Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.01.1911, Síða 8

Sameiningin - 01.01.1911, Síða 8
324 (Hebr. 7, 25), og að lionum er gefið allt vald bæðí á himni og jörð (Matt. 28, 18). Freistingarnar geta ver- ið áleitnar og óvinrinn sterkr, en Jesús er þó sterkari. Hann verðr aldrei máttvana. Hann getr gefið sigr yfir freistingum, ástríðum og synd. YSr er lagt í skaut að vinna sigr á hverjum degi og á hverri stundu, ef þér haldið áfram að líta til Jesú. Biðjið hann og treystið honum einnig, að gefa yðr anda sinn, um leið og þér, að yðar leyti, gefið heilögum anda full yfírráð yfir lífi yðar. í þessu er fólginn sá leyndardómr að líkjast Kristi (Gal. 5, 22. 23; Róm. 8, 2. 3)* Til þess að vita á öllum stundum lífsins, livað gjöra á, þá haldið áfram að „líta til Jesú“ og fylgja honum (Jóh. 8, 12). Gleymið ekki að nota hvert tœkifœri, sem gefst, til að játa Krist fyrir heiminum, bæði á almennum sami- komum og í persónulegri xungengni yðar með öðrum mönnum. Ef vér könnumst við hann, kannast hann við oss (Matt. 10, 32), og er hann kannast við oss, þá gefr guð oss ríkulega heilagan anda sinn. Ef þér viljið mikla Krist, þá gjörir hann mikiÖ úr yðr; en ef þér gjörið lítið úr Kristi, þá gjörir hann lítið úr yðr. Eg treysti því, að þér haldiÖ áfram að 'liafa guðs orð daglega um hönd. IJversu önnum kafin sem þér svo kunnið að vera, þá megið þér með engu móti við því, að láta nokkurn dag líða svo, að þér lmfið ekki varið að minnsta kosti einum fimmtán mínútum til þess með trúmennsku, guðrœkilegri umhugsun og bœn, að lesa orð hans, svo þér fáið vaxiÖ (1. Pét. 2, 2). Það er fyrir lestr orðsins, að Jesús dvelr meir og meir hjá yðr (Jóli. J5,7), og það er fyrir orðið, að heilagr andi vinnr náðarverk sín (Efes. ö, 17). Takið yðr nœgilegan tíma til bœna. Byrjið hvern dag með guði. Talið við bann áðr en þér rísið úr rekkju. Krjúpið á kné eftir að þér eruð klaédd, og talið við hann áðr en þér taliÖ við nokkra mannlega veru. Tjáið honum allt, sem yðr bvr í brjósti, allt, sem þér óttizt, alla erviðleika og raunir og allt, sem yðr hefir mistekizt. Munið, að guð er faðir, og að þér getið enn betr opnað hjörtu yðar fyrir honum og treyst honum

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.