Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.01.1911, Side 13

Sameiningin - 01.01.1911, Side 13
329 spjallið. Að g'uðspj. sé eftir Jóhannes stendr í hverju einasta grísku afriti þess og hverri einustu þýðing. Hví skyldi svo hljóðandi fyrirsögn koma fyrir jafnvel í elztu afritum, ef Jóhannes liefði ekki ritað guðspjallið! Um getgátu þá, að einhver annar Jóhannes, sam- tíðarmaðr Jóhannesar postula, hafi ritað guðspjallið (sem nú er lialdið fram af sumuin), skal eg vera fáorðr. 1 mínum augum er hún sprottin af þeirri löngun til að vefengja, sem svo oft fer út fyrir öll skvnsamleg tak- mörk. Það, að eg hefi ekkert fundið því til sönnunar, að þessi annar Jóhannes liafi nokkurn tíma verið til, nema ágizkun eina í sögu Evsebíusar, munnmælasögu um tvær grafir í Efesus, og það, með hve óákveðnum oi’ðum sumir kirkjufeðrnir (t. d. Papías) minnast á Jóhannes, en að liinu leytinu eins skýlaust álit forn- kirkjunnar á þessu atriði einsog að framan hefir verið bent á, er mér nœg ástœða til að sannfœrast um það af sögulegum rökmn, að Jóh. post. liafi ritað guðspjall- ið. Ilvort um sig af þessum atriðum mætti, ef til vill, draga í efa; en vitnisburð svo margra samhljóða votta frá annarri öld fæ eg með engu móti efazt um, einkum þar sem allar tilraunir manna, innan kirkju og utan, til að eigna guðspjallið einhverjum öðrum, enda á spurn- ingarmerki. En það að eigna guðspjallið einhverjum öðrum Jóhannesi, sem hafi ritað frásögn Jóhannesar postula og undir áhrifum hans, virðist barnaleg löng- un til að bera brigð á það að postuli hafi ritað guð- spjallið, sem þó alls ekki næði tilgangi sínum, því þá væri þó við það kannazt, að efni guðspjallsins sé frá Jóhannesi postula. Eg hygg, að það, sem nú liefir verið sett fram í þeim þáttum ritgjörðar þessarrar, sem hér hafa farið á undan, bendi skýrt á það, að Jóhannes postuli hafi ritað guðspjallið. Eftir er að benda á vitnisburð guð- spjallsins sjálfs, um þetta atriði, og vil eg leitast við að gjöra það í næstu þáttum.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.