta
fyrirtæki selur 750 þúsund pör af
Diesel skóm og um 1.5 milljónir
para af X18 skóm. „Þetta er mjög
rökrétt vegna þess að þar sem X18
skór eru til sölu er hlutfallið
yfirleitt þannig að 10% selst af
Diesel skóm, 30% af Skechers
skóm og 60% af X18 skóm," bætti
Adolf við.
Bannað innan 18 ára
Þannig að það má segja að þið
ætlið að leggja undir ykkur heim-
inn hvað skósölu varðar?
„Við stefnum alla vega að því að
ná góðum árangri. Við munum
taka mörg skref á nýju ári og verða
miklu meira áberandi í erlendum
verslunum en verið hefur. Þannig
að við erum mjög spenntir fyrir
komandi ári og árum,“ sagði Óskar
Axel og upplýsti síðan blaðamann
um langa sögu fjölskyldunnar í
skóbransanum. „Við erum fímmti
ættliðurinn sem er í skóbransanum.
Upphaflega var það Lárus G.
Lúðvfksson sem byrjaði að versla
með skó og síðan taka synir hans
við. Pabbi ólst upp á Fjólugötunni
í Reykjavík. Frændi hans rak
skóverslun í Vestmannaeyjum sem
hann ætlaði að selja. Það var síðan
afi okkar sem stakk upp á því að
pabbi myndi taka við og kaupa
skóverslunina í Eyjum sem og
hann gerir. Þetta var árið 1959.“
Hvers vegna X18?
„Það er nú þannig að þetta á að
inerkja bannað innan 18 ára. Þegar
þú ert að leita af hugmyndum þá
reynir maður að finna einhverja
einfalda hugmynd sem að maður
heldur að geti hitt í mark. XI8
vörumerkið getur verið íslenskt
sem og alþjóðlegt. Þá er ekkert
vörumerki sem heitir svipað og
X18 en ýmislegt hefur komið í
kjölfarið,“ sagði Óskar Axel sem
er hugmyndasmiðurinn á bak við
vörumerkið X18 sem er skrásett
vörumerki í fleslum löndum
heims. Ásamt því að hafa hannað
XI8 þá hannaði Óskar Axel líka
Puffins skóna frægu sem voru
vinsælir hér á landi um árið.
Ásta G. um víðan völl
X18 hefur nú þegar, í samstarfi
við stórfyrirtækin Skechers og
Diesel, opnað fimm sérleyfis-
verslanir í þremur löndum undir
nafninu Ásta G. og eru þær allar í
eigu Islendinga. Sú fyrsta var
opnuð í Kringlunni í Reykjavík
fyrir rúmu ári og síðan hafa fjórar
verslanir verið opnaðar í þremur
löndum. Ein er í Kvadrat, stærstu
verslunarmiðstöð Noregs í Stav-
anger, önnur í miðborg Stavanger,
þriðja á Strikinu í Kaupmannahöfn
og fjórða í Smáralind í Reykjavík.
Nú þegar liggja fyrir samningar
um að í mars næstkomandi verði
verslanirnar orðnar alls tíu í fimm
löndum og í árslok 2006 er gert ráð
fyrir að í þessari íslensku
verslunarkeðju verði að minnsta
kosti eitt hundrað verslanir.
„Verslanir Ástu G eru byggðar
upp á þremur skótegundum en
ásamt XI8 eru seldir Diesel og
Skechers skór. Þessar verslanir eru
gríðarlega mikilvægar í því starfi
sem við erum að vinna og eru
settar upp á bestu stöðunum í
hverju landi og eru þær gríðarlega
góð markaðssetning fyrir X18 skó
í hverju landi fyrir sig. Þá er hægt
að prófa nýjartegundir af skóm í
þessum verslunum og fá viðbrögð
frá kaupandanum mjög fljótlega
um hvað gera skal - hvoit við
eigum að halda okkar striki eða
breyta til,“ útskýrði Adolf. Nafnið
Ásta G. er nokkuð tengt þeim
bræðrum því dóttir Óskars Axels
heitir Ásta Guðrún og kemur
nafnið á verslununum því þaðan.
