Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.09.1910, Side 11

Sameiningin - 01.09.1910, Side 11
203 Kristin mikilmenni. Eftir séra Guttorm Guttormsson. I. Daníel Webster. Vantrúarmalðrinn Thomas Paine spáði því fyrir rúmri öld, að eftir hundrað ár myndi menn verða hættir að iesa biblíuna — nema þá fáeinir sérfrœðingar, er legði stund á bókmenntir Semíta. Svo heimskulegt og haldlaust fannst honum trúarberfið kristna, sem byggt er á kenningum þeirrar bókar. En nú eru þessi hundr- að ár iiðin, og meira til, en ])ó eru þeir enn í dag fleiri, sern lesa heilaga ritning en lnnir, sem lesa bœkr Paine’s. Og rneira að segja, biblían er enn í dag sú bók, sem lang-mesta sölu hefir af öllum bókum. Og þó var Paine óefað fremr skarpskyggn maðr. En hann var vantrúarmaðr, þekkti ekki kraft kristinn- ar trúar af eigin reynslu. Því var það, að honum skjátlaðist. 0g hann sannaði orð ritningarinnar sjálfr- ar með þessum spádómi sínum: „Náttúrlegr maðr veit- ir ekki viðtöku því. sem guðs anda er, því að honum er það heimska, og hann getr ekki skilið það, því það dœmist andlega'‘ (]. Kor. 2, 14). Og þetta er einmitt grunntónninn í öJlum óvingjörnum dómum um megin- mál kristinnar trúar, að það sé heimslca, sem enginn skynberandi maðr geti látið sér detta í hug að trúa, nema þá með því að draga svart strik yfir meira en helming þess. Að postullegr kristindómr sé fásinna ein, samsafn af hugsunarvillum og hindrvitnum, mót- sögnum—, fásinna, sem Jifað hafi á lirœsni, hleypidóm- um, og umfram allt á þekkingarskorti, — fásinna, sem nú sé komin á vonarvöl, verði nú að víkja fyrir vaxandi menntun og þekking. Þannig hugsuðu andmælendr kristindómsins þegar á dögum Páls postula; þannig hugsuðu þeir á dögum Celsusar; þannig hugsuðu þeir á dögum Thomasar Paine’s; þannig hugsa þeir enn í dag. Og samt lifir kristin trú og þróast, tekr framförum, þrátt fyrir allar hrakspár.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.