Skátablaðið - 01.07.1935, Page 18
Gönguför.
Um hvítasunnu síðastliðna fór hópur
af R.S.-skátum Væringja í Reykjavík
í mikla gönguför. Var gengið frá Ár-
mannsfelli í Þingvallasveit að Skjald-
breið og tjaldað þar til einnar nætur.
Næsta morgun var svo gengið að Hlöðu-
felli og þaðan að Hagavatni, sem er við
rætur Langjökuls. Þar var tjaldað yfir
næstu nótt og skoðað nágrennið, en síð-
an var gengið að Haukadal í Biskups-
tungum. Þar fengu skátarnir sjer bað,
áður en sest var í bílana, er fluttu þá
til bæjarins, eftir minnisstæða gönguför.
„Lessons from the Varsity of Life“
er nafnið á bók þeirri, sem R. B. Po-
well lávarður hefir ritað um æfi sína.
Eins og nærri má geta, er þetta stór-
merkileg bók, sem allir skátar, er ensku
lesa, hefðu gott og gaman af að kynn-
ast. Eflaust geta allir bóksalar útvegað
bókina. Hún kostar úti í Englandi 12
sh. og 6 p.
i
Ahaldavörður.
Hann sjer um útbúnað sveitarinnar,
svo sem tjöld, suðuáhöld og slíkt. Hann
hefir og eftirlit með samkomuherbergi
sveitarinnar.
Áhaldavörður er útnefndur af sveit-
arforingja hverrar sveitar í samráði við
foringjaráð sveitarinnar.
Einkenni áhaldavarðar eru þannig:
Hann ber á vinstri brjóstvasa áhalda-
varðarmerkið, sem er exi á bláum
grunni. Einnig ber hann hvíta snúru
um vinstri öxl.
16
Skátablaðíð,
sem er málgagn Bandalags ísl. skáta,
á í framtíðinni að koma út tvisvar á ári.
Næsta blað kemur út í október.
Eins og kunnugt er, gáfu „Andvar-
ar“ á Sauðárkróki út fjölritað blað með
sama nafni og þetta blað, og var ritstj.
þess Frank Michelsen. Nú hefir B. í. S.
fengið leyfi Fr. Mich. og sjera Helga
Konráðssonar (sem tók við formensku
„Andvara“, er Frank fór til Reykjavík-
ur) til að nota nafnið á þeirra blaði á
blað B. í. S. Eins og annarsstaðar er
getið um, er Fr. Mich. ráðinn aðstoðar-
ritstjóri við þetta nýja Skátablað, og er
það von vor, að lesendur og velunnarar
gamla blaðsins, sem voru orðnir marg-
ir, sýni þessu blaði sömu velvild.
Skátablaðið vill hafa sem best sam-
band við skátaforingja fjelaganna og
einstaka skáta og biður þá um að senda
sjer, sem oftast, frjettapistla frá fje-
lögunum og frásagnir úr skátalífinu og
einnig góðar myndir. Alt slíkt merkist:
Skátabladið. Pósthólf 966. Reykjavík.
í sæluhúsi.
Útgefandi: Bandal. ísl. skáta.
Ritstjóri: Jón Oddgeir Jónsson.
ísafoldarprentsmiðja h.f.
SKÁTABLAÐIÐ