Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.08.1912, Qupperneq 2

Sameiningin - 01.08.1912, Qupperneq 2
nokknr persónulegr guð sé til. Ilinn aftr á móti telr kristindóm eiga heima í öllum (eða flestum) trúarbrögð- um heims; kallar það kristindóm, sem þeim öllum, undir- niðri, ef ekki ofan-á, sé sameiginlegt; og vill þá sennilega kalla það kristindóm, sem nýja guðfrœðin boðar almenn- ingi, er liún liefir stungið undir stól gjörvöllu meginmáli trúar vorrar einsog það er til vor komið frá Jesú Kristi og postnlum hans í ritningurn nýja testamentisins. Niðrstaða liins tvöfalda vitnisburðar verðr svo hljóðandi: Nýja guðfrœðin er algjört fráfall frá trú þeirri og kenning, sem ráðið hefir í öllum átturn krist- innar kirkju frá því fyrst, er liún fyrir nítján öldum reis upp í heiminum. Nýja guðfrœðin er andspænis kristin- dóminum — hinum sögulega kristindómi lieilagrar ritn- ingar — blátt áfram afneitan eða vantrú; „hrein heiðni4 ‘ — segir annar lækniiinn. Frá því er nýja guðfrœðin fyrir rúmum ára- tug fór fyrst að láta til sín heyra í kirkju- sögu þjóðar vorrar, skildist víst flestum Islend- ingum, sem þann boðskap lieyrðu, að þar væri að ein- liverju leyti horfið frá kristindóms-kenningunni gömlu. En að live miklu leyti þar var breytt til gat virzt vafa- samt. Margir áttuðu sig ekki á því, livert nýmælin stefndu; enda fóru nýmælamenn fyrst framan-af tiltölu- lega hœgt í sakirnar í samanburði við það, er síðar varð. Þeim var og naumast sjálfum í upphafi ljóst, livert kenningar þeirra stefndu; en stefnubreytingin, sem þeir höfðu aðhyllzt, varð brátt meiri en til var ætl- azt. Nú er fvrir nokkru svo komið, að engum á lengr að geta dulizt, að með nýju guðfrœðinni er verið að prédika almenning lengra og lengra burt frá guðs orði, ekki aðeins í þeirri mynd, er það hefir í gamla testa- mentinu, lieldr og guðs orði einsog það liggr fyrir oss í ritningum nýja testamentisins. tír þessu getr ekki komið til mála að veita nýju stefnunni jafnrétti í kirkjunni með gömlu stefnunni; því það væri sama sem að ákveða, að kirkjan skuli vera með öllu stefnulaus.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.