Sameiningin - 01.09.1910, Page 7
199
maðr hefir drottin guð að upphafi hugsunar siuuar.
Leyndarmál sköpunarinnar skýrist ekki neitt við það,
þótt að því sé gengið sem vísu, að efni og afl sé eilíft;
kristinn maðr hefir það að undirstöðu hugsunar sinnar,
að guð sé eilífr; í því er meira vit.
Örðugt er að skiJja, hvernig til geti verið almáttugr,
alvitr guð, fullr kærleika — skapari allrla hluta—, en
enn örðugra er að skilja, hvernig til getr verið heirnr
einsog sá, sem vér sjáum umhverfis oss, án slíkrar
œðstu veru, sem verið hefir frá eilífð, hefir skapað
heiminn og stjórnar honum. Mannlegri hugsan veitir
hœgra að trúa á slíkan guð en að trúa einliverri annarri
sköpunar-tilgátu; og því er það, að trúin á skaparann
er til nálega lijá öllum mönnum. „Himnarnir segja frá
dýrð guðs, og festingin kunngjörir verkin hans handa.“
Máttr hans, vísdómr og kærleikr er öllum augljós af
því, livernig liann hefir séð fyrir velferð barna sinna.
Og live algjörlega vér erum uppá hann komnir! „Gef
oss í dag vort daglegt brauð‘ ‘ er ekki bœn aðeins í orði
kveðnu. Ef liann léti af því að safna saman gufunni
frá liafinu og mynda úr henni ský, þá myndi allt líf
hverfa af jörðinni; en vér höfum fyrirlieit hans um vor-
regnið og liaustregnið, um sáðtíð og uppskeru. Varpaði
hann blæju á milli vor og sólarinnar, þá myndi nóttin
hafa í för með sér svefn þann, sem enginn myndi af
vakna; en oss er á degi hverjum úthlutað ljósi og
hita eftir því, sem vér þörfnumst, og jafn-örlátlega veit-
ir liann gjafir þær mesta smælingja einsog mesta stór-
menni. Það er því engin furða, þótt hann sé nefndr
faðir, faðir allra, hvort sem þeir kannast við það, sem
þeir eiga honum að þakka, eða ekki.
Kristr lýsir föður-umhyggju guðs með lifandi
dráttum, er hann segir oss, að jafnvel hárin á höfðmn
vorum sé talin, og hve mikil kærleiksviðkvæmni og
huggun birtist í þeirri yfirlýsing hans, að guð sé enn
fúsari en nokkur jarðneskr faðir til að veita börnum
sínum góðar gjafir!
Samband það, sem maðrinn lætr verða. milli sín og
guðs, hefir í för með sér mikilvægustu áhrifin, sem