Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.01.1911, Síða 11

Sameiningin - 01.01.1911, Síða 11
327 var vitnisburði þeirra tafarlaust andmælt. Síðarmeir var hæðzt að framburði þeirra. Voru þó auðvitað svo snemma á tímum nœg tœkifcori til að komast að hinu sanna. Þetta er sterk bending í þá átt, að munnmælin sé sönn. 2. freneus segir í bók þeirri, er eg hefi oft áðr vitn- að í: „Söfnuðrinn í Efesus, sem Páll stofnsetti og Jó- hannes dvaldi hjá um langan tíma, fram á daga Trajans (keisara), en sannort vitni um það, sem eftir postulun- um er haft.'*1) Nú var Trajan við völd frá 98—117 e. Kr. Einnig segir íreneus oss frá því, að Jóhannes hafi hrópað upp, er liann var staddr í baðhúsi einu í Efes- us: „Flýjum héðan, svo húsið hrynji ekki, því Cerin- þus, óvinr sannleikans, er hér inni.“2) Þetta er haft eftir Polykarp, sem var samtíðarmaðr Jóliannesar postula um 20—25 ár, var lærisveinn lians og síðar biskup í Smyrna, borg, sem er um 40 mílur frá Efesus. Einnig nefnir íreneus sérstaklega rit þeirra Matte- usar, Markúsar og Lúkasar, og minnist einnig um leið á rit þeirra Páls og Pétrs. Síðan segir hann: „Síðan samdi Jóhannes, lærisveinn drottins, sem hvíldist við brjóst hans, gud'spjall, meðan hann dvaldi í Efesus í Asíu.“3) 3. Evsebíus sagnaritari laefir það eftir Apollóníus nokkrum, sem var uppi um lok annarrar aldar, að „Jó- hannes, sem reit Opinberunarbókina, hafi lífgað dauðan mann í Efesus, fyrir kraft drottins.“* 4). En allir kann- ast við það, að fornkirkjan áleit, að höfundr guðspjalls- ins og- Opinberunarbókarinnar væri einn og sami maðr. Þetta bendir því á, að Jóhannes postuli hafi átt heima í Efesus. 4. Polykrates nokkur, sem var uppi um 190 e. Kr., segir í bréfi, er liann reit til Viktors biskups í Róm, að Jóhannes, sem hvíldist við brjóst drottins, sé grafinn í Efesus. Nú átti Polykrates heima í þeirri borg, er liann reit bréfið. Má því ætla, að hann hafi aðeins sagt i) Adv. Haer. 3, 3. 2) Adv. Haer. 3, 4. 3) Adv. Haer 3, 1. 4) Hist. Eccl. 5, 18.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.