Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1928, Blaðsíða 17

Sameiningin - 01.06.1928, Blaðsíða 17
i75 og flugdrekinn, sem legst í strenginn til aS losa sig og fá svig- rúm til að fljúga hærra, slítur strenginn, en í stað þess að fá flogið hærra, hlunkast hann niður. Eg hygg að reynslan muni sýna, að kristileg reynsla verður að standa i nánu sambandi við hinn sögulega Krist, eða tapa eðli sinu. Þó er hér mikilsverður sannleikur, sem einnig mun leggja skerf til úrslita vissu. Hvar er þá vissu og fullgildi að finna? “Einhver hefir talað um veruleikann, sem annaðhvort hlut- lægan (objective) eða tilheyrandi reynslu. Hlutdrægan veru- leika má sanna, svo vissan kornist á mjög hátt stig. Vér érum þess fullviss að Plató hafi lifað og bardaginn við Waterloo átt sér stað. Söguleg rannsókn veitir þessa vissu. Ekki þannig að vér getum á eigin vitund fengið vissuna staðfesta, en þó er viss- an á rnjög háu stigi. Til eru hins vegar þau efni, sem færa okkur sönnun fyrir sér í okkar eigin meðvitund. Einnig þetta færir okkur vissu á mjög háui stigi, en ekki á hæðsta stigi. Á hæsta stig kernst vissan, þegar þessar tvær tegundir veruleikans styðja og staðfesta hvor aðra, þannig aS sagan og reynslan bera vitni s'ömu staðreyndinni. Þetta er hæsta stig vissunnar, sðm vér get- urn öðlast. “Nú höfum vér þessar tvær hliðar á fagnaðarerindinu: Krist sögunnar og Krist reynslunnar. Sé hvorttveggja veruleiki, þá höfurn vér hér þá tvo flokka veruleikans, sem að ofan eru nefndir. Eg þarf ekki að dvelja við það hér að ræða hvort Jesús hafi verið söguleg persóna. Leitað hefir veriö á himni og jörð eftir rökurn með eða móti því að Jesús hafi verið söguleg per- sóna, ein hugmyndin hefir reldð aðra, sem viljað hefir gera grein fyrir honurn þannig að hann ekki væri söguleg persóna. Þær hafa alíar .fallið af eigin þunga eða farist á skeri veruleikans — því að Kristur er staðreynd. Eftir hundraS ára stríðan bardaga, hefir dreifst úr reykjarmóðunni, og við sjóndeildarhring hugsun- ar vorrar stendur persóna hans enn í öllu verulegu eins og nýja testamentið gerir grein fyrir honum. “Dýpri eru mótmæli Lessings, að enginn viðburður í tíma, geti sannað eilífan sannleik. Fagnaðarerindi kristindómsins kom fram í tírna, er þessvegna takmarkað og staðbundið, og þessvegna ekki sannleikur. Einnig hefir Svarni Vivelíananda, hinn mikli Aredanta spekingur, sagt, að “kristindómurinn hlyti aö farast á kletti sannsöguleikans.” “En fyrir það getur maður ekki verið of djúpt snortinn af þakklæti, að i Kristi hafa hugsjónir íklæðst því sögulega. Eins og bent hefir verið á af einhverjum, ‘hlýtur signrinn í hverri hugsjóna-baráttu að véra þeirri hlið í vil, sem hefir hugsjónirnar

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.