Sameiningin - 01.08.1912, Page 4
164
Ecce Homo.
('Sjáiö manninn 1)
Fyrirlestr fluttr á kirkjuþmgi 21. Júní 1912.
Eftir séra Bj'órn B. Jónsson.
Dómarinn leiddi bandingjann út og sagði;: „Sjáið manninn!“
I nítján aldir er nú heimrinn búinn aS horfa á hann, og þvi
lengr sem á hann er horft, þeim mun stœrri Qg fegri verðr hann og
— meiri ráSgáta mannkyninu.
HvaS viröist yör um Krist? hvers son er hann?“ spyr einn
maðr annan hvar sem hugsun og menning er á jörðinni. 1 sér-
hverju kristnu mannfélagi er Jesús Kristr sá brennipunktr, sem
allra augu horfa á. Andi mannsins fæst viS þaS meir en nokkuð
annaS, aS gjöra sér fullnœgjandi grein fyrir þessarri persónu, sem
svo einstaklega er stödd í sögu mannkynsins. Þannig hefir þetta
ávallt veriS síSan Kristr birtist hér í mannheimi. Allar aldir hafa
undrandi horft á hann. Óhætt er þó aS fullyrða, aS sjaldan eSa
aldrei hafa menn virt hann fvrir sér meS jafn-mikiili alvöru og al-
mennum áhuga einsog einmitt nú á vorum dögum. Hvar sem nú
er alv.arlega hugsaS um guS og trúna á hann, veröa menn fyrst af
öllu aS gjöra sér grein fyrir þvi, hver Jesús Kristr var. AS þeim
punkt víkja allar hinar nýrri hreyfingar í heimi trúarinnar. Allar
sögulegar rannsóknir, sem svo mjög einkenna vora daga, enda aS
minnsta kosti á því, aS rannsaka söguna um Krist. Biblíu-rannsókn-
irnar svo nefndu, hinar nýju og sérstöku í samtíS vörri, byrjuSu
raunar á mörgu öSru, en nú eru þær komnar aS Kristi sjálfum.
ÞatigaS hlutu þær auSvitaS aS fœrast, því a'ilt annaS í heilagri
ritningu er vegir, sem liggja til höfuSstaSarins, og höfuðstaðrinn er
Kristr.
í rauninni hafa hinar nýju rannsóknir á guSspjöllum nýja
testamentisins ekki leitt í ljós neitt nýtt viSvíkjandi Jesú Kristi. Og
þær nýju kenningar um hann, sem ýmsir ný-guSfrœðingar nú aS-
hyllast, hafa aSrir aShyllzt og kennt endr fyrir löngu.
Þrennskonar skoSanir snertandi persónu Jesú Krists hafa
veriS og eru enn ríkjandi:
1. AS hann sé aS öflu leyti maSr einsog aSrir menn og ekkert
annaS. Hann hafi veriS óviSjafnanlega góSr maSr og réttlátr.
Líka hafi hann verið öSrum mönnum þroskaðri að vizku og háleitri
trúar-reynslu. Menn eigi því að hafa hann fyrir lærimeistara sinn
og kappkosta aS breyta eftir honum, svo þeir einsog hann geti verið
börn hins himneska föSur. Þessarri skoSan fylgja Únítarar. Ekki
gjöra þeir sér þó allir nákvæmlega sömu grein fyrir persónu Jesú,
enda krefjast þess ekki hverjir af öSrum. Sumir þeirra aS
minnsta kosti álíta, að Jesús hafi haft guðs anda í fullkomnara mæli