Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.01.1911, Blaðsíða 21

Sameiningin - 01.01.1911, Blaðsíða 21
337 menn sér til fylgdar og þeir taka því boði. Hópr ann- arra tólf myndast. Og það, sem gjörðist í landinu lielga fyrir nítján öldum, endrtekst á vorum dögum og í eigin augsýn vorri.‘ ‘ KveSjuorð til fólksins í Nýja Islandi. Guð blessi Nýja Island. I fátœkt mikilli var það landnám stofnað. Við ýmsar hörmungar hefir fólk þar átt að stríða; söguríkari eru þó þær stöðvar en nokkrar aðrar Islendinga-stöðvar í Ameríku. Og vænt hefir þeim þótt um átthaga sína, sem þar hafa búið. Frá því fyrst, er eg var, drengr og sá Nýja ísland vorið 1884, hefir enginn staðr verið mér kærri. Þegar eg byrjaði að þjóna landsvæði þessu sem prestr fyrir nærri því tíu árum, langaði mig til að verða fólkinu þar í einhverjum skilningi að notum. Nú er eg hefi lagt niðr starf í því byggðarlagi, finn eg, að eg sakna margs; því sælustund marga hafði eg í Nýja Islandi þessi tíu ár. Að flytja fólki þessu orð drottins, einsog því var víða veitt góð viðtaka, var yndi. Hátíðlegastar voru mér fermingar- og altarisgöngu-stundirnar. Með fám undantekningum, voru þær mér sæluríkar fram yfir það, sem eg get lýst. Nálega allr ungmennahóprinn, sem eg leiðbeindi til fermingar, var mér frábærlega góðr. Sum þeirra ung- menna hafa reyndar, því miðr, grætt mig með fráhvarfi sínu síðan, en fleiri hafa þó orðið mér til gleði. Og fólkið. Eg fór um byggðina fram og aftr, og varla getr talizt, að eg liitti nokkursstaðar annað en ein- læga vini, er veittu mér alla þá gestrisni, sem heimili þeirra gátu í té látið. Fyrir tíu ára samvinnu, fyrir tíu ára kærleik þakka eg. 0g eg þakka fyrir konuna mína og börnin mín. Guð blessi yðr, Ný-lslendingar! og gefi yðr þyrstum að drekka hið lifanda vatn, sem er Jesús Kristr, lífsbjörg mannkjmsins. Rúnólfr Marteinsson. Kveðjuorð þessi áttu að koma í Desember-blaðinu, en urðu fyrir vangá ritstjóra að bíða.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.