Skátablaðið - 01.07.1935, Side 14
tveir skátar sæmdir Þórshamrinum viS
það tækifæri, þeir Þórarinn Björnsson
og Carl Hemming Sveins. Æfingar hafa
verið sem hjer segir: Hjá ylfingum 30
flokksæfingar og tekin 23 sárfætlinga-
próf og 3 sjerpróf. Tvær ylfingaútileg-
ur. — Hjá skátum hafa verið haldnir 20
sveitarfundir og 113 flokksæfingar og
tekin 27 nýliðapróf, 6 II. flokks próf,
2 I. flokks próf og 17 sjerpróf. Legið
hefir verið úti í tjöldum 24 nætur með
263 þátttakendum og í skála 16 nætur
með 180 þátttakendum. Gönguferðir
hafa verið farnar 4. Auk þess tók fje-
lagið þátt í ársskemtun skáta, skáta-
guðsþjónustu og skrúðgöngu, móttöku
norsku skátanna, söfnunum í land-
skjálftasjóð, dauðaleit og varðeldasýn-
ingu í Öskjuhlíð. Einn skáta átti fje-
lagið á Vármlandslágret. Námskeið var
haldið um haustið með kennara frá
Rauða krossinum.
Stjórn fjelagsins skipuðu: Hörður
Jóhannesson, formaður, Haraldur Sig-
urðsson, ritari, Þórarinn Björnsson,
gjaldkeri, Guðmundur Ófeigsson og
Baldur Jónsson.
Skátasveit Akureyrar, deildarforingi
Gunnar Guðlaugsson.
I fjelaginu eru 10 skátar og 26 ylf-
ingar. Hafa þeir starfað allmikið
á árinu, haldið 30 sveitarfundi og 50
flokksæfingar og tekið allmörg próf.
Útilegur hafa verið 57 nætur í tjöldum
og 6 í skála. Gönguferðir 68. Auk þess
foringjanámsskeið, dauðaleit o. fl.
í stjórn sátu: Gunnar Guðlaugsson,
Sig. Áskelsson og Ing. Kristinsson.
Skátaf jelagið „Fálkar“, Akureyri,
deildarforingi Jón Norðfjörð.
Skátafjelagið „Fálkar“ er nýtt fje-
lag, sem stofnað var á Akureyri 21. maí
12
1934, og telur það nú þegar 19 skáta og
21 R.-S. Hefir það starfað mjög mikið,
og meðal annars bygt sjer skálann
„Fálkafell“. Hjá skátunum hafa verið
haldnir 10 sveitarfundir og 23 flokks-
æfingar og tekin 12 nýliðapróf. En R.-
S. hefir haldið 7 sveitarfundi og 17
flokksæfingar. Legið hefir verið 31 nótt
í tjöldum og 82 nætur í skála með 134
þátttakendum. Farið hefir verið í 4
gönguferðir. Önnur starfsemi fjelags-
ins hefir verið (orðrjett úr ársskýrslu
til B. I. S.) : Skátadagurinn á Akureyri
1934 (sumardagurinn fyrsti), skáta-
hlutavelta, St. Georgs fagnaður, heim-
sóttir af Sauðárkróksskátum og 14
norskum skátum. Stungu upp og sáðu
í jarðeplagarða fyrir veika og fátæka,
hjálpað líknarfjelögum við skemtanir
o. fl. Löggæsla við íþróttamót Norðlend-
inga 17. júní, sundmeistaramót Islands
á Akureyri og margskonar hjálp til
Rauða kross deildar Akureyrar o. fl.
Tekið á móti ca. 450 gestum að „Fálka-
felli“ og þeim gert gott, er vildu.
Stjórn fjelagsins skipuðu: Jón Norð-
fjörð, formaður, Þórður V. Sveinsson,
gjaldkeri, og Jón Hallgrímsson, ritari.
Varadeildarforingi er Skjöldur Hlíðar.
Skátaf jelag Hafnarf jarðar, deildarfor-
ingi Jón Mathiesen.
Skátafjelag Hafnarfjarðar telur nú
um áramótin 17 skáta og 20 ylfinga.
Hafa verið haldnar 23 flokksæfingar
með ylfingum og tekin 16 sárfætlinga-
próf. Hjá skátunum voru haldnir 18
sveitarfundir og 40 flokksæfingar og
tekin 9 nýliðapróf og 3 II. flokks próf.
Útilegunætur í tjöldum hafa verið 10
með 26 þátttakendum og ein skálaúti-
lega með 14 þátttakendum. Farið hefir
verið í 8 gönguferðir. Skemtun hjelt
fjelagið 2. apríl. Einnig tók það þátt í
SKÁTABLAÐIÐ