„Það er eins með þetta nafn og
XI8, þetta er einfalt og grípandi.
Þegar við fórum upphaflega af stað
með XI8 þá sögðu menn við
okkur í Englandi: Flott hugmynd
og flottir skór en hvernig í ósköp-
unum datt ykkur í hug þetta nafn. I
dag koma þessir menn til okkar og
lofa nafnið,“ sagði Óskar Axel.
Það eru fleiri úr fjölskyldunni
sem hafa tekið þátt í XI8
ævintýrinu en þeir bræður því
systur þeirra þær Guðrún og
Sigrún eiga og reka Ástu G.
verslunina í Kaupmannahöfn
ásamt mökum og hjónunum Gísla
Erlingssyni og Þuríði Bernódus-
dóttur.
Ánœgðir með viðtökur
Eyjamanna
Nú eru nýir aðilar komnir að
Axel Ó. í Eyjum. Hvemig líst
ykkur á það?
„Bara mjög vel. Þetta em traustir
og ábyggilegir aðilar og hafa
verslað mikið við okkur og höfum
við ekkert nema gott um þau að
segja. Foreldrar okkar ráku þessa
verslun í mörg ár en síðan kemur
tími á allt saman og þau fengu
ágætis kauptilboð í verslunina sem
þau tóku,“ sögðu þeir bræður.
Hvemig sjáið þið ykkur eftir 10
ár?
„Þetta er ekkert auðunnið verk-
efni en það er engin spuming að
það er bjart framundan í ljósi þess
að við höfum verið að ná góðum
samningum við ýmsa aðila. Við
erum að ná góðum tökum á
rekstrinum en hvað mig varðar þá
hugsa ég alltaf um að klára einn
dag í einu og þegar maður er
kominn fram fyrir vindinn þá getur
maður litið fram í framtíðina,"
sagði Adolf. Óskar Axel tók hins
vegar annan pól í hæðina. „Mig
langaði rosalega mikið til að lfkjast
Maradona í gamla daga þegar
maður var að sprikla í fótbolta
heima í Eyjum. Mér tókst það ekki
þá en ég held að ég sé á góðri leið
með að ná því markmiði og ætli
maður verði ekki eins og hann eftir
10 ár,“ sagði Óskar Axel.
Nú lifir góðu lífi goðsögnin um
hvernig hið heimsþekkta vöru-
merki Nike varð til. Haldið þið að
svipaðar sögur verði sagðar um
X18 í framtíðinni?
„Ég hef alltaf sagt það að við
íslendingar séum ofsalega stoltir af
Björk Guðmundsdóttur söngkonu
og til marks um það þá var ég ein-
hverju sinni á hóteli í Las Vegas
þar sem ég dróg upp passann minn
og fólk byijaði þá að tala um Björk
þegar það sá að ég var frá Islandi.
Ég held að þegar fram líða stundir
verði ísland þekkt af XI8 frekar en
Björk," sagði Óskar Axel sann-
færandi.
Þegar þeir bræður voru spurðir
að því hvorl að þeir væru miklir
Eyjapeyjar þá stóð ekki á svarinu
sem var játandi og í kór. „Allt
vinafólk mitt og konunnar minnar
er úr Eyjum og eigum við stóran
og góðan vinahóp úr Eyjum.
Okkur líður mjög vel í Vestmanna-
eyjum og mætum á alla fótbolta-
leiki og annað sem tengist Eyjum
hér á höfuðborgarsvæðinu," sagði
Adoll'.
„Við erum rosalega stoltir að því
hvað Eyjamenn styðja og standa
við vörumerkið og kaupa mikið af
X18 skóm og vonandi verður svo
áfram,“ sögðu þeir bræður að
lokum.