Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.09.1910, Side 15

Sameiningin - 01.09.1910, Side 15
207 þau eru notuð meðal manna, geti ekld í ströngustu merk- ing sinni orðið notuð réttilega, þá er talað er um guð- dóminn. Eg trúi kenningunum um fvrirvitund guðs og fyr- irhugun, er þær eru útskýrðar á þennan kátt. Eg trúi ekki þessiun kenningum, þegar þeim er haldið fram á þann veg, að það, sem mennirnir aðhafast, sé bundið óhjákvæmilegum forlögum, eða frjálsræði manna tak- markað á nokkurn hátt. Eg trúi því, að allir menn sé allskostar ófcerir til að vinna að eigin sáluhjálp sinni án stöðugrar aðstoðar heilags anda, sem alla náð gefr. Eg trúi á þessi tvö sérkenni kristinnar trúar: upp- risu framliðinna og dómsdag. Eg trúi á þessi mikilvægu einkenni guðdómsins, og leiði minn hest frá ósamkvæmni Epikúrs — og læri- sveina hans á vorum dögum—, sem halda því fram, að guð hafi skapað heiminn, en vilji svo ekki hafa fyrir því að stjórna honum. Þótt eg beri milda viríðing fyrir tilbeiðslu-formi margra annarra trúarflokka, þá líkar mér bezt við að- ferð Kongregazíónalista, að öllu samanlögðu. Eg trúi því, að trúarbragðakerfi eigi ekki að hvíla á sönnunum, heldr á trú. Guð krefst þess af oss, að vér trúum þeim sannindum, sem hann opinberar, ekki af því að vér getum sannað þau, heldr af ]>ví að hann birtir oss þau. Þegar hugr vor hefir af góðum og gildum á- stœðiim sannfœrzt um það, að biblían sé guðs orð, þá liggr engin önnur skylda fyrir oss en að taka við kenn- ingum bennar með fullu trausti á sannleiksgildi þeirra, og lifa eftir beim í hreinleik hjartans. Eg trúi því, að hverja málsgrein biblíunnar beri að skilja á þann hátt, sem eðlilegastr er og beinast liggr Adð. Því með engu móti get eg fallizt á það, að sú bók, sem ætluð er öllurn heimi til lærdóms og aftrhvarfs, muni svo gjörsamlega hjúpa liiun sanna boðskap sinn í leyndardómum og efasemdum, að engir nema frœðimenn og heimspekingar geti fundið þar sannleikann. Eg trúi því, að tilgátur og smásmuglegir vafningar

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.