Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.08.1912, Qupperneq 10

Sameiningin - 01.08.1912, Qupperneq 10
og leitast við að skilja hann, sem gaf þau, getr fœrzt undan þeirri játningu, að hér hafi hið guðlega birzt í eins hreinni mynd og það getr birzt í á jörðu.“ Vísa má einnig til þessarra orða hana: „Þ-essi Jesús, sem kenndi auðmýkt og sjálfs-þekkingu, nefndi samt sem áðr sjálfian sig, og sjálfan sig einan, Son Guðs. Hann er þess fullvís, að hann þekkir föðurinn, og þá þekkingu á hann að fœra öllum mönnum og með því vinna guðs verk. Þetta er aðal-verk guðs; það er tilgangr og markmið sköpunarinnar. Verkið er hon- um falið, og með guðs hjálp skal hann leysa það af hendi. Það var með fullri meðvitund þessa kraftar og með sigr fyrir augum, að hann mælti þessi orð: „Faðirinn hefir gefið alla hluti á mitt vald’. Aftr og aftr hafa komið fram í mannkynssögunni guðs-menn með fullkominni meðvitund um það, að þeir kœmi með guðlegan boðskap, og að þeir yrði, fúsir eða tregir, að flytja hann. En boð- skaprinn hefir ávallt reynzt ófullkominn. I þetta sinn var boð- sl^apr sá, er fluttr var, efnisríkari og yfirgripsmeiri en allt annað; hann stefndi beint að hjartarótum mannkynsins; svo þótt hann væri settr í umgjörð gyðinglegs þjóðernis, átti hann þó jafnt erindi til allra þjóða, — boðskaprinn frá guði föður. — — Hann, sem boðskapinn flutti, hefir enn ekki vikið fyrir nokkrum manni, og enn í dag setr hann lífi mannanna tilgang og markmið; hann er sonr guðs.“l) Aðrir þýzkir ný-guðfrœðingar gjöra minna úr guðlegu etíli Jesú. Á þeim er að skilja, að það, sem guðlegt er við hann, komi fremr til af einkaréttindum, sem hann hafi notið hjá guði, en því, að hann sé að uppruna og eðli guðdómlegr. Weiss segir, að sonar- samband Jesú við guð komi til af elsku þeirri, sem guð hafi hann elskað. Hvort sú elska guðs til Jesú hafi verið frá alda-öðli er leyndardómr, sem jafnvel Jesús sjálfr var ekki bær að vitna um. Það var trúfrœði postulanna, sem fyrst' knúði menn til að gefa slíkum spurningum gaum. Weiss segir: „Allar tilraunir til þess að fela í heitinu — guðs sonr — trúfrœða-hugtakið um guðlegt ætterni hans, eða andlega eðlis-einingu við guð, h/afa blátt áfram við engin söguleg rök að styðjast.“ij H. Wendt kannast við, að á stöku stað, en mjög sjaldan þó, nefni Jesús sig guðs son í þeirri merkingu, sem aðgreini hann frá öðrum mönnum. „Ekki heimilar það oss síimt" — segír hann — „að tileinka Jesú nokkra þá sonar-afstöðu við föðurinn, sem í eðli sínu sé ólík þeirri sonar-afstöðu, sem allir lærisveinar hans eiga eftir hans eigin kenningu að komast í við guð. —* 1 — Orð hans sjálfs benda til þess, að mennirnir eigi að kappkosta að eignast i) Harnack: Das Wesen des Christentums, enska þýðingin eftir T. B. Saunders, bls. 156-157, 139-140. 1) Weiss: Bibl. Theol. N. T„ vol. I, p. 81.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.