Skátablaðið - 01.07.1935, Síða 10
Undirbúningur og stofnun skáta-
fjelags á Flateyri árið 1935.
Þann 11. febrúar 1935 lögðu tveir
„rover“skátar, þeir Ágúst Leós og
Sigurður Jónsson, af stað frá Isafirði
og fóru sem leið liggur til Flateyjar.
Fyrsta daginn, þ. 11., var fundur hald-
inn með skátaefnunum kl. 8%—10 e.
h. og rætt um stofnun fjelagsins. Þess-
ir drengir voru mættir: Sveinn R. Jóns-
son, Geir Ó. Guðmundsson, Eiríkur G.
Ásgeirsson, Karl Sveinsson, Arngrím-
ur Guðjónsson, Guðm. Ólafsson og
Kristján Pálsson, allir til heimilis á
Flateyri. Einnig Ragnar Jakobsson út-
gerðarmaður á Flateyri (sem flutti
hreyfinguna til Flateyrar). Allir voru
drengirnir sammála um að stofna fje-
lagið.
Þann 12. s. m. var kent undir nýliða-
prófið kl. 5—6 e. h. og 8V2—10 og
næstu daga, þ. 13., 14. og 15., á sama
tíma.
Þann 15. s. m. kl. 10 *4—11 lauk
Sveinn Jónsson nýliðaprófi með ágætis
einkunn. Eftir því sem tími vanst til, var
farið í leiki með skátunum. Þann 16. s.
m. var æfing kl. 5—6(4 °S sama dag
kl. 8V2—11 luku þeir, sem eftir voru, ný-
liðaprófinu. Þetta sama kvöld kl. 11*4—
lt/2 var Sveinn æfður undir 2. flokks
prófið.
Þann 17. s. m. var farið yfir 2. fl.
prófið með hinum drengjunum, og eftir
það, þegar tími vanst til. Kl. 6 s. d. var
lagt af stað inn í fjörð á móti deildar-
foringja „Einherja“, skátum og skíða-
fólki, sem var að koma frá ísafirði til
að stofna fjelagið. Komið til Flateyrar
kl. 10. — Kl. 10—3 þetta kvöld var hald-
inn dansleikur til ágóða fyrir Flateyr-
arskátafjelag.
Fjelagið stofnað.
Sunnud. 17. febr. kl. 11—12 f. h. voru
skátaefnin vígð af deildarforingja „Ein-
herja“. Kl. 4—6 s. d. var svo fjelagið
stofnað í fimleikasal barnaskólans. Fje-
lagið hlaut nafnið „Framherjar" og á
heima á Flateyri. Fyrstur sveitarforingi
var kosinn Sveinn Jónsson og flokksfor-
ingi Geir Ó. Guðmundsson og aðstoðar-
flokksforingi Eiríkur G. Ásgeirsson.
Á mánudagsmorguninn þ. 18. s. m.
fóru ísfirðingarnir heimleiðis.
Af Flateyringum á hr. Ragnar Jak-
obsson útgerðarmaður miklar þakkir
skilið fyrir aðstoð við stofnun þessa
skátafjelags; auk þess hr. Óskar Ein-
arsson læknir, sem sýndi skátunum
mikla gestrisni.
ísafirði, 27. febrúar 1935.
Ágúst Leós. Sig. Jónsson.
þ. e. a. s„ ef þátttaka verður þá ekki
eins hörmuleg og í þetta skifti“.
Vjer þökkum H. W. Á. fyrir upplýs-
ingarnar og kveðjum,
8
SKÁTABLAÐIÐ