Sameiningin - 01.01.1911, Qupperneq 18
334
lega íklæðist ódauðleikanum’, er það, sem sáð er í mynd
náttúrlegs líkama, rís upp (og verðr) andlegr líkami,—
hún er eldii dularfyllri en lífið nýja, er sprettr uppaf
frækorninu, sem ekfd verðr lífgað nema það deyi’. Hafi
frjóangi lífsins í hveitikonninu í sér mátt til að gjöra
sér nýjan líkama, svo líkan gamla líkamanum, að vér
þekkjum þá líkami ekki að, — geti frjóangi lífsins í
hveitikorninu óskaddaðr farið gegnum margar upprisn
ur, þá mun eg ekkert um það efast, að andi minn er
þess um kominn að íklæðast líkama, sem á við hina
nýju tilveru hans, þá er sá líkami, sem eg nú ber, er
orðinn að dufti. Og víst fær enginn mælt huggun þá,
sem fyrir þessa ódauðleika-trú hefir streymt inní syrgj-
andi mannshjörtu.
Berum það, sem kristin trú sér í tilverunni á himn-
um, saman við það, er kennendr annarra trúarbragða
halda fram um samskonar efni. Konfúcíus sneiddi
alveg lijá því máli — málinu um ódauðleikann; Kristr
aftr á móti gekk svo frá því efni, að þar þarf enginn
að vaða í villu og svíma. Myndin, sem í kóraninum
(trúarbók Múhamedsmanna) er dregin upp af sælustaðn-
um í öðrum heimi, hlæs engum guðlegri hugsan í brjóst,
enda vekr ekki heldr neina helga þrá; biblían liinsvegar
sýnir himininn svo, að liugr vor lyftist upp við þá
sýning, hvatir vorar hreinsast og lífið göfgast.
f Búdda-trú er litið á lífið, sem sé það í sjálfu
sér böl, enda losna menn samkvæmt kenningum þeirrar
trúar við það á þann hátt, að þeir hætta að vera til sem
einstaklingar; kristindómrinn aftr á móti frœðír oss um
það, að með lífinu sé oss veitt tœkifœri til meiri og
meiri fullkomnunar, — tœkifœri til undirbúníngs undir
enn œðra líf í öðrum lieimi, sem veit af tilveru sinni og
gjörþekkir einsog vér erum gjörþekktir; það eru Laun-
in, sem drottinn veitir þjónum sínum.
Trú á ódauðleik er meira en huggun; með því afli
er girndunum einnig haldið í skefjum. ódauðleika-
trúin miðar að ])ví að koma hér á réttlæti og góðvild
til undirstöðu bróðurhuga manna á milli. Sá, sem býst
við að lifa eftir dauðann og að sjá augliti til auglitis,