Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.01.1911, Blaðsíða 23

Sameiningin - 01.01.1911, Blaðsíða 23
339 Decorah í Iowa, 19. Des. Þar hafSi hann átt heima síðan hann með konu sinni, sem enn er á lifi, kom vestr heiman frá Norvegi í Des. 1853. Fœddr í Björgvin 22. Des. 1826; útskrifaðr frá lærðum skóla þar 1844 og háskólanum í Kristjaníu 1850. Eftir komu sína vestr var hann um hríS eini norski prestrinn fyrir vestan Missis- sippi; hafSi því afar víðlent starfsvæSi, og var þá lengstaf á trúboSs- ferSum, sem vitanlega hafa oft hlotiS aS vera næsta erviðar, því járnbrautirnar mörgu, sem nú hafa svo lengi samtengt byggðirnar í þeim héruSum landsins, voru þá vitanlega ekki til. Koren var miklum hœfileikum búinn og hinn höfSinglegasti álitum; hafSi hann hlotiS ágæta menntan í Norvegi og allra manna líklegastr til aS komast þar hiS bráSasta í háa stöSu. Þótti hann því sýna meir en litla sjálfsafneitanj er hann kaus sér þann kost aS slíta sig aS heiman og kasta sér innx baráttu frumbýlings-lífsins meðal útfluttra Ianda sinna hér vestra. Sinn þátt — og ekki lítinn — átti hann í þvi að Norska synódan, sem, var í fyrstu myndan, er hann kom frá Norvegi, mótaðist andlega einsog reynd varð á. Hin kirkjulega alda, sem þá var risin upp í Norvegi með öðrum eins mönnum og þeim Gísla Johnsen og Caspari, rann þar saman við hina einstaklegu rétttrúnaSar-stefnu Missouri-synodunnar eSa læri- sveina Walthers, hins strang-lúterska þýzka læriföSur í St. Louis. A þeim grundvelli var meginkirkjan norsk-Iúterska reist hér í álfu, og var Koren frá upphafi einhver helzti kirkjusmiSrinn. Einkum framanaf var barátta mikil samfara því kirkjulega verki, því mót- spyrna úr ýmsum áttum var all-sterk. Leiknir urSu því leiðtogar þessarrar norsku kirkjudeildar brátt í því að beita andlegum vopn- um til sóknar og varnar, og gat enginn betr kennt brœðrum sínum þá iþrótt en dr. Koren. Fyrst lengi átti Norska synódan einkum i höggi viS þá kirkju- deild lúterskra NorSmanna, sem nefnd var Konferensan; en í seinni tíS hefir baráttan helzt verið við Sameinuðu kirkjuna norsku, sem að meginstofni sinum er upphaflega partr af Norsku synódunni og sleit sig þaðan burt fyrir fjórðungi aldar. Á svæðinu, þar sem Koren rak fyrst trúboð meðal landa jinna. eru nú um sextiu prestaköll. Koren var frá upphafi e:n af máttarstoðum Decorah-skóla JLuther College í Decorahj, og tók þar stxxndum þátt í kennslu. Átján ár var hann forseti Iowa-deildar Norsku synódunnar og siðan hins mikla kirkjufélags í heild sinni frá 1894; en síSustu árin hefir dr. H. G. Stub, varaformaSrinn, aS lang-mestu leyti gegnt störfum forseta, og að Koren látnum hefir hann nú algjör- lega tekið viS leiStogastöðunni. ----------o--------- Þá er annað bindið af Ben Húr í íslenzku þýðingunni kom frá bókbindara rétt fyrir jólin, reynd'St hinn ytri frágangr ótœkr, og varð svo úrræSið að halda þvi ekki í þeirri mynd út til sölu meðal almennings, heldr stinga þvi undir stól. En í þess stað er

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.