Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.09.1910, Side 23

Sameiningin - 01.09.1910, Side 23
215 Skúladóttir Guðmundssonar, 85 ára gömul, eiginkona Þorkels GuS- mundssonar, sem nú er blindr og aldrhniginn á vegum sona sinna hér í byggS. Anna heitin var fœdd að Krossi í Óslandshlíö í Skagafiröi, bjó meö manni sínum lengst aö ;Vöglum í Skagafiröi, unz þau fluttust til Vestrheims áriö 1884. Fjórir synir þerira hjóna eru hér búsettir: Skúli, Hinrik, Stefán, Pétr og Valdemar.—Hún var guðhrædd kona og bjóst viö dauða sínum. einsog guös barn. B. B. J. Látinn er í Þingvallanýlendu, Sask., Arngrímr Kristjánsson, um fimmtugt, ættaör af Þelamörk á íslandi. Heyröi til Þingv.nýl,- söfnuöi, vænn maör, fáskiftinn og grandvar. Andaöist 30. Ágúst. Lætr eftir sig ekkju, Ásu Sólveigu, og þrjá syni; hinn elzti þeirra var fermdr í vor, sem leiö. H. J. L. 24. Ágúst síðastl. lézt Halldór bóndi Halldórsson í Mikley, eftir fulla þriggja ára þunga sjúkdómslegu. Hann var ættaSr úr Borg- arfirði sy'Sra, fœddr á Kaöalstööum, en bjó sjálfr, þa'S sem hann bjó á íslandi, á Bjargasteini í Stafholtstungum. Flutti vestr um haf 1878. Fór þá til Mikleyjar og bjó þar jafnan síSan. Halldór heitinn var mesti sœmdaijmaSr, alvörugefinn og vandaSr. Um trú- arefni hugsaöi hann mikiö. Var sjálfr trúmaör ákveSinn og hafSi mikla raun af, hve sljótt og hugsunarlítiS fólk yfirleitt væri í þeim efnum. Sex börn Halldórs eru á lífi: Jóhannes bóndi í HlíSarhús- um, Þorsteinn í Toronto, Sigríör kona Bjarna Stefánssonar í Mikl- ey, Sigrlín kona Jóns Sigrgeirssonar, einnig þar í eynni, og tvær dœtr annarsstaðar hér vestra. Sjúkdóm sinn bar Halldór meö frá- bæru þreki og var þö sjúkdómnum svo báttaö, aö hann mátti ekki snúa sér í rjúminu, heldr liggja í sömu stellingum, alla leguna í gegn. Jarðarför hans fór fram 29. Ágúst, og var fjölmenn, þrátt fyrir hellirigning þann dag. Jóh. B. Sveinbjörn Sigurðsson andaðist á heimili sínu í Mouse River byggö í Norör-Dakota 7. Sept. 1910. Lifir hann ekkja hans, Sig- ríör Sveinsdóttir, og einn sonr, Sveinn. Gullbrúðkaup þeirra hjóna var af byggðarmönnum haldið af mikilli rausn í Júní síðastliðnum. Sveinbjörn heitinn var tæpra 73 ára, er hann dó, f. 30. Sept. 1837. Hann var sonarsonr séra Sigurðar á Auðkúlu, sem víða var þekktr. Lengst bjuggu þau hión, Sveinbjörn 'og Sigríör, heima á íslandi aö Ósi í Eyjafiröi, og voru orðlögö fyrir gestrisni. Eftir aö þau komu til Vestrheims bjuggu þau fvrst mörg ár í Garðar-byggð, þartil þau fvrir eitthvaö tólf árum fluttust vestr í Mouse River byggö. — Sveinbjörn Sigurösson var maðr vinsæll mjög —- og glaðlyndr, guðhræddr og greiövikinn. Jarðarför hans fór fram 10. Sept., aö viðstöddu fjölmenni. K. K. Ó.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.