Skátablaðið - 01.07.1935, Síða 13
heimi skáta.
í framtíðinni eiga að birtast allskonar
skátafrjettir, innlendar og erlendar, í
þessum dálki. í þessu fyrsta blaði þótti þó
sjálfsagt að birta sem best yfirlit um starf
og gengi skátafjelaganna og er í því efni
einungis stuðst við ársskýrslur fjelaganna
til B. í. S.
„Væringjar", Reykjavík, deildarfor-
jngi Jón Oddgeir Jónsson.
Hjá skátafjelaginu „Væringjar" í
Reykjavík hefir veriS ágætt starf á síð-
astliðnu ári. Snemma á árinu var stofn-
uð ný sveit, 3. sveit, og er hún þegar al-
veg fullskipuð. I fjelaginu eru nú 125
skátar, 25 R.-S. og 45 ylfingar, eða alls
eru meðlimir fjelagsins 195 að tölu. Fje-
lagið hefir nú ágætt húsnæði, þar sem
allar sveitir þess geta haft æfingar. Hjá
ylfingum hafa verið haldnar 40 flokks-
æfingar og 12 hópæfingar og verið tek-
in 30 sárfætlingapróf, sex I. stjörnu
próf og 6 sjerpróf. Ein ylfingaútilega.
Skátar hafa haldið 21 sveitafund og 210
flokksæfingar og tekið 68 nýliðapróf,
20 II. flokks próf, 5 I. flokks próf og 21
sjerpróf. Hjá R.-S. voru haldnir 5 sveit-
arfundir og 12 flokksfundir. Gönguferð-
ir hafa verið farnar 18, útilegur í tjöld-
um hafa verið í 52 nætur með 280 þátt-
takendum og skálaútilegur 15 með 122
þátttakendum. í fastatjöldum hafa ver-
ið 4 útilegur með 42 þátttakendum. Einn
skáti á Vármlandslágret.
Auk þessa stóð fjelagið fyrir skáta-
SKÁTABLAÐIÐ
móti með 36 þátttakendum og var það
haldið í Þjórsárdal. Einnig tók fjelag-
ið þátt í skátaskemtun, sem haldin var
í Iðnó 26. febrúar, varðeldasýningum
í Öskjuhlíð 23. sept., merkjasölu B. 1.
S. 4. nóv., samsæti, sem haldið var
norsku skátunum, fjársöfnun vegna
jarðskjálftanna, sölu á happdrættismið-
um fyrir íþróttaskólann á Álafossi og
í skrúðgöngu og skátaguðsþjónustu 1.
sumardag. Einnig aðstoðaði fjelagið við
Hallgrímshátíðina í Saurbæ, íslensku
vikuna og sýningu Læknafjelagsins í
Landakoti. Blaðið „Úti“ gaf fjelagið út,
eins og að undanförnu. Einnig var far-
ið í tvær dauðaleitir.
Stjórn fjelagsins skipuðu á árinu:
Jón O. Jónsson, Leifur Guðmundsson,
Jón Þorkelsson, Sigurður Ágústsson og
Tryggvi Kristjánsson.
„Ernir“, Reykjavík, deildarforingi
Hörður Jóhannesson.
„Ernirnir“ í Reykjavík hafa starfað
af miklu fjöri á árinu. Þeir telja nú 47
skáta og 71 ylfing. Þann 1. apríl hjeldu
þeir hátíðlegt 10 ára afmæli sitt og voru
11