Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.06.1928, Page 27

Sameiningin - 01.06.1928, Page 27
lega hefir veriö starfaS að kristindómsraálunum. Til er einnig yfir- borðs uppgangur, sem reynist haldlítill. ViS ihugun ástæðna vorra ber oss því aS varöveita það jafnvægi, sem- hvorki yfirbugast auð- veldlega af þeim erfiðleikum er við er að stríða, né gengst of mjög fyrir því, sem sæmilega gengur. Erfiðleikarnir eiga að vera fyrir oss þrep upp á við, og það sem hepnast upphvatning til áframhalds. En alt hvílir í raun réttri á því, því hvernig oss tekst að efla sann- kristilegt líf, hugsunarhátt, hjartalíf og starfsáhuga. Vér eigum bakhjarl í vorri eigin liðnu sögu, en viðhorf nútím- ans í kristilegum málum snertir oss ekki síður. Þeir atburðir eru að gerast, sem breyta því að ýmsu leyti. Jafnvel rikis kirkjurnar eiga í vck að verjast í ýmsum löndum, er alt fyrirkonmlag kirkjunnar og kenningarkerfi er grannskoðað á ný. Umrótið reynir alstaðar á þol- rif kristninnar, og það kemur greinilega í ljós að einungis lífsgildi kristindómsins getur komið að liði til að veita verulega festu. Ríkin geta ekki til lengdar haldið kirkjunni uppi, ef lífsgildi vantar í boð- skap hennar, ekki heldur lærdómur einn, þó mikilsverður sé, eða glæsilegt ytra fyrirkonrulag; ekki hefð eða föst kenningarkerfi, held- ur einungis lífrænn boðskapur, sem réttlætir sig í heilbrigðum áhrif- um og ávöxtum í mannlegu lífi. Hefir vaxandi meðvitund um þetta haft sín áhrif á kirkjulífið. Menn hafa fengið ótrú á deilum, sem því er náði úrslitum í lífi kristninnar. Fundið til þess að þó sjálf sagt sé að setja fram málstað sinn eins Ijóst og skýrt og unt er og að láta boðskapinn vera sem bezt grundvallaðan á þekkingu og skiln- ingi á opinberun Guðs og mannlegu lífi, þá sé það ekki fúllnægjandi nema það eigi bakhjarl í lífi sem mótað er af áhrifum kristindómsins. í því andrúmslofti, sem þannig er að skapast, ætti kirkjan, sem vér eigum andlegt samneyti með, bæði sú íslenzka og ameríska, að geta notið sín betur. Og það er von allra sannra kristindómsvina að með timanum megi þetta hafa áhrif á meðferð allra mannlegra mála, þannig að úlfúð, öfund, hatur og styrjaldir megi víkja fyrir kristi- legri anda og aðferðum. Tala safnaða kirkjufélagsins er nú 55, eða einurn færra en á síðasta kirkjuþingi. Grafton söfnuður í Norður Dakota hefir lagst niður á árinu. Kirkjan var seld og andvirðið gefið til kirkjulegra og kristilegra málefna. Fórst hinum fáu, sem eftir eru, mjög sóma- samlega í öllu þessu, er þeir fundu til þess að vegna fátnennis yrði ekki haldið áfram. Eiga þeir nú flestir kirkjulegt heimili í söfnuði norsk-lútersku kirkjunnar í Grafton, þar sem fluttar eru bæði ensk- ar og norskar guðsþjónustur. Prestar kirkjufélagsins eru hinir sömu og í lok síðasta kirkjuþings. Þá bættust oss tveir nýir kennimenn, þeir séra Carl J. Olson og séra Kolbeinn Sæmundsson. Séra Carl var þegar búinn að taka við prestakalli sínu í Wynyard og þar í grend nokkru fyrir þing. Hefir starfað þar síðan og þjónar nú sem fastur prestur öllum söfnuðum

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.