Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.09.1910, Side 2

Sameiningin - 01.09.1910, Side 2
194 1 fyrsta lagi er komið með þá röksemd, að vér þörfn- umst fjárins, sem til þessa gengr, heima hjá oss, og höfum ekki ráð að senda það burt. Eg er sannfœrðr um, að mótbára þessi er óvit. Prestar þeir, sem hér eru saman komnir, munu geta um það borið með mér, að fé það, sem fram er lagt til kristniboðs meðal lieiðingja, er ekki tekið af fénu, sem fyrir höndum er til heima- trúboðs. Kristniboði í heiðingjalöndum er jafnaðar- lega lialdið uppi, að því er til kostnaðar kemr, af þeim mönnum, sem mestan hafa áhuga á trúboði heima fyrir. Þeir, sem fœrast undan því, að leggja fram fé til stuðn- ings heiðingjatrúboði, og bera það fyrir, að þeir þurfi þess fjár til heimatrúboðs, finna oftast einliverja á- stœðu fyrir því, að halda peningum sínum hjá sér, einnig þá er frá þeim er tillaga leitað til eflingar kristniboðinu heima fyrir. Af áhuga þeim, sem vaknar við starf í öðrum löndum, fœrist hluttekningarsemi kristinna manna svo út, að fyrir þá sök er af hálfu þeirra heimatrúboðs-starfið betr stutt en verða myndi, ef liætt væri við starfið út á meðal heiðnu þjóðanna. Skyld fyrstu mótbárunni er sú önnur, að vér ættum að bœta úr bölinu heima áðr en vér förum nokkuð að fást við að veita fólki í öðrum löndum frœðslu. Enginn mun því neita, að vér höfum mikið að gjöra heima fyrir; en lengi yrðum vér víst að bíða með að liðsinna öðrum, ef vér ættum að láta það vera þangað til vér erum orðn- ir fullkomnir. Skorist sá eða sá einstaklingr undan því að veita öðrum heilræði, eða liðsinna þeim til að laga líf sitt, þangað til hann hefir sjálfr náð stigi fullkomn- unarinnar, þá verðr hann aldrei öðrum að gagni, því enginn af oss er maðr fullkominn. Sama er um þjóð vora í heild sinni að segja: Bíði hún með að koma öðr- um þjóðum til hjálpar þar til öllum þörfum heima fyrir hefir verið fullnœgt, þá má hún bíða. til eilífðar. Hversu miklum framförum sem vér tökum, þá eigum vér þó á- vallt langt í land til fullkomnunar; því hærra sem vér lyftumst upp, því lengra fœrist sjóndeildarhringr vor út, því meira og fleira komum vér auga á, sem gjöra

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.